�?lvuðum manni fannst bera vel í veiði

Toyota Avensis bifreið var stolið skömmu eftir hádegi á föstudag. Eigandinn hafði lagt bifreiðinni við vinnustað sinn ná Austurvegi á Selfossi án þess að læsa henni eða hafa með sér kveikjuláslykilinn. Ölvöðum manni sem vantaði að komast til Reykjavíkur fannst bera vel í veiði er hann átti leið um Austurveginn og rak augun í að […]

Harður árekstur á Gjábakkavegi

Um helgina var gríðarleg umferð um alla Árnessýslu sem gekk vel ef frá er talið umferðarslys á Gjábakkavegi á sunnudag. Lögreglumenn höfðu í mörgu að snúast því margir þurftu á liðsinni og aðstoð lögreglu að halda. Frá því um hádegi á föstudag til miðnættis á sunnudag voru skráð 104 verkefni. (meira…)

Svekkjandi í Grafarvoginum

ÍBV tapaði mikilvægum leik gegn Fjölni í 1. deildinni í gærkvöldi. Lokatölur urðu 2:1 en sigurmark Fjölnismanna kom í uppbótartíma eða þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. ÍBV hefur gefið full mikið eftir í baráttunni um sæti í úrvalsdeild, liðið er sem fyrr í fimmta sæti en nú sex stigum á eftir […]

Bruni í Brautartungu á Stokkseyri

Um hálf eitt í gær var slökkvilið Stokkseyrar kallað út vegna bruna við Brautartungu á Stokkseyri. Í ljós kom að þar var kviknað í dráttarvél og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Engin slys urðu á fólki en dráttarvélin er gjörónýt eftir eldinn. (meira…)

380 ár frá Tyrkjaráni

Í dag eru nákvæmlega 380 ár frá Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum en ræningjarnir tóku land í Vestmannaeyjum mánudaginn 16. júlí 1627. Félag um Tyrkjaránssetur stendur nú fyrir minningardögum um Tyrkjaránið. Í gær var minningarmessa í Landakirkju, Tyrkjaránsganga frá Skansi að Dalabúi þar sem þrælauppboð fór fram. (meira…)

Tvö umferðaróhöpp, engan sakaði

Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Að kvöldi sl. sunnudags lenti bifreið utan vega á Nýjahraunsvegi en ökumaður hennar var að taka framúr bifreið og missti við það stjórn á bifreiðinni sem endaði utan vega. Engin slys urðu á fólki og lítið sem ekkert tjón á bifreiðinni. (meira…)

Ferðamaður í sjálfheldu

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið og engin alvarleg mál sem komu inn á borð lögreglu. Reyndar þurfti lögreglan að aðstoða danskan ferðamann sem lenti í sjálfheldu fyrir ofan Fiskhella. (meira…)

Straumurinn liggur á �?jóðhátíð

Svo virðist sem straumurinn liggi til Eyja um verslunarmannahelgina en alls hafa um fjögur þúsund manns gengið frá bókunum, bæði í flug og með Herjólfi á Þjóðhátíð. Upppantað er með Herjólfi á fimmtudag og föstudag en enn laust á miðviudag og svo í næturferðir alla þrjá dagana. Hjá Flugfélagi Vestmannaeyja er búið að bóka um […]

Smíði á Bergey VE gengur vel

Smíði á Bergey VE sem Bergur-Huginn er að láta smíða gengur að óskum. Gert er ráð fyrir að skipið fari reynslusiglingu í þessari viku og verði afhent á næstunni. (meira…)

Hermann byrjaður með Portsmouth

Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, lék á laugardag sinn fyrsta leik í búningi Portsmouth. Hermann lék síðari hálfleikinn þegar Portsmouth vann 2. deildar liðið Yeovil, 2:0, í æfingaleik á útivelli. Lomana LuaLua skoraði fyrra mark Portsmouth og Giovanni það síðara. (meira…)

Gæsluþyrlan sótti slasaðan ökumann

Harður árekstur varð á Gjábakkavegi rétt ofan við Laugardalsvelli skömmu eftir klukkan eitt í dag. Fimm erlendir ferðamenn voru í öðrum bílnum og ein íslensk kona í hinum. Hún var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, á Landspítalann í Fossvogi. Óttast var að konan hefði innvortis blæðingar en að öðru leyti er ekki vitað um ástand […]

Gunnar Geir klúbbmeistari GV

Gunnar Geir Gústafsson tryggði sér í dag sigurinn í Meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja sem lauk í dag. Gunnar Geir lék afar vel keppnisdagana fjóra og endaði á einu höggi undir pari vallarins, sem er frábær árangur. Örlygur Helgi Grímsson, klúbbmeistari GV sótti hart að Gunnari á síðasta deginum en Gunnar hafði að lokum betur og Örlygur […]

Fjögurra daga dagskrá til að minnast Tyrkjaránsins 1627

Á morgun, sunnudag hefst glæsileg hátíðardagskrá til minninga um Tyrkjaránið 1627. Dagskráin hefst klukkan 11 með minningarmessu í Landakirkju þar sem m.a. verður afhjúpaður legsteinn séra Ólafs Egilssonar sem ritaði einmitt reisubók um veru sína í barbaríinu og ferðina heim. Dagskránni lýkur svo að kvöldi miðvikudags en dagskrána má lesa hér að neðan. (meira…)

Stund með þér, þjóðhátíðartextinn 2007

Guðný Óskarsdóttir, formaður Stuðningsmannaklúbbs ÍBV vill að sitt fólk hafi eitthvað um að hugsa þó ekki sé fótboltaleikur á næstunni hér heima. „Kæru stuðningsmenn þar sem næsti heimaleikur er ekki fyrr en 31. júlí hér heima ætla ég að senda ykkur þjóðhátíðartextann svo þið getið æft ykkur fyrir þjóðhátíðina,“ segir Guðný með baráttukveðju. (meira…)

Síðasta sumarnámskeiðinu að ljúka

Í Vestra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur Rosemarie Þorleifsdóttir haldið reiðnámskeið fyrir börn og unglinga á hverju sumri síðustu 43 ár. Námskeiðin standa í sex daga, frá mánudegi til laugardags. Í dag lýkur fimmta og síðasta námskeiðinu í sumar en þá koma foreldrar og skyldmenni á sýningu þar sem börnin sýna getu sýna. (meira…)

Goslokahátíðin í Eyjum í myndum

Hin árlega goslokahátíð fór fram í um helgina þar sem fólk skemmti sjálfum sér og öðrum. Margt var í boði en mörgum finnst fjörið í Skvísusundi hápunkturinn en það stóð langt fram á sunnudagsmorgun enda veðrið einstaklega gott. (meira…)

Jarðskjálftatjón enn að koma fram

Sveitarstjórn Rangárþings ytra tók nýlega fyrir jarðskjálftatjón í húsi á Hellu vegna aldamótaskjálftanna og mun senda málið áfram til Viðlagatryggingar sem metur málið. Að sögn Arnar Þórðarsonar sveitarstjóra geta tjón sem þessi komið fram löngu síðar til dæmis þegar skipt er um rúðu í skjálftahúsi sem til þessa hefur sýnst óskaddað. Þegar nýja rúðan er […]

Um hundrað manns missa vinnuna

Um hundrað manns missa vinnuna í Þorlákshöfn vegna kvótaskerðingar á næsta fiskveiðiári. Þetta kom fram í samtölum Sunnlenska við fjölmarga aðila í útgerð og fiskvinnslu á staðnum. Mest er óvissan í þeim fyrirtækjum sem byggt hafa vinnslu sína á kvótaleigu og kaupum á mörkuðum þar sem ekki er vitað hversu mikið framboð verður í þeim […]

Blómumprýdd Stokkseyri

Umhverisdeild Sveitarfélagsins Árborgar hefur síðustu vikur verið með sveit manna á Stokkseyri við snyrtingar og hin ýmsu umhverfisverkefni. Vinnuskólinn hefur verið kröftugur gerandi í þessum verkefnum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.