Sísí skoraði gegn Hollandi

Sigríður Lára Garðsdóttir, leikmaður ÍBV í knattspyrnu, skoraði eitt marka íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 19 ára og yngri í sigri á Hollandi í dag. Leikurinn fór fram á La Manga á Spáni og er hluti af alþjóðlegu móti en leiknum lauk með sigri Íslands, 3:1. (meira…)
Dyggðir stjórnmála

Stjórnmál, hvað fær fólk til þess að taka þátt í stjórnmálum? Það er von að margir velti því fyrir sér þessa dagana hvað fær fólk til þess að taka þátt í stjórnmálum eins og staðan á stjórnarheimilinu og hinu háa alþingi er um þessar mundir. Þar virðist hver höndin vera upp á móti annarri og […]
Fundur hjá Agolwkonum fellur niður vegna veðurs

Fundur sem vera átti hjá félaginu Aglow í kvöld, fellur niður vegna veðurs. Fundur verður haldinn síðar, þegar veður verður orðið skaplegt. (meira…)
Bílar fjúka til í Vestmannaeyjum

„Það er ekki stætt úti,“ segir Haraldur Hlöðversson, lögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Meðalvindur á Stórhöfða fór upp fyrir 40 m/sek í morgun. Járnplötur hafa verið að losna á þökum og bílar hafa fokið til á götum. (meira…)
Allt flug liggur niðri vegna vonskuveðurs

Flugfélagið Ernir hefur ekki getað flogið innanlands í dag vegna veðurs. Búið er að aflýsa flugi á Húsavík og Bíldudal en athugað verður með flug á Vestmannaeyjar og Höfn í Hornafirði kl 12:15. Ekki er mikið útlit fyrir að flogið verði innanlands í dag og verður tekin endanleg ákvörðun um framhald flugs í dag um […]
Formaður VR á að vera formaður allra félagsmanna

Mannsæmandi laun í réttlátu samfélagi Það eru blikur á lofti í íslensku samfélagi. Frá efnahagshruninu 2008 hafa launamenn tekið á sig gríðarlegar kjaraskerðingar. Ef fram heldur sem horfir mun barátta fyrir betri launum og meiri kaupmætti verða fyrirferðarmikil á næstu misserum. Verkalýðshreyfingin á að taka forystu um nýja þjóðarsátt um stöðugleika á vinnumarkaði. Réttlátt samfélag […]
Nauðsynlegur sigur í toppbaráttunni

Karlalið ÍBV lagði Gróttu að velli í kvöld í Eyjum þegar liðin áttust við í 1. deildinni en lokatölur urðu 32:23. Eyjamenn hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu í Íslandsmótinu og virðist liðið stefna hraðbyri á sæti í úrvalsdeild. ÍBV er í efsta sæti með tveggja stiga forystu á Víking þegar aðeins eru þrjár […]
Nemendur í GRV urðu í 1. sæti í Lífshlaupinu

Lífshlaupið er átaks- og hvatningarverkefni á landsvísu, á vegum Ólympíusambands Íslands og Landlæknisembættisins. Verkefnið stóð yfir í tvær vikur nú í febrúar. Meginmarkmið verkefnisins er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig og tileinka sér heilbrigða lífshætti. (meira…)
Hvorki einelti, kúgun né ofbeldi að krefjast vandaðra vinnubragða

Nú er svo komið að Eyverjar sjá sig knúna til að skrifa þennan stuttan greinarstúf. Skrif þessi eru vel meint og þeim ætlað að uppfræða þá sem ekki vita hvert er hlutverk bæjarfulltrúa. Ekki síst oddvita V-listans sem telur það til sinna helstu dyggða að lengja fundi og skapa til ófriðar um mál sem síðan […]
Eyjamenn taka á móti Gróttu í kvöld

Í kvöld klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti Gróttu í 1. deild karla í handbolta. Nú er staðan þannig hjá ÍBV að allir leikir eru úrslitaleikir en liðið er í efsta sæti, með tveggja stiga forskot á Víking. Það er því í höndum Eyjamanna að halda efsta sætinu og dugir lítið minna en að vinna […]
Dísa lögð af stað til Eyja

Grafskipið Dísa, sem áður hét Skandia, er lagt af stað áleiðis til Eyja. Nú verður settur kraftur í sanddælingu í Landeyjahöfn en þó ekki fyrr en um eða eftir helgi, þar sem spáð er austan hvassviðri næstu daga en veðrið á að ganga niður um helgina. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að endurbótum á Dísu, […]
Loðnan og skipin dreifð

Um tugur loðnuskipa var við veiðar skammt frá Hornafirði um hádegi í gær. Víða er loðnu að finna eins og áður á vertíðinni og á sama tíma voru nokkur skip við veiðar austur af Grindavík. Með hverjum deginum styttist í hrygningu loðnunnar, en framundan er leiðindaspá á flestum miðum. (meira…)
Brotist inn í Axel �? og Lundann

Lögreglan hafði ýmsum verkum að sinna í vikunni sem leið, enda ýmis verkefni sem koma inn á borð lögreglu sem þarf að sinna. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og þurfti lögreglan lítið að hafa afskipti af gestum skemmtistaða bæjarins. Tilkynnt var um tvö innbrot í vikunni sem leið en brotist var inn í verslun […]
Perla byrjuð að dýpka

Dýpkunarskipið Perla er byrjuð að dýpka við Landeyjahöfn en ölduhæð þar er nú 1,1 metri samkvæmt öldudufli. Allt útlit er fyrir að hægt verði að dýpka við höfnina í dag, og hugsanlega á morgun en eftir það er spáð stífri austan átt, jafnvel stormi um miðja vikuna en um eða eftir helgi breytist vindáttin í […]
Hásteinsvöllur meðal flottustu knattspyrnuvalla heims

Á vefsíðunni The best eleven á finna ýmsan fróðleik um knattspyrnu. Meðal annars er þar að finna mat vefsins á ellefu flottustu knattspyrnuvöllum heims en heimavöllur ÍBV, Hásteinsvöllur er þar á meðal, einn íslenskra knattspyrnuvalla. (meira…)
Tveir efnilegir skrifa undir hjá ÍBV

Tveir af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins, þeir Hafsteinn Gísli Valdimarsson og Sigurður Grétar Benónýsson, skrifuðu undir sína fyrstu samninga hjá ÍBV á föstudaginn var. Sigurður Grétar skrifaði undir tveggja ára samning en Hafsteinn Gísli þriggja ára. Báðir eru þeir á fyrsta ári í öðrum flokki og hafa gengið upp í gegnum alla yngri flokka félagsins. (meira…)
Rúmlega fjörtíu manna gönguhópur heimsótti Eyjar um helgina

Fjallgönguklúbburinn Toppfarar kíkti við í Eyjum um helgina. Um var að ræða 41 manna hóp sem fór á fjöll á Heimaey. Klúbburinn hefur verið starfandi síðan 15. maí 2007 en á þriðjudagskvöldum æfir hópurinn en fer síðan einu sinni til tvisvar í mánuði í lengri ferðir á hærri fjöll. Ferð hópsins til Eyja var 90. […]
V- listinn

Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru samþykkt oddvitaskipti hjá Vestmannaeyjalistanum. Tveir reyndir bæjarfulltrúar hafa yfirgefið hópinn og aðrir komið inn í þeirra stað. Skv. sveitarstjórnarlögum kemur það núna í hlut Kristínar Jóhannsdóttur að taka sæti sem næsti aðalmaður og hinn gamalreyndi Stefán Ó Jónasson verður okkar fyrsti varamaður. Það þýðir að minnihlutinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja er eingöngu […]
Nýr búnaður auðveldar loðnuveiðar

Búnaður í nýjasta uppsjávarskipi flotans auðveldar mönnum að ganga frá loðnunót eftir köst. Slíkt sparar dýrmætan tíma á veiðum þar sem nótin er jafndjúp og knattspyrnuvöllur er langur. (meira…)
Missti stjórn á mótorhjóli og féll af því

Karlmaður á sextugsaldri féll af mótorhjóli á Strandvegi í gær, skömmu fyrir klukkan fimm eftir að hafa misst stjórn á hjólinu. Maðurinn rann 33 metra á hjólinu áður en hann féll af því samkvæmt því sem haft er eftir lögreglunni í Vestmannaeyjum á mbl.is. (meira…)