Hörkuleikir í 8-liða úrslitum

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitum Coca-cola bikarsins í handbolta. ÍBV átti þrjú lið í pottinum, kvennalið ÍBV mætir ÍR á heimavelli. Afturelding kemur í heimsókn til strákanna og ÍBV 2 mætir Haukum. Leikirnir munu fara fram í febrúar, það er því til mikils að hlakka fyrir handboltaunnendur. (meira…)

Ernir ætlar að mæta eftirspurn á ferðum í tengslum við þrettándann

Flugfélagið Ernir hefur sett upp aukaflug á föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn til að koma til móts við þá eftirspurn sem er að myndast v/ þrettándagleðinnar í Eyjum. Endilega bóka tímanlega á ernir.is og einnig er hægt að setja sig á biðlista ef fullt er í öll flugin. Aukaflug sem sett hafa verið upp fyrir utan […]

Verk eftir Jóhönnu Erlendsdóttur

Á laugardaginn, 10. janúar, munu starfsmenn Safnahúss bjóða upp á dagskrár við hvers manns hæfi. Um er að ræða þrjá viðburði sem taka við hver af öðrum og því margs að njóta í Safnahúsinu. Blaðamanni er bent á að þessir 3 viðburðir til samans standa ekki lengur en venjulegur knattspyrnuleikur og því um að gera […]

Eydís ráðin rekstrarstjóri HSU í Eyjum

Eydís �?sk Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem rekstarstjóri á starfstöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) í Vestmannaeyjum frá 1. janúar 2015. Eydís mun annast dagleg umsjón mannauðs og verkefna, öðrum en þeim er heyrir beint undir hjúkrun eða lækningar og stýra eftirliti með kostnaði í rekstri starfstöðvar í samvinnu við stjórnendur. Einnig mun hún taka þátt í […]

Ekkert blað í dag

Fall er faraheill sagði einhver, einhvern tímann. Við skulum vona að það sé raunin hjá okkur. En blað Eyjafrétta sem dreifa átti til áskrifenda í dag er prentað og klárt hjá Landsprent en eins og áður hefur komið fram munu þeir prenta blaðið fyrir okkur framvegis. Blaðið er farið í póst til áskrifenda okkar á […]

Nóg að gera hjá Blítt & Létt

Eyjakvöld NR. 55 fimmtudagskvöld 8. janúar á Kaffi Kró. Ekki missa af Blítt & Létt flokknum í sannkölluðu �?rettándastuði 😉 Sérstakur gestur Sæþór Vídó, húsið opnar kl. 20 og Eyjakvöldið hefst kl. 21:00 Mættu snemma því síðast varð uppselt! Hlökkum til að sjá ykkur :)) Laugardagur 10.jan �?? �?RETTÁNDAGLEÐI BLÍTT OG L�?TT Í H�?LLINNI og […]

Opna skyndibitastað í Árósum

Helgi Kristinn Halldórsson er annar tveggja Íslendinga í sex manna hópi sem opnaði nýlega mexíkóskan skyndibitastað í Árósum í Danmörku. Helgi Kristinn er fæddur í Vestmannaeyjum en hann er sonur Halldórs Inga Guðmundsson og �?nnu �?óru Einarsdóttur, sem búa nú á Selfossi. Helgi Kristinn er lærður kokkur og vann eftir útskrift á Perlunni og Hótel […]

Sameiginleg upplifun gerir samfélagið sérstakt

�??�?g velti því fyrir mér hvað það er sem gerir samfélag eins og Vestmannaeyjar aðlaðandi,�?? sagði Páll Magnússon í ræðu sinni við afhendingu Fréttapýramídanna í gær, en hann var heiðursgestur hinnar árlegu verðlaunahátíðar Eyjafrétta. Páll sagði skýringuna að hluta til vera skringilegheit og sérvisku sem Eyjamenn rækta með sér og gera mikið úr. �??Við ýtum […]

Endurskoða þarf dýpkunaraðferðir

�?að hefur í nokkurn tíma legið fyrir að endurskoða þurfi ýmislegt sem snýr að höfninni sjálfri og þá ekki síst því sem snýr að dýpkunaraðferðum. �?ær dýpkunaraðferðir sem beitt hefur verið eru ekki nægilega áreiðanlegar og árangursríkar. Samhliða smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju verður að kappkosta að gerðar verði þær breytingar sem þörf er á í höfninni […]

Loðnuvertíðin hafin

Áhöfnin á Sigurði VE hóf loðnuveiðar í gærkvöld norður af landinu. Svanur Gunnsteinsson vélstjóri skrifaði á Facebook síðu sína: �??Trollið komið í hafið og vonandi verða einhver kvikindi á ferðinni.�?? Um hádegisbil í gær var Sigurður VE norður af Melrakkasléttu. Heimaey VE er einnig við loðnuleit norðaustur af landinu. �?á hafa skipin Aðalsteinn Jónsson SU […]

Kristín Erna valin í A-landsliðið

Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur verið valin til æfinga með A-landsliði kvenna í knattspyrnu, að því er kemur fram á vef ÍBV. Hún lék 16 leiki með ÍBV í sumar og gerði í þeim 7 mörk. Kristín Erna missti af öllu leiktímabilinu 2013 vegna krossbandaslita en lagði hart að sér eftir það að ná sínum fyrri […]

Myndband: Afhending Fréttapýramídanna

Í stuttri samantekt frá afhendingu Fréttapýramídanna sem fór fram í Kiwanishúsinu í dag má meðal annars sjá hversu hrærð Sjöfn Benónýsdóttir varð þegar tilkynnt var að hún og eiginmaður hennar, Gísli Sigmarsson, væru Eyjamenn ársins. Sönghópurinn Blítt og létt hlaut Fréttapýramídann fyrir störf að menningarmálum. Fréttapýramídann fyrir störf að íþróttum hlaut Arnar Pétursson, fyrrverandi þjálfari […]

Lítið unnið við dýpkun í desember

Ekki hefur verið reynt að halda nægu dýpi í Landeyjahöfn fyrir Herjólf undanfarnar vikur og því var minnsta dýpi hafnarinnar minna en nýr Herjólfur hefði ráðið við. �?etta segir Sigurður Áss Grétarsson forstöðumaður siglingasviðs Vegagerðarinnar í samtali við R�?V. Fram kom í hádegisfréttum að dýpi Landeyjahafnar hafi aðeins mælst 1,9 metrar fyrir 10 dögum, en […]

Sjöfn og Gísli Eyjamenn ársins

Í dag voru Fréttapýramídarnir afhentir og var þetta í 24. sinn sem þær viðurkenningar eru afhentar. Athöfnin fór fram í Kiwanishúsinu að viðstöddum fjölda gesta. Fréttapýramída fyrir einstaka umfjöllun um landsbyggðina í þáttum sínum fékk Kristján Már Unnarsson á Stöð 2. Afhendingin fór fram í höfuðstöðvum Stöðvar 2 þar sem Páll Magnússon og �?orsteinn Gunnarsson […]

Olía hreinsuð af Nausthamarsbryggjunni

Nausthamarsbryggja var þrifin að norðanverðu í dag eftir óhapp sem varð við dælingu úrgangsolíu úr Sigurði VE síðastliðið föstudagskvöld. Gestur Guðjónsson, öryggis- og umhverfisfulltrúi Olíudreifingar, kom til Eyja til að ræða við starfsmenn Vestmannaeyjahafnar um málið og skoða aðstæður. Gestur segir í samtali við Eyjafréttir að eitthvað af olíu hafi lekið í höfnina, óljóst sé […]

Kristján Már verðlaunaður fyrir landsbyggðarfréttir

Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, hlaut Fréttapýramídann fyrir árið 2014 fyrir fréttir sínar af landbyggðinni. �?tsendarar Eyjafrétta, Páll Magnússon og �?orsteinn Gunnarsson, afhentu Kristjáni pýramídann í myndveri fréttastofu Stöðvar 2. Árleg afhending Fréttapýramída fór fram í Vestmannaeyjum í dag en þetta er í fyrsta sinn sem veitt eru verðlaun fyrir fréttaumfjöllun af landsbyggðinni. Fleiri […]

�??�?etta er dá­lítið drama­tíserað�??

�??�?etta er dá­lítið drama­tíserað en það er mjög grunnt þarna,�?? seg­ir Sig­urður Áss Grét­ars­son, for­stöðumaður hafn­asviðs Vega­gerðar­inn­ar, í sam­tali við mbl.is. Til­efnið er frétt Eyja­f­rétta í morg­un um að svo grunnt sé í Landeyja­höfn um þess­ar mund­ir að eng­ar ferj­ur gætu kom­ist þar inn og þar með talið fyr­ir­hugaður nýr Herjólf­ur sem rætt væri um […]

Bjartsýnir á að loðnuveiði hefjist í kvöld

Sigurður VE og Heimaey VE héldu um helgina til loðnuveiða norður og austur af landinu. �?egar Eyjafréttir náðu tali af �?orbirni Viglundssyni á Sigurði VE í gær var skipið statt um 100 sjómílur norður af Langanesi. Heimaey hefur haldið sig úti við norðaustanvert landið. �?orbjörn segir nú að Sigurður sé staddur 50 sjómílur norður af […]

Ætlarðu ekkert að fara að hleypa uppá þig!

Nú er ég búin að vera tengdamömmulaus í  eitt ár. Það voru ekki liðnir nema örfáir mánðuðir þegar ég heyrði afa minn ræða við dóttur mína um mikilvægi þess að ég fyndi mér öryggi í lífinu. Mamma hennar þyrfti bara að eignast góðan mann! Ég benti bæði dóttur minni og afa á það að hingað […]

Landeyjahöfn of grunn fyrir nýjan Herjólf

Herjólfur hefur siglt til �?orlákshafnar undanfarið þar sem dýpi hefur ekki verið nægjanlegt í Landeyjahöfn. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er beðið eftir tækifæri til að hefja dýpkun en veður hefur verið rysjótt og sjólag erfitt við höfnina. Síðast var dýpi mælt við Landeyjahöfn 27. desember síðastliðinn. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta mældist mesta dýpi á milli hausa […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.