Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Aldan á niðurleið og aðstæður gætu skapast næstu daga
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Aðstæður við Landeyjahöfn eru enn krefjandi en útlit er fyrir að þær fari batnandi á næstu dögum. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er aldan nú um 4 metrar en spár gera ráð fyrir að hún gangi niður þegar líður á daginn.

Hagstæðari skilyrði framundan

Horfur frá fimmtudegi og fram á laugardag eru taldar nokkuð góðar, bæði hvað varðar öldu og sjávarstöðu.

„Það er ágætis ölduspá frá fimmtudegi og út laugardaginn og sjávarstaða hagstæð,“ segir Pétur. Þessi þróun gæti skapað tækifæri til að hefja dýpkunarframkvæmdir að nýju við hafnarmynnið.

Gert er ráð fyrir að reynt verði að vinna við dýpkun á flóðum á næstu dögum, ef aðstæður leyfa. „Reynt verður að vinna við dýpkun í hafnarmynninu á flóðunum sem framundan eru,“ segir Pétur. Samkvæmt því gæti vinna hafist strax á fimmtudag, annað hvort á morgunflóði eða síðdegisflóði.

Nýjustu fréttir

Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.