Guðni Ágústsson flytur Njáluerindi á morgun

Fyrirlestraröðin, Njála með sunnudagskaffinu, er hafin aftur í Sögusetrinu Hvolsvelli í örlítið breyttri mynd. Í frétt frá setrinu segir að erindin verði flutt á laugardögum kl. 17.00. „Fáum við til okkar marga góða og þekkta einstaklinga til að koma með sín sjónarhorn á þessa merku sögu,“ segir í fréttinni. (meira…)

Kaupir stærsta söluaðila Toyota í Danmörku

M. KRISTINSSON Danmark A/S, sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar eiganda Toyota á Íslandi, hefur fest kaup á danska fyrirtækinu Krogsgaard-Jensen, stærsta söluaðila Toyota í Danmörku. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem segir að Krogsgaard-Jensen sé rótgróið fjölskyldufyrirtæki og stærst og umsvifamest af þeim 30 fyrirtækjum sem selja Toyota-bifreiðar í Danmörku og […]

�?tgerðir í Eyjum missa 5500 tonn

Hátt í fimm milljarðar hverfa úr veltunni í Vestmannaeyjum vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að skera niður aflaheimildir í þorski, ýsu og ufsa. Samtals missa Eyjamenn um 5500 tonn af kvóta sínum, eðlilega mest í þorski þar sem kvótinn fer úr 11.995 tonnum í 8577 tonn. Það er því ljóst að hrikta mun í nema að ríkið […]

Sáning hafin á Landeyjasandi

Sáning á Landeyjarsandi er hafin vegna fyrirhugaðrar hafnar í Bakkafjöru og sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur samþykkt aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir höfninni, veg frá henni og grjótnámi á Seljalandsheiði. Það er í ferli sem væntanlega lýkur áður en framkvæmdir við sjálfa höfnina hefjast sem samkvæmt áætlun verður eftir áramót. (meira…)

Minnkið okrið á far- og farmgjöldum Herjólfs

Stjórn Drífanda stéttarfélags lýsir yfir áhyggjum vegna mikillar kvótaskerðingar á þorski og takmörkunum á loðnuveiðum. Skorar stjórnin á kvótaeigendur í Vestmannaeyjum að sýna samfélagslega ábyrgð og undir þessum kringumstæðum og tryggja næga atvinnu fyrir fiskvinnslufólk í Eyjum á næstu misserum þar sem nægur kvóti er til staðar til þess, þrátt fyrir skerðingar. (meira…)

Vaknaðu Marshall, Eyjamenn hafa ekki gullfiskaminni

Það er ágætt að hafa góð fyrirheit og boða samgöngubætur vegna niðurskurðar á þorskafla en einhvernveginn er þetta hálfgert yfirklór að mér finnst. Sumt af þessum framkvæmdum hefur í reynd ekkert með niðurskurð þorskafla að gera og maður veltir óneitanlega fyrir sér hvernig þessar framkvæmdir eiga að skila sér til þeirra sem missa tekjur vegna […]

Enn fækkar sandsíli við Eyjar

Enn minna af sandsíli virðist vera umhverfis Vestmannaeyjar en á sama tíma í fyrra, samkvæmt fyrstu fregnum af sandsílarannsóknum Hafrannsóknastofnunar á svæðinu. Þetta kemur fram á visir.is. Sandsílið er þýðingarmesta fæða lundans og hefur stórlega dregið úr varpi hans tvö ár í röð. (meira…)

�?tlum að vinna rest fram að �?jóðhátíð

Yngvi Borgþórsson átti góðan leik með ÍBV gegn Íslandsmeisturunum en Yngvi er farinn að sýna gamalkunna takta á vellinum. Hann sagði í samtali við www.sudurland.is eftir leikinn ekki vera sáttur við að vera fallinn úr leik. „Mér fannst við alveg vera inni í þessu í fyrri hálfleik en svo gerðum við ein mistök í byrjun […]

FH-ingar einu númeri of stórir fyrir ÍBV

FH-ingar reyndust einu númeri of stórir fyrir 1. deildarlið ÍBV þegar liðin mættust í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í kvöld á Hásteinsvellinum. Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára unnu 0:3 en öll mörkin komu í síðari hállfeik. Það var þó ekki þannig að Hafnfirðingar hefðu ekki þurft að hafa mikið fyrir sigrinum en dýrkeypt mistök ÍBV urðu […]

Innbrot og skemmdir á saltgeymslu

Að morgni sl. sunnudags var lögreglu tilkynnt um að brotist hafa verið inn í Baldurskróna og var maður handtekin þar inni en hann mun hafa farið þar inn ásamt fleirum og náð í bjór sem þar var geymdur. Ekki liggja fyrir upplýsingar hverjir voru með þessum manni og biður lögreglan þá sem einhverjar upplýsingar hafa […]

Bragi dró tæplega tvo hundruð kílóa lúðu úr hafinu

Bragi Steingrímsson, skipstjóri á Þrasa VE 20 dró tæplega tvö hundruð kg. lúðu úr hafinu í dag. Bragi kom með aflann að landi nú síðdegis en auk lúðunnar var hann með um 800 kg. af öðrum afla, mest ufsa. Bragi sagði í samtali við www.sudurland.is að erfiðlega hefði gengið að ná lúðunni um borð en […]

Minningardagar um Tyrkjaránið 1627

Dagarnir 16.-19. júlí 1627 marka einhver dýpstu spor í sögu Vestmannaeyja. Í ár eru 380 ár liðin frá þeim ógnarviðburði sem ævinlega er nefndur Tyrkjaránið. Af þeim um 400 mönnum og konum sem rænt var á Íslandi í þessu mesta sjóráni íslenskrar sögu voru 242 frá Eyjum. (meira…)

Brást kvótakerfið?

Sú ákvörðun Sjávarútvegráðherra að skera þorskkvótann niður um þriðjung hefur eðlilega vakið mikla athygli og umtal. Þessi niðurskurður mun hafa veruleg áhrif á mörg sjávarútvegpláss á landsbyggðinni og væntanlega verða til þess að enn mun munurinn aukast á kjörum fólks að landsbyggðinni og Reykjavíkursvæðinu. (meira…)

Töluverður fjöldi í Skvísusundi

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina þar sem haldið var upp á goslok sem hefð er komin á fyrstu helgina í júlí ár hvert. Töluverður fjöldi manns kom saman í Skvísusundi í tilefni hátíðarhaldanna en skemmtanahald þar fór að mestu leyti vel fram. (meira…)

Íslandsmeistararnir koma í kvöld

Í kvöld klukkan 19.15 mætast á Hásteinsvellinum, ÍBV og FH. ÍBV leikur í 1. deildinni og fékk því sjálfkrafa heimaleik gegn Íslandsmeisturum síðustu þriggja ára en Hafnfirðingar eru efstir í efstu deild.Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV skorar á alla Eyjamenn að mæta á Hásteinsvöllinn til að sjá besta lið landsins mæta því næstbesta. (meira…)

Hvers vegna að gefa loforð sem ekki er staðið við?

Ég vil nú byrja á því að óska okkur Eyjamönnum nær og fjær til hamingju með goslokahátíðina og goslokin.Það er fínt að halda upp á þessi lok með hátíðahöldum.Það ber vissulega að fagna því að á sínum tíma skyldu allir sleppa lifandi frá þeim náttúruhamförum sem okkar litla eyja þurfti að ganga í gegnum. Það […]

Miklar framkvæmdir við FES

Að auki er búið að slá upp grunni og steypa plötu undir fyrirhugaða mjöltanka vestan við verksmiðjuhúsið. �?að er von stjórnenda að þessar framkvæmdir skili sér í hagkvæmari verksmiðjurekstri en verið hefur og verður spennandi að sjá hvernig til tekst þegar verksmiðjan fer í fulla keyrslu aftur sem verður vonandi á haustvertíðinni. �?rátt fyrir framkvæmdagleðina […]

Hundur beit konu, líkamsárás á Litla Hrauni

Skýrt er kveðið á um það í lögreglusamþykkt Árnessýslu að hundar sem ráðast á menn séu réttdræpir. �?essi tiltekni hundur hafði áður glefsað í barn og því var talið að ekki væri hjá því komist að aflífa hundinn strax. Fangi á Litla-Hrauni varð fyrir líkamsárás af hendi samfanga sinna að kvöldi miðvikudags með þeim afleiðingum […]

Fjórar bílveltur, ökumennirnir slasaðir

Á föstudag valt bifreið á Biskupstungnabraut við �?ingvallaveg. �?kumaður var einn í bifreiðinni og hlaut háls- og bakáverka. Um kl. 22:00 á laugardag valt bifreið á Sólheimavegi skammt frá Kringlu. �?kumaður slasaðist talsvert og var fluttur með þyrlu á slysadeild Landsspítala. Maðurinn var einn í bifreiðinni. Talið er að bifreiðin hafi farið margar veltur eftir […]

Bíll á kviðnum

Ekki leið á löngu þar til lögreglumenn hjá LRH stöðvuðu bifreið sem lýsingin átti við. Í bifreiðinni voru tveir menn og hjólin undan Lexusbifreiðinni. Mennirnir voru handteknir.Í framhaldi voru þrír aðrir handteknir sem taldir eru viðriðnir málið. Einn þeirra er eigandi sams konar Lexusbifreiðar og hjólin voru tekin undan á bílasölunni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.