Baldur leysir Herjólf af
Baldur OPF 20250911 151359
Baldur við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur verður frá áætlun næstkomandi mánudag og þriðjudag vegna bilunar í rafmótor. Unnið er að viðgerð og hefur verið gripið til bráðabirgðaráðstafana til að tryggja samgöngur milli lands og Eyja.

Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir: Að undangenginni skoðun sérfræðings á rafmótor skipsins liggi fyrir að senda þurfi mótorinn erlendis til viðgerðar. Af þeim sökum fellur niður áætlunarsigling Herjólfs milli lands og Eyja næstkomandi mánudag og þriðjudag.

Breiðafjarðarferjan Baldur mun leysa af á meðan og sigla samkvæmt gildandi áætlun Herjólfs umrædda daga. Jafnframt mun Baldur sinna gámaflutningum að næturlagi.

Gert er ráð fyrir að Herjólfur verði aftur kominn í áætlun næstkomandi miðvikudag og mun hann sigla til Landeyjahafnar um leið og aðstæður leyfa.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.