Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Aníta Jóhannsdóttir hefur tilkynnt á samfélagsmiðlum að hún hyggist gefa kost á sér í 2. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu sinni segist Aníta, sem er fædd og uppalin í Eyjum, vilja leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins. „Sem fædd og uppalin Eyjakona vil ég leggja mitt af mörkum til […]
Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram

Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey mun ekki bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum í vor. Ákvörðunin var tekin á fundi félagsins í dag. Í tilkynningu segir að félagið sé ekki stjórnmálaflokkur og því sé þátttaka í kosningum ekki sjálfgefin. „Nú látum við gott heita,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Fyrir Heimaey, H-listinn, hefur haft forystu í bæjarstjórn […]
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Nú styttist í að frestur til að taka þátt í könnun um menningarstefnu Vestmannaeyja renni út. Á miðnætti annað kvöld lokar könnunin og því er síðasti séns fyrir íbúa að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á stefnumótun í menningarmálum sveitarfélagsins. Hér að neðan má sjá nánar um könnunina og hvernig má bera […]
Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram

Jóna Sigríður Guðmundsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Hún hefur setið í bæjarstjórn undanfarin átta ár og segist ganga sátt frá borði, þakklát fyrir traustið og reynsluna sem starfið hefur fært henni. Jóna Sigríður tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í morgun: Kæru vinir, […]
Íris gefur ekki kost á sér áfram hjá Fyrir Heimaey

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún greinir frá ákvörðuninni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún þakkar fyrir traustið síðustu átta ár, rifjar upp árangur kjörtímabilanna og segist stolt af þeim grunni sem lagður hefur verið að áframhaldandi vexti […]
Sækist eftir 2. sæti

Ég sækist eftir 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu þann 13. mars nk. Ég er þakklát og auðmjúk gagnvart því að hafa sl. fjögur ár fengið tækifæri til þess að taka ábyrgð og vera í forystu fyrir samfélagið okkar. Þessi ár hafa verið lærdómsrík og gefandi. Það sem hefur drifið mig áfram er væntumþykja […]
Þetta snýst um fólkið mitt og bæinn minn

Ég hef alltaf talið mig heppinn að hafa alist upp og eiga heima í Vestmannaeyjum. Hér hef ég byggt upp fjölskyldu mína, hér hef ég unnið mín verk og hér á ég heima. Ég er giftur, tveggja barna faðir og afi nokkurra barnabarna – og þau eru ótrúleg blessun í mínu lífi. Og það er […]
Stormurinn varð að lagi

Vestmannaeyska hljómsveitin Memm hefur sent frá sér glænýtt lag og kveður febrúarmánuð með laginu Febrúar. Lag og texti voru samin í febrúar fyrir ári síðan, þegar vonskuveður helltist yfir land og þjóð. Úr varð lag sem fangar stemninguna, kraftinn, rokið og kuldann sem flest okkar þekkjum. (meira…)
Óeigingjarnt og öflugt starf í þágu Vestmannaeyja

Í janúar ár hvert afhenda Eyjafréttir Fréttapýramídann þeim aðilum sem taldir eru hafa skarað fram úr á nýliðnu ári með framlagi sínu og starfi og gert Vestmannaeyjar að betra samfélagi. Einn þeirra sem hlaut Fréttapýramídann árið 2017 var Víglundur Þór Þorsteinsson, læknir og Eyjamaður, sem nú er látinn. Víglundur fékk Fréttapýramídann fyrir að varðveita og […]
Jöfn kynjahlutföll hjá embætti Lögreglustjórans í Eyjum

Embætti Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hefur náð eftirtektarverðum áfanga í jafnréttismálum. Í fyrsta sinn eru nú jöfn hlutföll karla og kvenna bæði meðal starfsfólks embættisins og í útkallsliði lögreglu. Jafnframt mældist embættið hæst allra löggæslustofnana landsins þegar kemur að jafnrétti í könnun Sameykis um Stofnun ársins 2025 – árangur sem endurspeglar markvissa vinnu og sterka liðsheild. […]
Fjölluðu um stöðu dómsmáls gegn félaginu

Stjórn Eyglóar ehf. kom saman til fundar mánudaginn 19. janúar sl., þar sem fjallað var um stöðu dómsmáls sem Línuborun ehf. hefur höfðað gegn félaginu. Fundinum sátu Hildur Sólveig Sigurðardóttir varaformaður, Páll Magnússon og Njáll Ragnarsson stjórnarformaður. Gestur fundarins var Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður félagsins. Fram kemur í fundargerð að skömmu áður hafi farið fram […]
Víglundur Þór Þorsteinsson læknir er látinn

Víglundur Þór Þorsteinsson læknir lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. febrúar, 91 árs að aldri. Víglundur fæddist á Brekku 24. júlí 1934 og ólst upp í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Ingigerður Jóhannsdóttir, húsfreyja, og Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólastjóri og sparisjóðsstjóri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu. Á unglings- og menntaskólaárum stundaði Víglundur Þór verkamannavinnu, […]
Hvað er að vera Sjálfstæðismaður?

Að vera sjálfstæðismaður er, að mínu mati, fyrst og fremst að trúa á frelsi einstaklingsins og ábyrgðina sem því fylgir. Sú trú hefur mótað mína sýn og verið leiðarljós í minni þátttöku í stjórnmálum. Undanfarin fjögur ár hef ég gengt ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars sem nefndarmaður í framkvæmda- og hafnarráði og setið í stjórn Sjálfstæðisflokksins. […]
Samgöngur hafa ekki stoppað Miðflokkinn

Það er eðlilegt að spurt sé hvort samgöngur hafi áhrif á heimsóknir þingmanna til Vestmannaeyja í kjördæmaviku. Eyjafólk þekkir betur en flestir aðrir hvað það þýðir þegar siglt er til Þorlákshafnar og veðrið ræður för. En staðreyndir skipta máli í þessari umræðu. Þingmaður Miðflokksins, Karl Gauti Hjaltason, hefur ekki látið samgöngur stöðva sig. Í kjördæmavikunni í […]
Eru samgöngur að stoppa þingmenn okkar?

Kjördæmavika er haldin tvisvar á hverju löggjafarþingi, einu sinni að hausti og einu sinni eftir áramót. Tilgangur kjördæmaviku er að gefa þingmönnum tækifæri til að ferðast um kjördæmi sín og heimsækja fólk og fyrirtæki. Engir þingfundir eru haldnir í kjördæmavikum. Svohljóðandi upplýsingar má finna á Facebook-síðu Alþingis um fyrirbærið kjördæmaviku: Þingmenn allra kjördæma þeysast um […]
Nýtt tölublað Eyjafrétta komið út: Loðnan, kosningabaráttan og forsetaheimsókn

Nýjasta tölublað Eyjafrétta er komið út og þar kennir ýmissa grasa – allt frá loðnuvinnslu á fullu til spennandi sveitarstjórnarmála og hlýlegrar heimsóknar forsetahjónanna. Loðnuvinnsla á fullu Á forsíðunni er kastljósið á loðnuvertíðina sem hefur gengið vel. Vinnslan er í fullum gangi og undirbúningur fyrir hrognatöku framundan. Rætt er við forsvarsmenn Ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar um […]
Trausti Hjaltason gefur kost á sér í efsta sæti Sjálfstæðisflokksins

Trausti Hjaltason hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann sækist eftir efsta sæti í prófkjöri flokksins sem fram fer 13. mars næstkomandi og segir markmiðið vera að styrkja hagsmunagæslu bæjarins og stuðla að ábyrgum rekstri með festu og skýra sýn til framtíðar. Tilkynningu Trausta […]
Fundur bæjarstjórnar í beinni

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til síns 1623. fundar í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 25. febrúar, og hefst fundurinn klukkan 14.00. Fundinum verður streymt beint og geta íbúar því fylgst með umræðum og afgreiðslu mála í rauntíma. Á dagskrá eru fjölbreytt og veigamikil mál, þar á meðal umræða um samgöngumál, íbúakosning um þróunarsvæðið M2 og fundur með […]
Öflug íslenskukennsla í febrúar

Íslenskukennsla á dagtíma sem haldin var frá 2. til 24. febrúar tókst einstaklega vel. Kennt var fjórum sinnum í viku, frá mánudegi til fimmtudags, og var mæting og þátttaka til fyrirmyndar allan tímann. Hópurinn var einstaklega skemmtilegur og áhugasamur,“ segir Jóhanna Lilja Eiríksdóttir sem stýrir íslenskunámi hjá Visku. „Nemendur sýndu mikinn metnað í námi sínu, […]
Skjárinn sem stal æskunni

Farsímanotkun barna og áhrif samfélagsmiðla á þroska þeirra liggur mér verulega á hjarta. Sem tveggja barna faðir hef ég sjálfur upplifað hvernig tæknin getur smám saman tekið meira pláss en maður gerir sér grein fyrir í fyrstu. Það sem byrjar sem saklaus leið til að fá smá „frið“ að rétta barni iPad í hendurnar getur […]