Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar

Vestmannaeyjabær hefur auglýst útboð um rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Um er að ræða 15 ára sérleyfissamning sem felur í sér bæði rekstur stöðvarinnar og byggingu nýrrar viðbyggingar. Útboðið kemur í kjölfar fyrra útboðsferlis sem fór fyrir Kærunefnd útboðsmála og lauk með því að sveitarfélagið var talið skaðabótaskylt eftir að bjóðendur höfðu verið […]
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS

Ísfélagið hefur alltaf staðið vel við bakið á KFS og verður engin breyting þar á. KFS hefur undanfarin ár byggt upp eyjalið með áherslu á að gefa ungum efnilegum knattspyrnumönnum góðan undirbúning fyrir frekari frama á fótboltavellinum eða út í lífið. Má þar með nefna unga drengi eins og Tómas Bent, Arnar Breka, Halldór Pál […]
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 359 milljörðum króna á árinu 2025. Það er tæplega 4% aukning í krónum talið frá fyrra ári. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði um 4½% sterkara á árinu 2025 en árið 2024, var aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða rúm 8%. Frá þessu er greint í Radarnum, fréttabréfi SFS. […]
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa allir landað síðustu dagana. Rætt er við skipstjórana á vef-fréttasíðu fyrirtækisins. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur GK, greindi frá því að skipið hefði landað á föstudaginn og síðan væri það að landa aftur í dag. „Við lönduðum 41 tonni á Grundarfirði á föstudaginn. Það var eftir stuttan túr og […]
Vestmannaeyjar – Alveg milljón

Fasteignir eru nú í fyrsta skiptið skráðar til sölu á yfir milljón á fermeterinn !!!! Hérna kemur enn ein birtingarmyndin af þeim efnahagsumsvifum sem eru að eiga sér stað í Eyjum, þar sem sennilega hefur aldrei verið eins mikið í gangi og jafn mikil verðmætasköpun að eiga sér stað á einu atvinnusvæði á Íslandi. Eyjamenn […]
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn

Ég stend hér í dag 33 ára gamall, giftur og faðir lítillar dóttur. Fyrir mér snýst þetta prófkjör ekki bara um pólitík – það snýst um framtíðina. Framtíð dóttur minnar, framtíð fjölskyldna í Eyjum og framtíð samfélagsins okkar. Ég er alinn upp við þau gildi sem hafa einkennt Sjálfstæðisflokkinn: ábyrgð, dugnað og trú á einstaklinginn. […]
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært

Í gærmorgun varð Drangavík VE fyrir því óhappi að veiðarfærin fóru í skrúfuna þegar verið var að taka þau um borð eftir að híft hafði verið úr festu, en annar togvírinn hafði slitnað. Drangavík var þá á veiðum út af Vík í Mýrdal, að því er segir í færslu á facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar. Þar segir jafnframt […]
Nálægð, traust og sterk liðsheild skilar öllum árangri!

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fer fram þann 13. mars nk. Vestmannaeyjar eru mitt heimili og vil ég leggja mitt af mörkum fyrir samfélagið okkar. Ég tel mikilvægt að í bæjarstjórn sitji fólk sem hefur sterka tengingu við bæjarbúa, þekkir áskoranir þeirra […]
Kona á öld hrottans – Saga úr Vestmannaeyjum

„Nú er konudagurinn haldinn. Hvað er það? Hvað er kona á tímum þegar gamlir hvítir karlar halda veröldinni í gíslingu með landránum og sprengingum af ótta við allt sem kynni að gerast ef lífið fengi að blómstra á sínum raunverulegu forsendum? – Við þurfum að gæta jafnvægis, segja þeir ábúðarfullir hver við annan. Nú skulum […]
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu

Mikil uppbygging húsnæðis hefur verið í gangi í Eyjum síðustu ár og er enn. Núna eru 84 íbúðir í bygginu, um 150 samþykktar eða í undirbúningi. Á árinu 2025 kláruðust 18 íbúðir. Stærsta byggingarsvæðið sem nú er Malavöllurinn, vettvangur mikilla átaka og sigra í fótbolta á síðustu öld. „Það er mjög mjög spennandi svæði og […]
ÍBV sækir KA heim í dag

Í dag klukkan 14:45 mætir ÍBV liði KA í 19. umferð Olís deild karla. Leikið verður í KA heimilinu á Akureyri. ÍBV situr í 5. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert eitt jafntefli og tapað sex. Markatalan er jákvæð um 17 mörk og Eyjamenn eru í harðri baráttu […]
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna

Nú hefur fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Eyjum ákveðið að hafa prófkjör við val á framboðslista XD fyrir kosningar til bæjarstjórnar 16. maí nk. . Eftir ítarlega umfjöllun varð niðurstaðan án mótatkvæða að efna til prófkjörs 13. mars nk. En með þeim hætti fær lýðræðið að njóta sín best. Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fá það hlutverk að raða […]
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja fjallaði um stöðu barnaverndarmála og málefni fatlaðs fólks á fundi sínum nýverið. Samþykktu framkvæmdaáætlun í barnavernd Lögð var fram framkvæmdaáætlun í barnavernd fyrir árin 2023–2027. Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs og deildarstjóri velferðarþjónustu fóru yfir helstu áherslur og markmið áætlunarinnar. Ráðið samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti og vísaði henni til bæjarstjórnar til endanlegrar […]
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun

Lokun innisundlaugarinnar í Vestmannaeyjum, sem staðið hefur frá 20. október, er farin að hafa veruleg áhrif á sundkennslu yngstu nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja. Nemendur í 1.–4. bekk hafa misst niður fjölda kennslustunda og nú þarf að grípa til sérstakra úrræða til að tryggja að þeir uppfylli lágmarkskröfur aðalnámskrár. Málið var tekið fyrir á fundi fræðsluráðs […]
Suðurlandsslagur í Eyjum

Í dag klukkan 14:00 mætast ÍBV og Selfoss í 18. umferð Olís deild kvenna þegar liðin eigast við í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. ÍBV situr í 2. sæti deildarinnar og er í harðri baráttu á toppnum, á meðan Selfoss berst fyrir lífi sínu á botni töflunnar. Tvö stig eru því afar mikilvæg fyrir bæði lið – af […]
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026

Skákþing Vestmannaeyja 2026 lauk 19. febrúar þegar síðasta umferð mótsins fór fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV) við Heiðarveg. Alls tóku 10 keppendur þátt og voru tefldar níu umferðir. Umhugsunartími var 60 mínútur á skák auk 30 sekúndna viðbótar á hvern leik. Teflandi skákstjóri var Sæmundur Einarsson. Sigurjón Þorkelsson, núverandi skákmeistari Vestmannaeyja, og Auðunn Haraldsson, […]
900 krónur urðu að 45 milljónum!

Það var sannkallað heppniskvöld hjá einum spilara síðastliðið laugardagskvöld þegar þrefaldur Lottópottur skilaði honum ríflega 45 milljóna króna fyrsta vinningi. Vinningsmiðinn, sem kostaði aðeins 900 krónur, var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þegar hann sá síðastliðinn sunnudag að fyrsti vinningur hafði gengið út, ákvað hann að […]
Vara við snjóhengjum og grýlukertum

Slökkvilið Vestmannaeyja varar við snjóhengjum og grýlukertum. Þetta segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir jafnframt að mjög víða í bænum séu stærðarinnar snjóhengjur og grýlukerti farin að hanga fram af þakköntum með tilheyrandi slysahættu fyrir gangandi vegfarendur. „Við hvetjum húseigendur, fyrirtæki og stofnanir til að huga að þessu og fjarlægja sem allra fyrst […]
S!ll! sendir frá sér nýtt lag og heldur tónleika í kvöld

Sigtryggur Örn Ólafsson, sem notar listamannsnafnið S!ll!, er 15 ára tónlistarmaður og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum. Hann flutti til Vestmannaeyja í byrjun síðasta árs ásamt fjölskyldunni. Sjálfur hafði hann búið í Kópavogi en er vel tengdur Eyjunum: „Já, pabbi er alinn upp í Vestmannaeyjum, svo ég hef oft komið og verið […]
Óska eftir framlengingu á flugi vegna stöðunnar í Landeyjahöfn

Samgöngumál voru til umræðu á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni, þar sem meðal annars var farið yfir umsögn bæjarins um samgönguáætlun og stöðu flug- og siglingasamgangna við Eyjar. Umsögn Vestmannaeyjabæjar um samgönguáætlun var send í umsagnargátt Alþingis þann 10. febrúar síðastliðinn. Bæjarstjóri fylgdi umsögninni eftir á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. febrúar þar sem ítrekaðar […]