Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum

Ný skoðanakönnun Gallup sem birt er á fréttavefnum Vísi í dag sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Vestmannaeyjum, eða 43,9 prósent. H-listinn, sem klofnaði út frá Sjálfstæðisflokknum árið 2018, mælist með 27,3 prósent fylgi, Eyjalistinn með 19,7 prósent og Miðflokkurinn með 9,2 prósent. Könnunin var framkvæmd frá 15. janúar til 2. febrúar og […]
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja, ásamt bæjarráði, fór nýverið í skoðunarferð í móttökustöð Terra við Eldfellsveg. Í kjölfarið voru forsvarsmenn fyrirtækisins boðaðir á fund framkvæmda- og hafnarráðs þar sem farið var yfir stöðu mála. Arngrímur Sverrisson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Terra, og Daníel Edward Jónsson, rekstrarstjóri í Vestmannaeyjum, sátu fundinn og svöruðu fyrirspurnum ráðsmanna. Meðal þess sem rætt […]
Að breyta samfélagi

Hvað veldur því að almennur borgari bíður fram krafta sína í þjónustu samfélagsins? Flest mál samfélagsins eru þess eðlis að þau renna nokkuð ljúft í gegnum greipar þeirra sem stjórna en síðan koma málin sem reyna á eldmóðinn hjá þeim sem að kjötkötlunum koma, málin sem sanna fyrir okkur hverjir leiðtogarnir eru. Í litlu eyjasamfélagi […]
Mikilvægur heimaleikur hjá ÍBV

ÍBV tekur á móti Stjörnunni í Olísdeild kvenna í handbolta í dag, laugardag, þegar 17. umferð deildarinnar lýkur með þremur leikjum. Leikurinn hefst klukkan 13:00 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. ÍBV í öðru sæti Eyjakonur hafa átt afar gott tímabil til þessa og sitja í öðru sæti deildarinnar með 26 stig eftir 16 leiki. Liðið hefur unnið 13 […]
Geri aðrir betur

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja með meiru vakti í vikunni athygli á einstökum viðburði í sögu ÍBV. Það hefur lengi verið eitt helsta metnaðarmál ÍBV að meistaraflokkar félagsins leiki í efstu deildum karla og kvenna – bæði í handbolta og fótbolta. Þetta tekst ekki alltaf en er sem betur fer staðan núna! „Það er afar […]
Morgan Goði skrifar undir nýjan samning við ÍBV

Morgan Goði Garner hefur skrifað undir nýjan leikmannasamning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út tímabilið 2027/28. Morgan er uppalinn í ÍBV og er nú að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki eftir að hafa farið í gegnum yngri flokka félagsins. Hann hefur sýnt stöðugar framfarir og mikinn metnað, og bindur félagið miklar vonir við framhald […]
Tilboð samþykkt í gatnagerð í Sólhlíð

Tilboð í gatnagerð og fráveituframkvæmdir í Sólhlíð voru opnuð 6. febrúar síðastliðinn. Alls bárust tvö tilboð í verkið. Gröfuþjónusta Brinks ehf. reyndist lægstbjóðandi með tilboð upp á 82.297.019 krónur. HS Vélaverk ehf. bauð 98.987.989 krónur í framkvæmdina, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 103.308.500 krónur. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að taka tilboði Gröfuþjónustu Brinks […]
Siglt í Landeyjahöfn – uppfært

Herjólfur setur stefnuna á Landeyjahöfn og siglir eina ferð til Landeyjahafnar fyrri part dagsins. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 07.00 og frá Landeyjahöfn kl. 10.45. Hvað varðar siglingar seinni partinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 í dag. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli […]
Höfnin kaupir dráttarbát

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni voru samþykkt bátakaup fyrir Vestmannaeyjahöfn. Þetta eru fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því að Lóðsinn var smíðaður en hann var afhentur Vestmannaeyjahöfn árið 1998, segir í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Báturinn er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen og er hann 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, […]
FÍV meðal bestu vinnustaða landsins – þriðja viðurkenning skólans fyrir árið 2025

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FÍV) hefur hlotið sína þriðju viðurkenningu fyrir árið 2025. Í dag var tilkynnt um að skólinn hafi lent í 3. sæti í flokki lítilla ríkisstofnana í könnuninni “Stofnun ársins 2025”. Heildareinkunn skólans var 4,791, sem telst afar góður árangur og staðfestir sterka stöðu hans meðal opinberra vinnustaða. Niðurstaðan endurspeglar öfluga menningu innan […]
Fyrsti snjór ársins loksins fallinn í Eyjum

Fyrsti snjór ársins lét loksins sjá sig í Vestmannaeyjum í dag eftir óvenju milt veðurfar það sem af er vetri. Þrátt fyrir að hávetur sé genginn í garð hefur veðrið verið með besta móti og snjóleysið því vakið athygli margra. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fangaði stemninguna í bænum í dag og má sjá myndasyrpu […]
Vestmannaeyjar fyrri tíma lifna við í Sagnheimum

Þriðji þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 14. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan verður sýnt stutt myndabrot, líkt og í fyrri tvö skiptin. Þátturinn er afar fjölbreyttur og borið verður víða niður. Elsta efnið er frá árinu 1924 og í svarthvítu en meginefnið eru litmyndir frá árunum 1950–1970, […]
Liam Daði gengur til liðs við ÍBV

Knattspyrnumaðurinn Liam Daði Jeffs hefur gengið til liðs við ÍBV en hann kemur frá Þrótti Reykjavík. Hann hefur gert fjögurra ára samning við knattspyrnudeildina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV sem birt er á vef félagsins. Liam er uppalinn í Vestmannaeyjum en foreldrar hans eru Ian Jeffs og Sigríður Ása Friðriksdóttir, sem bæði […]
Horfa til úthafseldis vestur af Vestmannaeyjum

Iceland Offshore Salmon ehf. hefur sótt um tilraunaleyfi fyrir úthafseldi á svæði vestur af Vestmannaeyjum. Jafnframt er horft til Grindavíkurdýpis suður af Grindavík, að því er fram kemur í umfjöllun Fiskifrétta. Kjartan Ólafsson, eigandi og framkvæmdastjóri Iceland Offshore Salmon ehf., er jafnframt stjórnarformaður Arnarlax og situr í stjórn Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Þá á hann hlut […]
Loðnuvertíð í hámarki

Loðnuvertíðin er nú hafin af fullum krafti og berast fregnir af góðri veiði hjá uppsjávarskipum. Nokkur skip hafa þegar komið með myndarlegan afla til lands og fleiri eru ýmist við löndun eða á leið í höfn, sem gefur til kynna kröftuga byrjun á vertíðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra Ísfélagsins, kláraði Suðurey löndun í […]
Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður

Dýpi í Landeyjahöfn er enn ekki orðið nægilegt til siglinga til og frá höfninni nema við bestu aðstæður, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að tilkynning um siglingar Herjólfs seinnipart dags verði gefin út fyrir klukkan 15:00, en fyrsta ferð dagsins var til Þorlákshafnar. Eyjafréttir hafa jafnframt heimildir fyrir því að dýpkunarskipið Álfsnes […]
Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum

Áður boðaðir aðalfundir sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verða haldnir í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í dag, fimmtudaginn 12. febrúar. Aðalfundur Eyverja verður haldinn kl. 17:00. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja verður kl. 20:00 og aðalfundur Fulltrúaráðs verður kl. 21:00. Á dagskrá fundanna eru venjuleg aðalfundarstörf, segir í tilkynningu frá stjórnum Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. (meira…)
Herjólfur til Þorlákshafnar

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fyrri part dags í dag vegna aðstæðna og dýpis í Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Þar segir jafnframt að brottför sé frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og brottför frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Tilkynning um siglingar seinni part dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00. Farþegar eru minntir […]
ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn

ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 18. umferð Olísdeild karla í kvöld klukkan 19:30 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Viðureignin gæti reynst afar mikilvæg í baráttunni um efri sæti deildarinnar en aðeins tvö stig skilja liðin að fyrir leikinn. Afturelding situr í þriðja sæti með 23 stig á meðan ÍBV er í sjötta sæti með 21 stig og getur […]
Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu

Telja má niður í stærsta partý ársins þegar Þjóðhátíðarupphitun 2026 fer fram – tónleikar sem ætlaðir eru til að kveikja í brekkusöngsandanum og hita landsmenn rækilega upp fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Með Stuðlabandið í fararbroddi og fjölbreyttan hóp vinsælla listamanna á sviði verður boðið upp á lög sem hafa markað Þjóðhátíð þessarar aldar, ásamt ómissandi sígildum smellum. Hér […]