Ég skal syngja fyrir þig í Salnum

ÁtVR – Átthagafélag Vestmanneyinga í Reykjavík vekur athygli á tónleikunum Ég skal syngja fyrir þig sem fram fara í Salnum í Kópavogi 27. febrúar. Söngurinn er í höndum Einars Ágústs, sem þekktur er fyrir veru sína í Skítamóral, auk þess að hafa meðal annars sungið með Pöpunum og farið fyrir hönd Íslands í Eurovision árið […]
Snjóþungt í Eyjum

Í gær kyngdi niður snjó í Vestmannaeyjum og hafa flest tæki bæjarins unnið að snjómokstri. Í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda segir að vegna mikils snjóþunga í Vestmannaeyjum á gangstígum og gangstéttum muni taka lengri tíma en venjulega að ryðja þá og gera greiðfært fyrir gangandi vegfarendur. Á meðan á þessum aðstæðum stendur eru ökumenn beðnir […]
Fleiri erlendir starfsmenn læra íslensku í Eyjum

„Ég vildi ekki að fundir færu fram á ensku mín vegna,“ segir Pedro Afonso Pinto Coelho, starfsmaður Vinnslustöðvarinnar, í umfjöllun sem birt er á vef fyrirtækisins um íslenskunám starfsfólks hjá Visku. Þar er einnig rætt við Lilju Björgu Arngrímsdóttur, mannauðsstjóra Vinnslustöðvarinnar, og Jóhönnu Lilju Eiríksdóttur, kennara hjá Visku, sem segja aukna tungumálakunnáttu hafa jákvæð áhrif […]
Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Nú er vinna við gerð menningarstefnu fyrir Vestmannaeyjabæ á lokasprettinum. Starfshópur á vegum bæjarins hefur tekið fjölda rýnihópaviðtala við hina ýmsu hópa í samfélaginu þar sem reynt hefur verið að fá fulltrúa sem flestra hagsmunaaðila að borðinu. Til þess að gefa enn fleirum kost á að segja sína skoðun hefur verið útbúin nafnlaus viðhorfskönnun sem […]
Engin ákvörðun verið tekin um framboð

„Þetta er nú ekki alveg eins einfalt og formaður fulltrúaráðsins virðist telja, þótt efalaust búi góður vilji að baki,“ sagði Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar og oddviti H – listans, þegar hann var spurður út í þá skoðun Gríms Gíslasonar, formanns fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum, sem kom fram hér í Eyjafréttum í gær, að prófkjör gæti […]
Loðnumælingum lokið

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var síðustu vikuna við loðnurannsóknir út af Norðvesturlandi en þeim er nú lokið. Meginmarkmiðið var að kanna hrygningargöngur og magn loðnu á svæðinu. Þetta segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunnar. Yfirferðin hófst vestur af Dohrnbanka og fylgdi kantinum úti fyrir Vestfjarðamiðum allt norður að Skagagrunni (sjá mynd hér neðar). Jafnframt safnaði rannsóknaskipið […]
Útboð á áætlunarflugi til Eyja

Vegagerðin hefur auglýst útboð á rekstri áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2026–2029. Flugið gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngum við Eyjar, sérstaklega þegar veður hamlar siglingum, en í dag er einungis flogið frá byrjun desember og út febrúar. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er ekki gert ráð fyrir breytingum á því fyrirkomulagi. […]
Sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að sækjast eftir 2. sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í pistli sem hún birti á Facebook í dag þar sem hún fer yfir ákvörðun sína, reynslu sína af sveitarstjórnarstörfum og þær áskoranir sem framundan eru í rekstri sveitarfélagsins. Pistil Hildar má […]
Sigla síðdegis í Landeyjahöfn

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag eina ferð, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf., en undanfarna daga hefur ferjan þurft að sigla í Þorlákshöfn. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Landeyjahöfn kl. 20:15. Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 í fyrramálið. Á þessum […]
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru

Þann 17. febrúar 2023 tók Sigurjón Óskarsson, einn af kjölfjárfestum í Laxey, fyrstu skóflustunguna fyrir áframeldið í Viðlagafjöru. „Ég mokaði ekki miklu sjálfur, en það hefur verið mokað heilmikið síðan þá og það er í raun ótrúlegt hvað mikið er búið að gerast,“ er haft eftir Sigurjóni á facebook-síðu fyrirtækisins. Þar segir einnig að frá […]
Gul viðvörun: Norðaustan hríð

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á Suðurlandi og á Suðausturlandi. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi á miðnætti og gildir hún til klukkan 15:00 á morgun. Í viðvörunartexta segir: Gengur í norðaustan 10-18 m/s með snjókomu og slæmu skyggni. Versnandi akstursskilyrði. Í hugleiðingum veðurfræðings frá í morgun segir að í dag sé spáð […]
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra

Kostnaður við viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar árið 2025 nam 600,3 milljónum króna og var allur innan samnings, án aukaverka. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Til samanburðar nam kostnaður við dýpkun árið 2024 um 529 milljónum króna á verðlagi þess árs. Samkvæmt eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar nam heildarkostnaður vegna viðhaldsdýpkunar á tímabilinu […]
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn

Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn um helgina. Vestmannaey landaði á laugardagsmorgun og Bergey í gær. Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var hinn sáttasti. „Þetta gekk afar vel. Aflinn var mest fínasta ýsa og síðan var blanda af öðru með. Eitt […]
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt

Þessa dagana er mikið um að vera í pólitíkinni. Hér í Eyjum eru flokkar farnir að setja sig í startholurnar að vinnu við framboð sín til kosninga og eðlilega margir bæjarbúar farnir að huga að því hvaða fólk ætli að gefa kost á sér í þessi mikilvægu störf. Eftir nokkra umhugsun hef ég tekið þá […]
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna reksturs Náttúrustofu Suðurlands. Viðaukinn hljóðar upp á 5.399.000 krónur. Í breytingunni felst að framlag Vestmannaeyjabæjar til stofunnar lækkar um samtals 799 þúsund krónur. Jafnframt eru heimiluð kaup á tækjabúnaði að fjárhæð 4,6 milljónir króna umfram gildandi fjárhagsáætlun. Fram kemur að viðaukinn verði fjármagnaður með handbæru […]
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur falið sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna fýsileikakönnun á byggingu sjúkrasundlaugar sem hugsað er sem viðbyggingu við núverandi sundlaugasvæði. Jafnframt verður kostnaður við framkvæmdina metinn. Tillagan – sem lögð er fram af Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins – var áður tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar sem fól bæjarráði að útfæra framvindu könnunarinnar. […]
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings

Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar fór yfir stöðu framkvæmda í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í liðinni viku. Nokkur verkefni eru komin á lokastig en önnur eru enn í vinnslu. Meðal þess sem unnið hefur verið að eru breytingar á kaffistofu starfsmanna, afgreiðslu og skrifstofuaðstöðu. Kaffistofa og afgreiðsla eru nú á […]
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa

Mikil gleði og líf var í Sea Life Beluga Whale Sanctuary í gær, laugardaginn 14. febrúar, þegar opnunarhátíð safnsins fór fram. Fjölmargir gestir lögðu leið sína á staðinn til að taka þátt í hátíðarhöldunum og kynna sér starfsemina. Boðið var upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri og á milli klukkan 13:00 og […]
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi

Síðastliðna helgi tók Ísfélagið þátt í vörusýningunni What’s Cooking? 2026. Sýningin er ein af þremur „fish & chips“ sýningum sem Ísfélagið tekur árlega þátt í á Englandi. Vörumerki Ísfélagsins, RAMMI, er eitt þekktasta merkið fyrir sjófrystan fisk í „fish & chips“ geiranum. Sýningin var vel sótt og að vanda fékk fyrirtækið hrós fyrir gæðin. Að […]
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag

Félagið Kraftur, sem styður ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, stóð fyrir vel heppnuðum viðburði í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag. Viðburðurinn er hluti af árlegri fjáröflunar- og vitundarvakningu félagsins. Að þessu sinni var perlað nýtt „Lífið er núna“ armband, sem margir þekkja sem tákn um styrk, von og samstöðu. Markmið […]