Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Keppendur GRV: Bríet Björk Hafþórsdóttir, Caritas Rós Tinnudóttir og Kolbrá Njálsdóttir og Guðbjörg Karlsdóttir. Ljósmynd/grv.is

Lokakeppni Raddarinnar fór fram í Vík í Mýrdal í gær í einstaklega góðu veðri. Grunnskóli Vestmannaeyja átti þrjá fulltrúa í keppninni sem stóðu sig afar vel, að því er segir í frétt á vefsíðu Grunnskólans í Vestmannaeyjum.

Það var þó Caritas Rós Tinnudóttir, nemandi við GRV, sem bar sigur úr býtum með frábærri frammistöðu. Í öðru sæti varð Hrafnkell Frosti Ómarsson frá Hellu og í þriðja sæti Embla Bríet Einarsdóttir frá Hvolsvelli.

„Við í GRV eru ótrúlega stolt af þessum stúlkum en þess má geta að ferðalagið frá Eyjum til Víkur (báðar leiðir) tók um 12 klukkutíma,” segir enn fremur í fréttinni. Næsta lokakeppni Raddarinnar fer fram árið 2027 á Hvolsvelli.

Fleiri myndir má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.