Bílvelta í Grímsnesi

Kona var flutt á heilbrigðisstofnun Suðurlands með minniháttar meiðsl eftir bílveltu á Biskupstungnabraut, rétt austan við afleggjarann að Þingvöllum, í dag. Lögregla telur að konan hafi misst stjórn á bílnum í beygju með fyrrgreindum afleiðingum. (meira…)

Vinn eins og vitleysingur fyrir skólagjöldunum

Selfyssingurinn Árni Grétar Jóhannson hefur fengið inngöngu í leikstjóranám í Rose Bruford leikhússkólann í London. Árni er einn sex umsækjenda sem valinn var úr stórum hópi en aðeins einn eða tveir erlendir nemendur komast inn á hverju ári. (meira…)

Mikið bókað á þjóðhátíð

Dalurinn.is hafði samband við Flugfélag Íslands rétt í þessu og var gríðarlega mikið bókað og vegna fárra sæta þá var farið að bóka töluvert á fimmtudeginum sem og laugardag. Ljóst þykir að straumurinn liggi til Eyja þetta árið og fólk staðráðið að taka þátt í stærstu og veglegustu útihátíð landsins miðað við bókanir á ferðum. […]

Nafn mannsins sem lést

Sá sem lést eftir árekstur á Biskupstungnabraut á laugardag hét Gunnlaugur Björnsson fæddur 1977. Gunnlaugur bjó í foreldrahúsum í Hveragerði. Hann var ókvæntur og barnlaus. (meira…)

Verslunarmannahelgin að mestu þurr

Fundur var settur kl. 16:10 fimmtudaginn 19. júlí í Veðurklúbbi Lundar á Hellu, af Einari Enokssyni formanni, sem bauð alla velkomna. Margrét Bjarnadóttir ritar fundargerð. Jón Þórðarson, aðstoðarmaður, sagði í upphafi fundar að hann hefði hitt skemmtanaglatt fólk sem óskaði eftir veðurspá frá klúbbnum fyrir verslunarmannahelgina, sem er jú innan skamms. Reynt verður að verða […]

Sólheimaskátar til Bretlands

Lokaundirbúningur Skátafélags Sólheima fyrir Alheimsmót skáta í Highland Park Englandi stóð yfir þegar meðfylgjandi mynd var tekin en á henni eru þau Rósý, Lóa, Siggi Gísla, Kristján Már og Gulla í efri röð en Sigrún og Valgeir í þeirri neðri. (meira…)

Toby fylgir Á móti sól á �?jóðhátíð

Hljómsveitin Á móti sól mun ásamt Tuborg og Fm957 halda upphitunardjamm fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja miðvikudaginn 1. ágúst. Partýið er á Gauki á stöng og lofar hljómsveitin mikilli Þjóðhátíðarstemmningu. (meira…)

Banaslys á Biskupstungnabraut

Ökumaður bifhjóls lést eftir árekstur við jeppa á Biskupstungnabraut, til móts við Borg í Grímsnesi, í gærkvöldi. (meira…)

Stilla framlengir yfirtökutilboð sitt

Um 30 hluthafar hafa samþykkt yfirtökutilboð Stillu í Vinnslustöðinni sem nemur þó ekki nema tæpu 1% hlutafjár í félaginu. Frestur til að taka tilboðinu hefur verið framlengdur um fjórar vikur. Stilla eignarhaldsfélag ehf. sem er í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, sem kenndir eru við Brim, gerði yfirtökutilboð í Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum en það […]

Leitað eftir áhugasömum aðilum vegna hugmyndavinnu

Nú þegar farið er að sjást í nokkur hús undan gjalli við Suðurveg sem grafið hefur verið niður á í austurbænum í Vestmannaeyjum. Verkefnið sem ber vinnuheitið Pompei norðursins skorar á þá aðila sem áhuga hafa á að leggja inn hugmyndir að hafa samband við verkefnastjóra Kristínu Jóhannsdóttir kristinj@vestmannaeyjum.is eða 488 2000 fyrir 31. ágúst […]

Eyjamenn rúlluðu yfir Reyni

Eyjamenn unnu góðan útisigur á Reyni Sandgerði í kvöld. Skoruðu Eyjamenn sex mörk en heimamenn náðu ekki að koma boltanum í netið hjá gestunum. (meira…)

Lóðsinn dró það út afturábak

Á áttunda tímanum í kvöld dró Lóðsinn í Vestmannaeyjum út stærsta skip sem lagst hefur að bryggju í Vestmannaeyjum. Það var skemmtiferðaskipið Discovery sem kom til Eyja í morgun. (meira…)

Samkomulag um fleiri ferðir með Herjólfi

Á blaðamannafundi sem hófst klukkan þrjú tilkynnti samgönguráðherra, Kristján Möller að samkomulag hefði náðst um aukaferðir Herjólfs. Í tillögur samgönguráðherra er gert ráð fyrir að skrifað verði undir samkomulag um 15 árlegar viðbótarferðir með Herjólfi árin 2008 til 2010 en ferðum Herjólfs hefur verið fjölgað verulega á þessu ári. (meira…)

Fyrirtækið flytur ef ekki finnst starfsfólk

Fyrir skömmu keypti fyrirtækið Prjónaver á Hvolsvelli prjónastofuna Janus í Kópavogi. Starfsemi þess var innlimuð í verksmiðju Prjónavers og stóð til að fjölga starfsmönnum um helming í kjölfarið. Það hefur ekki gengið eftir vegna hörguls á starfsfólki. Standi það ekki til bóta neyðist Prjónaver til að flytja alla starfsemi sína annað, að sögn Loga Guðjónssonar, […]

Manngerðar hörmungar Eyjamanna

Það er ósanngjarnt að kenna ríkisstjórninni um þær hörmungar sem sjávarútvegurinn gengur nú í gegnum vegna kvótaniðurniðurskurðar þó okkur greini aðeins á um hversu langt eigi að ganga í niðurskurði. (meira…)

Á 30 mínútum að bát sem rakst á rekald milli Brands og Álseyjar

Björgunarskipið Þór frá Vestmannaeyjum var kallað út í gær til að aðstoða trillu sem rakst á rekald milli Brands og Álseyjar. Leki kom að bátnum. Þór var kominn að trillunni tæpum 30 mínútum eftir að kallið kom. Annar bátur var nærstaddur og aðstoðaði hann trilluna til hafnar en Þór fyldi með. (meira…)

Vandi Eyjamanna

Bættar samgöngur eru mál málanna í Vestmannaeyjum eins og víða annars staðar. Skyljanlega krefjast Eyjamenn bættra samgangna. Það er krafa nútímans að geta ferðast og skroppið þegar maður vill. (meira…)

Umsvifamikil í sorpinu

Selfyssingurinn Jón Þórir Frantzson keypti á dögunum 90% hlut í Íslenska gámafélaginu. Viðskiptablaðið greindi frá kaupunum og sagði fyrirtækið velta tveimur milljörðum á ári. (meira…)

Fjölskyldudagar á Stokkseyri yfir Verslunarmannahelgina

Fjölskyldudagar verða haldnir um verslunarmannahelgina á Stokkseyri. Margt verður uppi á teningnum frá fimmtudegi til mánudags, söfn, sýningar, þjónusta og afþreying opinn alla helgina. Frítt verður inn á Draugabarinn, harmonikuspil, varðeldur, flugeldasýning, barnaball í Töfragarðinum, kajakasigling, o.fl.Nýtt og glæsilegt aðstöðuhús verður vígt á tjaldstæðinu á Stokkseyri. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.