Fullfermi á báðum togurum

bergey_opf

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er aftur að landa þar fullfermi í dag. Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Rætt er við við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við […]

Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært

lan_alfsn

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í stað Landeyjahafnar í dag vegna ófullnægjandi dýpis í síðarnefndu höfninni. Vegagerðin er ósátt með að ekki sé verið að dýpka í dag, en áætlað er að um 20 þúsund rúmmetra þurfi enn að fjarlægja og gæti verkið tekið allt að fjóra daga við hagstæð skilyrði. Óvissa er um siglingar Herjólfs […]

Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að áhersla sé á að bæta og jafna tækifæri fólks til […]

Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Sjótækni ehf. á Tálknafirði átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026 til 2029 þegar tilboð voru opnuð í dag, 10. febrúar. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpa 1,19 milljarða króna og er það umtalsvert undir kostnaðaráætlun verkkaupa. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í verkið, en gert er ráð fyrir að dýpka þurfi á bilinu […]

Loðnan berst til Eyja

Fyrsta loðna ársins hefur borist Vinnslustöðinni og er vinnsla komin á fullt. Veiðarnar hafa farið vel af stað og lofa fyrstu farmar vertíðarinnar góðu, að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is. „Gullberg fór út á föstudagskvöld og var komið á miðin á laugardag. Við hófum vinnslu strax […]

Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar

Endurfundir, góðar minningar og sterk hefð settu svip sinn á þorrablót Vinnslustöðvarinnar í liðinni viku þegar fyrrverandi starfsmenn og makar þeirra komu saman. Fram kemur í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að góð mæting hafi verið og nutu nær sjötíu gestir þess að hittast á ný, rifja upp liðna tíð og eiga saman ánægjulega kvöldstund. Sérstakan […]

Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögur fræðsluráðs um breytingar á reglum um heimgreiðslur til foreldra barna sem ekki hafa fengið leikskólapláss. Tillögurnar voru áður teknar fyrir á fundi fræðsluráðs 15. janúar og verður framvegis fylgst með áhrifum breytinganna, samkvæmt minnisblaði framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Heimgreiðslur eru ætlaðar til að bregðast við umframeftirspurn eftir leikskólaplássum, en tekjutenging […]

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars

Ákveðið hefur verið að prófkjör Sjálfstæðisflokksins, vegna uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí, verði haldið föstudaginn 13. mars nk. Kjörstaður verður í Ásgarði og þar mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla einnig fara fram dagana fyrir prófkjörsdaginn. Opnunartími verður auglýsur sérstaklega þegar nær dregur. Þeir sem áhuga hafa á að taka virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og hafa […]

Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg

Umf 20260209 145749

Töluvert tjón varð á bifreið þegar hún hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg fyrr í dag. Bílnum var ekið vestur götuna þegar ökumaður missti stjórn með þeim afleiðingum að hann fór út af akbrautinni og endaði á girðingunni. Að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, urðu engin slys á fólki, en bifreiðin er mikið […]

Siglt á flóði til Landeyjahafnar

herjolfur_lan_062020

Herjólfur getur nú siglt á flóði og við góðar aðstæður til Landeyjahafnar. Í tilkynningu frá skipafélaginu segir að ferjan sigli til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag samkvæmt eftirfarandi áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 19:30 (Áður ferð kl. 16:00) og 21:30. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 20.30 (Áður ferð kl. 19:45) og kl. 22:30. Á morgun, mánudag siglir […]

Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið

Thelma Björk Gísladóttir, aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, flutti hátíðarræðu við afhendingu Fréttapýramídanna í Eldheimum. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að staldra við, sýna þakklæti og gera sýnileg þau framlög sem styrkja samfélagið til lengri tíma.  Ræðu sína hóf Thelma á orðinu „takk“ og minnti á að viðurkenning og þakklæti skipti máli, bæði fyrir […]

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt samhljóða að setja 2. og 3. hæð fasteignarinnar að Ægisgötu 2 í söluferli. Á fundi ráðsins fór Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs yfir verðmat sem unnið var fyrir eignina. Húsnæðisnefnd sveitarfélagsins hafði áður lagt til að þessir hlutar fasteignarinnar yrðu seldir. Fram kemur í fundargerð að skila þurfi inn tilboðum […]

Eyjaliðin í eldlínunni í dag

Handbolti (43)

Áfram heldur keppnin í Olísdeildunum í handbolta í dag þegar bæði lið ÍBV verða í eldlínunni. Karlalið ÍBV sækir Hauka heim í toppslag á meðan kvennaliðið heldur norður til Akureyrar þar sem KA/Þór bíður. Erfiður útileikur hjá körlunum Karlalið ÍBV situr í sjötta sæti Olísdeildarinnar með 19 stig eftir 16 leiki og hefur verið á […]

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Mælingar á dýpi í Landeyjahöfn fyrr í dag leiddu í ljós að aðstæður eru ekki nægilega góðar til siglinga. Því siglir Herjólfur áfram til Þorlákshafnar og fór hann seinni partinn í dag þangað samkvæmt áður útgefinni áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 16:00 og brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45. Ákvörðun um siglingar á morgun, sunnudag, […]

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita ÍBV íþróttafélagi sérstakt framlag að upphæð 5 milljónir króna vegna tjóns sem félagið varð fyrir í tengslum við tafir á framkvæmdum við Hásteinsvöll og vegna óveðurs sem hafði áhrif á Þjóðhátíð. Málið er framhald af umræðu frá fyrri fundi bæjarráðs þar sem fjallað var um óskir ÍBV um aðstoð […]

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum

Fyrsti loðnufarmur vertíðarinnar barst til Vestmannaeyja í morgun þegar uppsjávarskipið Sigurður VE 15 lagðist að bryggju með ríflega 900 tonna afla. Sigurður hóf veiðar í gær ásamt Heimaey VE, skammt undan Hornafirði. Sigurður fékk um 900 tonn en Heimaey um 800 tonn og er nú að landa á Þórshöfn. „Hrognafyllingin var 12–13 prósent og hrygnuhlutfallið […]

Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni

Töluverðar framkvæmdir standa nú yfir í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og miðar verkinu vel áfram. Samkvæmt upplýsingum á vef Vestmannaeyjabæjar eru bæði tæknilegar endurbætur og breytingar á aðstöðu langt komnar og stefnt að verklokum á næstu vikum. Uppsetning sandsía og tilheyrandi tengingar eru langt komnar og stefnt er að því að ljúka framkvæmdum um næstu mánaðamót, samkvæmt […]

Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum

Skák Lagf 25

Nú eru þrjár umferðir eftir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026. Mótið hófst 17. janúar sl. og eru keppendur tíu talsins. Teflt er í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9. Alls verða tefldar níu umferðir og er umhugsunartími 60 mínútur á skák með 30 sekúndna viðbót á hvern leik. Hver umferð tekur yfirleitt 1,5–2,5 klukkustundir. Skákstjóri er […]

Yfir 90% íbúa ánægðir

Yfir 90% íbúa Vestmannaeyja eru ánægð með bæinn sem búsetustað, samkvæmt tilkynningu frá bæjaryfirvöldum. Þetta kemur fram í þjónustukönnun Gallup sem framkvæmd var dagana 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026 og hafði það markmið að meta ánægju með þjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins, bera saman niðurstöður og fylgjast með þróun milli ára. Samkvæmt niðurstöðunum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.