Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn

Sæunn Magnúsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Hún greinir frá ákvörðuninni í tilkynningu þar sem hún segist telja að þar fari saman þau gildi og sú sýn sem hún vilji sjá endurspeglast í bæjarmálum Vestmannaeyja. Sæunn hefur verið áberandi í sveitarstjórnarmálum undanfarin ár og gegnt fjölda trúnaðarstarfa […]
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn

Lóðsinn stefnir á að sigla til Landeyjahafnar eftir hádegi á morgun, föstudag, til að mæla dýpið í höfninni samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að dýpkunarskipið Álfsnes sé væntanlegt annað kvöld og er gert ráð fyrir að dýpkun geti hafist um leið og aðstæður leyfa. Horfur fyrir siglingar næstu daga eru nokkuð góðar […]
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur einstaklingum í tengslum við rannsókn á andláti á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Lögreglustjóri kærði úrskurðinn til Landsréttar sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði gæsluvarðhalds séu ekki lengur fyrir hendi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá […]
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“

Þann 24. apríl næstkomandi fer tónlistarhátíðin Hljómey fram í Vestmannaeyjum. Þetta er fjórða árið í röð sem þeir félagar Birgir Nielsen og Guðmundur Jóhann Árnason standa að hátíðinni, sem hefur fest sig í sessi sem einn hlýlegasti og persónulegasti tónlistarviðburður landsins. Þótt listamennirnir á sviðinu séu í sviðsljósinu, er það langt frá því að vera […]
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu

Ég verð að segja að ég óttast það að umræða um skólamál, eins og hún hljómar stundum úr sal Alþingis, geri ekki það gagn sem henni er ætlað að gera. Ég efast ekki um að þau sem gagnrýna skólakerfið, gera það af góðum hug. Þau vilja að nemendum gangi betur. En margt af því sem […]
Eyjarnar landa í Eyjum í dag

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE eru báðir að landa í Eyjum í dag. Bergey landaði einnig í Grindavík á laugardaginn. Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar í dag og eru þeir spurðir um gang veiðanna. Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey lét nokkuð vel af sér. „Við lönduðum fullfermi í Grindavík á laugardaginn og […]
Útför: Þórunn Pálsdóttir

(meira…)
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra

Ívar Karl Sigurðsson hefur tekið við stöðu verslunarstjóra Krónunnar í Vestmannaeyjum og hefur þegar hafið störf. Ívar hefur starfað hjá Krónunni í um átta ár og gegnt hinum ýmsu störfum innan fyrirtækisins. Hann hóf feril sinn í mjólkurkælinum í Krónunni í Mosfellsbæ og hefur byggt upp víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu og daglegu starfi verslana. […]
Herjólfur slær met

Árið 2025 var metár í starfsemi Herjólfs, bæði þegar kemur að farþegafjölda og flutningi farartækja. Framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., Ólafur Jóhann Borgþórsson, segir árið hafa gengið afar vel og horfur fyrir nýbyrjað ár vera jákvæðar. Spurður hvort þetta sé í takti við þá þróun sem hófst fyrir þremur til fjórum árum, þegar farið var að markaðssetja […]
Aglow samvera í kvöld

Aglow samvera verður í kvöld miðvikudaginn 4. febrúar kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við áttum góðan fund í byrjun ársins og var eftirvænting og gleði meðal okkar. Við byrjum á því að fá okkur hressingu og eiga samfélag og syngjum svo saman. Þóranna er nýkomin af Aglow ráðstefnu, sem var haldin á Ítalíu, þar um […]
Suðurlandsslagur í Eyjum

Olís deild karla fer aftur af stað í dag eftir hlé og verða þrír leikir í kvöld. Selfoss kemur í heimsókn í Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og ljóst að um sannkallaðan Suðurlandsslag er að ræða. Leikmenn ÍBV eru sagðir klárir í slaginn og allt bendir til þess að hart verði […]
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað

Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur sem voru handteknir í gær í tengslum við andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Frá þessu er greint á fréttavefnum mbl.is. Þar er haft eftir Jóni Gunnari Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Suðurlandi að til standi að kæra niðurstöðuna til […]
„60 milljónir eru þeim ofviða“

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag og sagði samgöngumál Vestmannaeyja enn vera í óviðunandi stöðu. Í ræðunni benti hann á að farþegaferjan Herjólfur sigli nú til Þorlákshafnar þar sem dýpið í Landeyjahöfn sé ekki nægjanlegt. Vestmannaeyingar þurfi að búa við það nánast á […]
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði

Breska sjávarútvegsblaðið Fish Focus heimsótti nýverið Ísland þar sem blaðamenn miðilsins kynntu sér íslenskan sjávarútveg, samfélög og fyrirtæki sem starfa í greininni. Í ferðinni var sérstök áhersla lögð á Vestmannaeyjar, þar sem sjávarútvegur hefur mótað atvinnulíf og mannlíf um áratugaskeið. Á vef Vinnslustöðvarinnar er stiklað á stóru úr umfjöllun blaðsins. Í ítarlegri umfjöllun blaðsins dvelur […]
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum

Miðflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ákvörðunin var tekin í framhaldi af fjölsóttum stjórnmálafundi flokksins í Eyjum fyrr á árinu og samkvæmt tilkynningu einnig vegna ákalls frá bæjarbúum. Kynning á frambjóðendum mun hefjast á næstu dögum, en jafnframt er áhugasamt fólk hvatt til að hafa samband við Miðflokksdeild Vestmannaeyja. […]
Kyrrðarbæn í dag

Haustið 2022 var haldið námskeið um kyrrðarbæn í Eyjum og var góð þátttaka. Eftir það hittumst við vikulega í Landakirkju. En undanfarið höfum við ekki komið saman og nokkrir hafa saknað þessara stunda. En núna ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 17.00 í Landakirkju og við byrjum þriðjudaginn 3. febrúar. Við komum saman rétt […]
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!

Nú eru næstum fjögur ár eru liðin frá því að Eyjalistinn hóf sitt annað samfellda kjörtímabil í meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Höfundur þessarar greinar situr í fjórða sæti á núverandi lista Eyjalistans. Á kjörtímabilinu hefur greinarhöfundur setið í fjölskyldu- og tómstundaráði sem og verið varabæjarfulltrúi listans. Þau verkefni sem standa upp úr í fjölskyldu- og […]
Hvert siglir Herjólfur í dag

Enn einu sinni er ófært í Landeyjahöfn vegna dýpis og Herjólfur því á leið til Þorlákshafnar. Á meðan þetta er í gangi þá bíður Álfsnesið í höfn eftir því að aðstæður verði nógu góðar svo skipið geti hafist handa við dýpkun. Þetta er gömul saga sem við Eyjamenn höfum heyrt allt of oft. Við þessar […]
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka

Fimm ungir keppendur frá Pílufélagi Vestmannaeyja vöktu athygli á DARTUNG-móti sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina, þar sem alls 76 keppendur tóku þátt. Fjórir þeirra náðu inn á stigalista mótaraðarinnar eftir sterka frammistöðu. DARTUNG er árleg mótaröð í pílukasti sem samanstendur af fimm mótum. Keppendur safna stigum á 12 mánaða rúllandi stigalista sem gefur […]
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust

Sennilega hefur aldrei verið eins mikið í gangi og jafn mikil verðmætasköpun að eiga sér stað á einu atvinnusvæði á Íslandi. Nýjasta yfirlýsing um mikilvægi stórskipakants vegna fóðurframleiðslu er enn eitt dæmið. „Bent er á að uppbygging hjá Laxey, ásamt viljayfirlýsingu um að Vestmannaeyjar geti orðið þjónustuhöfn fyrir hugsanlegt úthafseldi, styrki rök fyrir því að […]