Í sjálfheldu úti í Ystakletti

Það er svo sannarlega ekki fyrir lofthrædda að halda úti fjárbúskap í klettum Vestmannaeyja eins og sést á meðfylgjandi myndbandi sem Halldór B. Halldórsson tók af björgunaraðgerðum úti í Ystakletti í gær. “Hrúturinn Guðmundur Alfreðsson var búinn að vera í sjálfheldu undir Brauðtorfunni í Ystakletti í 15 daga. Ekkert lá á að hjálpa honum upp […]

�?rjú skip við dýpkun í Landeyjahöfn

Nú eru þrjú grafskip, Dísa, Sóley og Perla, í og við Landeyjahöfn þar sem unnið er að dýpkunarframkvæmdum. Ekkert hefur verið hægt að dýpka þar síðan í síðustu viku enda tíðin verið afskaplega slæm. Nú horfir hins vegar betur við og er spáin nokkuð hagstæð næstu daga fyrir dýpkunaframkvæmdir. (meira…)

Ivana yrði sótt eða sett á lista hjá Interpol

„Það er ekkert nýtt komið fram í þessu máli og ég er mjög svartsýnn á að það leysist farsællega,“ sagði Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV, í samtali við Morgunblaðið í gær. Vefur Eyjafrétta sagði frá því um helgina að Ivana Mladenovic, serbnesk handknattleikskona sem leikur með ÍBV, yrði væntanlega að fara úr landi í dag […]

Fagur , fagur fiskur í sjó

Á síðasta ári, 2012, skilaði sjávarútvegurinn 42,5% af öllum útflutningstekjum þjóðarinnar. Hlutfallslegt mikilvægi sjávarútvegsins fyrir þjóðarbúið hefur ekki verið jafnmikið um árabil. Engin þjóð innan OECD reiðir sig í jafnríkum mæli á sjávarútveg sem atvinnugrein og Íslendingar. Óhætt er að fullyrða að engin atvinnugrein hafi átt ríkari þátt í að koma okkur áleiðis í gegnum […]

Mladenovic ekki meira með?

Svo gæti farið að línumaðurinn sterki Ivana Mladenovic hefði leikið sinn síðasta leik fyrir kvennalið ÍBV í handbolta. Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar staðfesti það í samtali við Eyjafréttir.is en leikmaðurinn er ekki með landvistarleyfi og ef fram heldur sem horfir, gæti hún þurft að yfirgefa landið á mánudaginn. (meira…)

Hermann rekinn af velli

ÍBV tapaði í dag í miklum markaleik í Lengjubikar karla þegar liðið lék gegn FH. FH skoraði fyrsta mark leiksins en Eyjamenn jöfnuðu og komust yfir. Hafnfirðingar jöfnuðu metin 2:2 en aftur komust Eyjamenn yfir. Hins vegar fékk Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV sem lék með liðinu, að líta rauða spjaldið og skömmu síðar fékk Davíð […]

Er eyðilagður maður

Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV var eðlilega heldur þungur á brún þegar blaðamaður Eyjafrétta.is hitti á hann eftir leik. Hann telur ekki að Herjólferð hafi haft áhrif á leikmenn fyrir leik, né að spennustig hafi verið of hátt hjá þeim í leiknum. (meira…)

Bikardraumurinn fauk út í veður og vind

Bikardraumur ÍBV-liðs kvenna fauk út í veður og vind í dag, þegar liðið steinlá fyrir Val í Laugardalshöllinni í dag. ÍBV byrjaði leikinn ágætlega og liðið virtist vel stemmt. En það var stutt gaman skemmtilegt því Valur tók síðan öll völd á vellinum. Valur komst í 7-3 og hafði yfirburðastöðu í hálfleik, 16-9. Eitthvað hefur […]

Erum á uppleið en þær á niðurleið

Um helgina verður risahelgi í íslenska handboltanum, því þá fara fram undanúrslit og úrslit í bikarkeppnum karla og kvenna. Allir leikirnir fara fram í Laugar­dalshöll og reyndar eru þeir fleiri leikirnir því yngri flokkarnir spila líka á sama stað, sömu helgi. Kvennalið ÍBV leikur gegn Val í undanúrslit­um í dag, laugardag klukkan 13:30 en í […]

Haldið upp á �?skulýðsdaginn með Country Gospel í Landakirkju

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður Gospelmessunni með Kór Landakirkju, sem átti að verða 17. mars, frestað um óákveðinn tíma en í stað þess ætlar Æskulýðsfélag Landa kirkju að standa fyrir Country Gospel messu nk. sunnudag 10. mars kl 20:00. Messan verður með svipuðu sniði og Johnny Cash messan sem haldin var í október sl. og Elvis […]

Hvað finnst þér um að auka fiskveiðar?

Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sett fram nýja stefnu í fiskveiðstjórnun. Áratugalöng tilraun er mjög umdeild og hefur skapað mikið ósætti og óánægju meðal þjóðarinnar. Afli hefur stöðugt minnkað þrátt fyrir öll vísindi og ráðgjöf Hafró og ekkert er í sjónmáli annað en áframhaldandi óvissa og óánægja. (meira…)

Skálmöld í kvöld í Höllinni

Í kvöld, klukkan 22:00 hefjast tónleikar með rokksveitinni Skálmöld í Höllinni. Skálmöld leikur rokk af bestu gerð og textarnir eru harla óvenjulegir enda fjalla þeir flestir um norræna goðafræði og íslenska fornsögu. Sveitin hefur gefið út tvær plötur, Baldur og Börn loka. Hér að neðan má hlusta á eitt laga Skálmaldar. (meira…)

Enn fjúka þakplötur í Eyjum

Þótt vindhraðinn í Eyjum hafi eitthvað minnkað í morgun, þá er enn bálhvasst og fóru vindhraðinn yfir 40 metra á sekúndu á Stórhöfða klukkan sjö í morgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út rétt í þessu þar sem þakplötur voru að fjúka en björgunarmenn hafa verið að störfum síðustu tvo sólarhringa. Stöðugur stormur hefur verið í […]

ÍBV mætir Portsmouth

Á vefnum Fótbolti.net er sagt frá því að knattspyrnulið ÍBV sé á leið í æfingaferð 9. til 17. apríl næstkomandi. Undanfarin ár hefur verið farið til Spánar en nú á að halda sig norðar í Evrópu og er ferðinni nú heitið til Englands. Þar mun liðið dvelja í Portsmouth og mun m.a. leika æfingaleik gegn […]

Rafmagnskassar gefa sig í óveðrinu

Eins og greint var frá í morgun, brann rafmagnskassi í Foldahrauni fyrir hádegi sem varð til þess að rafmagnslaust varð í hverfinu um tíma. Annar rafmagnskassi brann svo nú fyrir skömmu og var slökkvilið Vestmannaeyja kallað á staðinn. Enginn eldur var í kassanum, sem er við Kirkjubæjarbraut en allt sem í honum var er sviðnað […]

Fer að verða vöruskortur

Búið er að taka ákvörðun um að fella seinni ferð Herjólfs í dag niður. Skipið hefur ekkert siglt milli lands og Eyja síðan á þriðjudagskvöld. Athuga á með morgunferð föstudagsins klukkan 7:00 í fyrramálið. Það er hins vegar ljóst að ef skipið siglir ekki á morgun, fer að gæta vöruskorts í Vestmannaeyjum. Þetta staðfestir Ingimar […]

Kviknaði í götukassa

Í hádeginu fór rafmagn af Foldahrauni í Vestmannaeyjum. Við athugun kom í ljós að kviknað hafði í götukassa með fyrrgreindum afleiðingum. Samkvæmt upplýsingum frá konu í Foldahrauninu er rafmagnið komið á. (meira…)

Enn bálhvasst í Eyjum

Enn er bálhvasst í Eyjum en samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands, er meðalvindhraði á Stórhöfða nú 32 metrar á sekúndu og hefur vindhraðinn ekki farið niður fyrir 30 metra í rúman sólarhring. Skólahald í Grunnskóla Vestmannaeyja hefur verið fellt niður í dag, fimmtudag, annan daginn í röð, sem hefur ekki gerst í fjölda ára. Þá hefur […]

Stefna á Lundakomu­- hátíð 20. apríl

Á fundi stjórnar Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja nýlega var rætt um leiðir til að lengja ferðamannatímabilið í báða enda. Var því einkum velt upp hvað mætti gera til að fá hingað fleira fólk í byrjun tímabilsins. Þá kom upp sú hugmynd að beina athyglinni að lundanum, sem er þjóðartákn Vestmannaeyja. Hann kemur eftir miðjan apríl og sest […]

�?tburður Eyjafrétta gæti tafist vegna veðurs

Vegna veðurs gætu Eyjafréttir borist síðar en venjulega til áskrifenda. Blaðburðarfólk Eyjafrétta er sumt í stökustu vandræðum með að standa storminn af sér en munu auðvitað reyna allt hvað þau geta til að koma blaðinu til áskrifenda. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.