Nýr búnaður auðveldar loðnuveiðar

Búnaður í nýjasta uppsjávarskipi flotans auðveldar mönnum að ganga frá loðnunót eftir köst. Slíkt sparar dýrmætan tíma á veiðum þar sem nótin er jafndjúp og knattspyrnuvöllur er langur. (meira…)
Missti stjórn á mótorhjóli og féll af því

Karlmaður á sextugsaldri féll af mótorhjóli á Strandvegi í gær, skömmu fyrir klukkan fimm eftir að hafa misst stjórn á hjólinu. Maðurinn rann 33 metra á hjólinu áður en hann féll af því samkvæmt því sem haft er eftir lögreglunni í Vestmannaeyjum á mbl.is. (meira…)
Erfiðari loðnuvertíð en oft áður

Loðnuvertíðin er óvanaleg, segja sjómenn sem þurfa að hafa meira fyrir veiðunum nú en oft áður. Rysjótt veðurfar og litlar torfur gera mönnum erfitt fyrir. (meira…)
Sjötti sigurleikur ÍBV í röð

Kvennalið ÍBV lagði Fylki að velli í dag þegar liðin áttust við í næst síðustu umferð N1 deildarinnar. Lokatölur urðu 25:33 eftir að staðan í hállfeik var 11:17 en leikur liðanna fór fram í Árbæ. ÍBV var fyrir leikinn búið að tryggja sér þriðja sæti deildarinnar en í síðustu umferðinni, tekur ÍBV á móti Val. […]
Hagkerfin tvö

Hagkerfin á Íslandi eru tvö. Annað er á höfuðborgarsvæðinu og hitt á landsbyggðinni. Þegar talað er um þörfina á að örva hagkerfið, er nær undantekningalaust átt við fyrrnefnda hagkerfið þótt annað sé gjarnan gefið í skyn. Það var örvað svo hressilega á „góðærisárunum“ að það náði hæstu hæðum áður en það sprakk í loft upp […]
Landsfundur Vinstri grænna

Um síðustu helgi var haldinn landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Fundurinn var kröftugur og skemmtilegur, fjölmennur og brosmildur. Það sem hæst bar var auðvitað breyting á forystu flokksins. Katrín Jakobsdóttir var kjörin formaður hreyfingarinnar. Skelegg ung kona með hjartað á réttum stað. (meira…)
Engin fyrirstaða í Fylki

ÍBV sótti Fylki heim í kvöld í 1. deild karla í handbolta. Töluverður munur er á liðunum í deildinni, því ÍBV er í efsta sæti á meðan Fylkir er í því neðsta. Munurinn á liðunum kom bersýnilega í ljós í kvöld því ÍBV vann með 22 marka mun, 16:38 en staðan í hállfeik var 6:16. […]
Á Brúnklukkuveiðum útí Vilborgartjörn

Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að í ár eru liðin 40 ár frá eldgosinu á Heimaey. Að því tilefni verður hin árlega Goslokahátíð en stærri og flottari en venjulega. Ein af þeim venjum sem skapast hefur undanfarin ár í kringum hana er Goslokalagið. Á síðasta ári var það hljómsveitin Brimnes sem samdi […]
Vatnsrúm?

Hér er myndband úr rúmaverslun. Þar eru að sjálfsögðu til rúm með margvíslega eiginleika. Áður en keypt er rúm þarf auðvitað að prófa gripinn, – athuga hvernig fer um fólk í viðkomandi rúmi. – Þurftu þá ekki endilega einhverjir hrekkjalómar að hafa komið vatni fyrir undir dýnunni. – Og auðvitað urðu margir til falla í […]
Eyjamenn enn í baráttunni

Síðari umferð Íslandsmóts skákfélaga hefst í kvöld og sem fyrr eru Eyjamenn meðal efstu sveita. Staðan í 1. deild er þannig að fjórar sveitir eiga möguleika á titli, efst er Taflfélag Bolvíkinga með 22½ vinning, næst Víkingaklúbburinn með 22 vinninga, þá Taflfélag Reykjavíkur með 21½ vinning og Taflfélag Vestmannaeyja er með 20½. Eyjamenn hafa aldrei […]
Kristín verður aðalmaður í bæjarstjórn

Kristín Jóhannsdóttir mun taka sæti Páls Scheving Ingvarssonar, bæjarfulltrúa og fráfarandi oddvita Vestmannaeyjalistans. Páll óskaði eftir leyfi frá störfum á bæjarstjórnarfundi í gær en búið var að taka ákvörðun um að Stefán Óskar Jónasson, tæki sæti hans. Það samræmist hins vegar ekki sveitastjórnarlögum, þar sem Kristín var ofar á lista Vestmannaeyjalistans, og mun hún því […]
Tónlistarskóli Vm kemur vel út

Prófanefnd tónlistarskóla hefur tekið saman yfirlit um árangur nemenda á grunn- og miðprófum í hljóðfæraleik og einsöng í tónlistarskólum frá vori 2004 til vors 2012. Í samantektinni eru upplýsingar um meðaleinkunnir í klassískum hljóðfæraleik og einsöng í Tónlistarskóla Vestmannaeyja (VM) og samanburður við landsmeðaltal á þessu tímabili, annars vegar á grunnprófi og hins vegar á […]
Er vorið á villigötum?

Ekki er hægt að segja annað en að veðrið hafi verið óvenju milt undanfarið og eru ýmsir vorboðar farnir að gera vart við sig, sumir langt á undan áætlun. Fýllinn situr upp, og hefur raunar gert það í allan vetur, og ritan og svartfuglinn settust upp á nokkuð eðlilegum tíma eða 10. febrúar. Þetta kemur […]
Johnsen leiðir lista Hægri grænna í Suðurkjördæmi
Þröstur Johnsen, sem á og rekur Hótel Eyjar í Vestmannaeyjum, mun leiða lista Hægri grænna í Suðurkjördæmi í næstu Alþingiskosningum. Árni Johnsen, bróðir Þrastar og sitjandi þingmaður er í heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og mun láta af þingmennsku í vor. Þröstur er þar með eini Eyjamaðurinn sem leiðir lista í Alþingiskosningunum 2013. (meira…)
�??Eins og að vera með bandspotta aftan í sér�??

Tæpir fjórir mánuðir eru síðan markamaskínan frá Vestmannaeyjum, Margrét Lára Viðarsdóttir, lagðist undir hnífinn í Noregi í þeirri von að fá bót meina sinna. Þó að Margrét hafi lengi harkað af sér, og spilað jafnt með atvinnumannaliði og landsliðinu, þá hefur hún engu að síður glímt við flókin meiðsli í liðlega fimm ár. Margrét Lára […]
Forsala miða hafin

Forsala miða er hafin á undanúrslitaleik ÍBV og Vals í bikarkeppninni sem fer fram í Laugardagshöll laugardaginn 9. mars. Hægt er að nálgast miða á leikinn hjá Bigga í Tvistinum í Vestmannaeyjum og hjá Víði Róberts á Bílamarkaðnum Smiðjuvegi 46e (gul gata) í Kópavogi. Miðinn kostar 1000 kr. en 800 kr. fyrir krókódíla gegn framvísun […]
Ný ferja verður að geta siglt í �?orlákshöfn

„Fundurinn var athyglisverður og það er gott að sjá hversu einbeittur vilji er til þess að bregðast við samgönguvanda Vestmannaeyinga,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, að afloknum fundi um samgöngumál Vestmannaeyja sem haldinn var í húsakynnum Siglingastofnunar í síðustu viku. Á fundinum voru kynntar niðurstöður dönsku straumfræðistöðvarinnar (DHI) sem hefur unnið að rannsóknum á […]
Kári Kristján úr leik næstu vikurnar

Kári Kristján Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska A-deildarliðsins Wetzlar gekkst á dögunum undir aðgerð vegna bakmeiðsla og verður hann frá æfingum og keppni næstu vikurnar. (meira…)
Skora á atvinnuveganefnd að kynna sér gagnrýni á frumvarp um stjórn fiskveiða

Útvegsbændafélagið Heimaey sendi í dag frá sér ályktun varðandi frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, sem nú liggur fyrir Alþingi. Þar segir að nýja frumvarpið sé í meginatriðum sambærilegt því sem lagt var fyrir þingið síðasta vor. Þá skiluðu fjölmörg umsagnaraðilar neikvæðri umsögn um frumvarpið en Útvegsbændafélagið Heimaey telur áhyggjuefni að Alþingi ætli að hunsa […]
Guðmundur Sigfússon sýnir myndir úr gosinu

Guðmundur Sigfússon, ljósmyndari mun í kvöld, miðvikudag verða gestur aðalfundar Rauða krossins í Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst klukkan 20:00 í Arnardrangi en Guðmundur mun þar sýna fjölmargar myndir sem hann tók í Heimaeyjargosinu 1973. (meira…)