Tími til kominn að taka næsta skref

Halldóra Kristín Ágústsdóttir hefur starfað við fasteignasölu í Vestmannaeyjum frá árinu 2021 og byggt sér upp sterka stöðu á markaðnum á þeim tíma. Nú stendur hún á tímamótum í ferlinum og hefur ákveðið að fara sjálfstætt með eigin fasteignasölu undir nafninu Eyjaeignir. Nafnið lá beinast við Að sögn Halldóru lá nafnið beinast við. „Ég var búin […]
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir

Þegar stórar ákvarðanir eru teknar um framtíð Íslands vel ég að horfa ekki aðeins á tölur, slagorð eða skammtímapólitík. Ég horfi á börnin mín. Ég á þrjú börn, þrjú stjúpbörn og tvö barnabörn – alls átta ung líf sem munu erfa þær ákvarðanir sem við tökum í dag. Fyrir þeirra hönd vil ég vanda mig. […]
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna breyttra hæðarskilmála við Vesturveg 6 og vísað málinu til bæjarstjórnar. Tillagan var grenndarkynnt og bárust tvær formlegar athugasemdir frá íbúum við Vesturveg 5 og Vesturveg 10, sem leggjast gegn breytingunni. Breytingin felur í sér að hámarkshæð húss á lóðinni […]
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum

Á morgun verður haldið áfram með sýningarröðina Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma þar sem sýndar eru lifandi myndir frá Vestmannaeyjum, að mestu teknar á árunum 1950–1970. Myndefnið er afar fjölbreytt, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Að þessu sinni má meðal annars sjá efni frá Þjóðhátíð, úr leikskólum, af listsýningum, frá bryggjulífi, skátastarfi og fleiru. […]
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör

Fyrir utan veðrið og fjölda klukkustunda þar sem dagsbirtan lætur sjá sig, er janúar sennilega mest spennandi mánuður ársins í Vestmannaeyjum. Um leið og landsliðið í handbolta byrjaði Evrópumótið þá hófst á sama tíma loðnumæling á vegum Hafrannsóknarstofnunarinnar og útgerða. Við eigum jú Elliða sem lykilmann á handboltavellinum, Kára Kristján í Stofunni með handboltaspjallið og […]
Skipar sjö manna fagráð

Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hefur skipað nýtt sjö manna fagráð til næstu þriggja ára. Fram kemur á heimasíðu stofnunarinnar að hlutverk fagráðsins sé að vera ráðgefandi vettvangur um faglega þróun og gæði þjónustu innan HSU. Ráðið skal stuðla að framþróun og faglegri umræðu þvert á starfsemi stofnunarinnar, með hag sjúklinga og samfélagsins að leiðarljósi. […]
Skráning stendur yfir í Lífshlaupið

Skráning er í fullum gangi fyrir Lífshlaupið 2026. Keppnin stendur yfir frá 1. – 28. febrúar. Árið 2025 voru 18.606 virkir þátttakendur í Lífshlaupinu og miðað við áhugann þá stefnir í bætingu. Á meðan að Lífshlaupið stendur yfir eru þátttakendur hvattir til að deila myndum af sinni hreyfingu í gegnum heimasíðuna og/eða á Facebook eða […]
Dýpi ekki nægjanlegt í Landeyjahöfn — Herjólfur fer til Þorlákshafnar

Eftir siglingar dagsins til Landeyjahafnar er ljóst að dýpið er ekki nægjanlegt eins og vonast var til. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir enn fremur að Herjólfur muni því sigla til Þorlákshafnar á morgun, föstudag samkvæmt eftirfarandi áætlun fyrri hluta dags: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45. Varðandi […]
Andlát: Þórunn Pálsdóttir

Í gær lést móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangaamma, Þórunn Pálsdóttir frá Þingholti í Vestmannaeyjum á 98. aldursári. Síðustu árin var hún á Hraunbúðum þar sem hún naut góðrar aðhlynningar. Eiginmaður Þórunnar, Grétar Þorgilsson lést þann 31. maí árið 2020. Á meðan heilsan leyfði var hún virk í starfi Oddfellow, fór hún í sund […]
Aukum loðnuveiðar

Það er ekki skoðun heldur staðreynd að afrakstur núverandi ráðgjafar í loðnu hefur verið afar rýr en í svari við fyrirspurn minni á þingi í vetur segir orðrétt: “.. meðalloðnuafli á árabilinu 1985–2015 var um 765 þúsund tonn en árin 2016–2025 var hann 191 þúsund tonn.” Það að aflinn sé nú að jafnaði um fjórðungur […]
Eyjagöng gera samninga um jarðfræðirannsóknir

Eyjagöng ehf. hafa náð mikilvægum áfanga í undirbúningsferli jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja með því að ganga til samninga við verkfræðistofuna Eflu og verkfræði- og jarðfræðistofuna Völuberg. Fyrirtækin munu sameiginlega annast jarðfræðiþjónustu vegna kjarnaborana og fýsileikamats verkefnisins. Ákvörðun um samstarfið var tekin að loknu vönduðu valferli og í nánu samráði við Vegagerðina. Í tilkynningu frá […]
Dýptarmæling í Landeyjahöfn í dag – uppfært

Lóðsinn stefnir á að sigla til Landeyjahafnar eftir hádegi í dag til þess að framkvæma óformlega dýptarmælingu í höfninni með von um að sjá hver staðan er á dýpinu í höfninni. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að komi mælingarnar vel út stefni Herjólfur á að sigla þangað seinnipartinn í dag, kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum […]
Loðnuráðgjöf hækkuð í 197 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun hefur lokið við úrvinnslu niðurstaðna loðnumælinga sem fóru fram dagana 19.-25. janúar 2026. Samkvæmt gildandi aflareglu strandríkja, sem byggir á niðurstöðum haustmælingar árið 2025 og þessarar vetrarmælingar, leggur Hafrannsóknastofnun til að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 197 474 tonn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunnar. Loðnan dreifð yfir stóran hluta […]
Eyjafréttir í nýjum búningi á nýju ári

Undanfarin tvö til þrjú ár hefur verið unnið að uppfærslu og endurnýjun á öllum kerfum og hugbúnaði Eyjasýnar, sem gefur út Eyjafréttir og heldur úti fréttasíðunni eyjafrettir.is. Nú er ákveðnum áfanga náð sem skilar öflugri þjónustu við áskrifendur, en í síkvikum heimi fjölmiðla og tækni má ekki sofna á verðinum. Þess vegna verður haldið áfram […]
ÍBV tekur á móti Fram í kvöld

Í kvöld verður 15. umferð Olísdeildar kvenna spiluð og hefst hún með leik ÍBV og Fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 18:00. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Eyjakonur hafa átt gott tímabil til þessa, unnið 11 af 14 leikjum, og verið eitt markahæsta lið deildarinnar […]
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf

Þess er nú beðið með talsverðri eftirvæntingu að Hafrannsóknastofnun gefi út ráðgjöf sína varðandi aflaheimildir í loðnu. Búist er við að það verði gefið út á morgun, fimmtudag. Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins er nú verið að græja skipin fyrir loðnuvertíðina sem er í vændum. „Við erum að taka loðnunæturnar um borð í Sigurð og […]
KR-ingur á láni til ÍBV

Hinn ungi og efnilegi knattspyrnumaður Róbert Elís Hlynsson hefur gengið til liðs við ÍBV. Róbert verður á lánssamningi frá KR út keppnistímabilið 2026. Hann er 18 ára gamall miðjumaður sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með KR á undirbúningstímabilinu. Róbert er fjölhæfur leikmaður sem leikur aðallega á miðsvæðinu en getur einnig leyst framar […]
Fylgi flokkanna í Eyjum

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí. Eyjafréttir fengu Maskínu til að gera skoðanakönnun í nóvember 2024. Þar var Fyrir Heimaey með mesta fylgið meðal þeirra sem tóku afstöðu, eða 40,7%, og Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 40% fylgi. Eyjalistinn var með 18,7% fylgi. Óákveðnir voru hins vegar 30%. Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Eyjafréttir hefur undir höndum skoðanakönnun […]
Komu inn vegna veðurs

Togarar Síldarvinnslusamstæðunnar hafa landað í sínum heimahöfnum síðustu dagana. Jóhanna Gísladóttir GK landaði í Grindavík á laugardag, Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Vestmannaeyjum í gær og Gullver NS er að landa á Seyðisfirði í dag. Á fréttasíðu fyrirtækisins er farið yfir veiðiferðir skipanna. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttir, lét vel af […]
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi

Árlegur tekjumunur á skerðanlegum flutningi og forgangsflutningi raforku nemur um 140 milljónum króna eftir að tveir nýir sæstrengir voru lagðir til Vestmannaeyja, en með þeim varð raforkuöryggi í Eyjum með því besta sem gerist á landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsnet vegna umræðu um aukinn raforkukostnað fyrirtækja á borð við Vinnslustöðina og Herjólf. […]