Lenging hafnargarða eykur straum og ölduhæð

Á fundi bæjarráðs var fjallað um samgöngur á sjó við Vestmannaeyjar í húsakynnum Siglingastofnunnar í Kópavogi. Á fundinum var farið yfir stöðu mála varðandi Landeyjahöfn og horft til framtíðar varðandi nýtt skip og breytingar á höfninni. Í bókun bæjarráðs kemur m.a. fram að samkvæmt Dönsku straumfræðistofnuninni eykur lenging hafnargarða í Landeyjahöfn, straum og ölduhæð og […]

Florentina með landsliðinu í mars?

Rúmenski handknattleiksmarkvörðurinn Florentina Stanciu, sem leikur með ÍBV, er á meðal þeirra 13 einstaklinga sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að veittur verði íslenskur ríkisborgararéttur á vorþingi. (meira…)

Benjani ekki til Eyja

Framherjinn Benjani Mwaruwari er ekki á leið í ÍBV. Benjani samdi við suður-afríska liðið Chippa United, sem situr í botnsæti úrvalsdeildarinnar þar í landi en leikmaðurinn var fyrr í vetur orðaður við ÍBV. Þetta kemur fram á Fótbolti.net. (meira…)

Dómþing verður í Eyjum í desember

Dómþing hjá Héraðsdómi Suðurlands hefur ekki verið í Eyjum yfir háveturinn, heldur hefur fólk úr Eyjum, sem erindi hefur átt við Héraðsdóminn þurft að mæta á Selfoss til að sinna sínum málum. Fyrir bæjarráði í dag lá hinsvegar erindi frá Innanríkisráðuneytinu dags. 13. febrúar s.l. þar sem fram kemur að dómstólaráð hafi samþykkt á fundi […]

Mikilvægir fundir fyrir forráðamenn barna

Í morgun var fyrsti foreldrafundur af þremur í Grunnskóla Vestmannaeyja þar sem leitast er við að svara eftirfarandi spurningum: Er allt vaðandi í einelti? Hvernig líður börnunum í skólanum? Er skólinn að gera eitthvað í eineltismálum? Get ég sem foreldri haft áhrif á hvernig börnum líður í skólanum? Tveir fundir eru eftir, einn í Barnaskólanum […]

�?ór kom við í Eyjum

Varðskipið Þór kom við í Eyjum í gær í fyrsta sinn síðan skipið kom til Íslands en fyrsta höfnin sem skipið kom að þá, var einmitt Vestmannaeyjahöfn. Varðskipið stoppaði reyndar stutt við, kom rétt eftir hádegi og var farið út rúmlega átta í gærkvöldi. (meira…)

Fundu fíkniefni í bíl og íbúð

Nokkur erill var hjá lögreglu í vikunni sem leið og ýmis mál sem komu upp að vanda. Helgin var með rólegra móti og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarins. Tvö fíkniefnamál komu upp í vikunni sem leið en lítilræði af maríhúana fundust við leit í bifreið sem lögreglan hafði afskipti af í loki liðinnar viku. Í […]

Elísa og Fanndís með A-liðinu til Algarve

Eins og undanfarin ár, tekur íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu þátt í Algarvemótinu í knattspyrnu, sem er sterkasta æfingamót kvennaknattspyrnunnar enda flest sterkustu landsliðin sem taka þátt í mótinu. Þær Fanndís Friðriksdóttir og Elísa Viðarsdóttir eru í leikmannahópi íslenska liðsins en Margrét Lára Viðarsdóttir er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. (meira…)

Sjálfstæðisflokkur vill ferjusiglingar inn í þjóðvegakerfið

Landsþing Sjálfstæðisflokksins fór fram í Laugardalshöll um helgina en um 1700 fulltrúar úr öllum landshornum sóttu þingið. Meðal þeirra voru um 40 fulltrúar frá Vestmannaeyjum en hópurinn lagði fram tillögu á þinginum um samgöngur á sjó. Tillöguna má lesa hér að neðan en hún var samþykkt nánast einróma og er nú orðin hluti af stefnu […]

Brynjar Karl sleit krossband

Leikstjórnandi ÍBV-liðsins, Brynjar Karl Óskarsson sleit krossband á dögunum í bikarleiknum gegn Selfossi. Brynjar, sem hefur leikið vel með ÍBV í vetur, sleit krossband í sama hné fyrir þremur árum en svona meiðsli þýða að hann mun ekkert æfa næstu 6-8 mánuðina. (meira…)

David James jákvæður fyrir því að spila með ÍBV

Það fór líklega ekki framhjá mörgum knattspyrnuáhugamönnum að enski landsliðsmarkvörðurinn David James var hér á landi til að skoða aðstæður hjá ÍBV. Reyndar tókst ekki að koma kappanum alla leið til Eyja þar sem ófært var með flugi þegar reyna átti að koma honum yfir, en hann tók þátt í æfingu ÍBV-liðsins í Kórnum á […]

Skandia heitir nú Dísa

Dýpkunarskipið Skandia sem flestir í Eyjum þekkja, hefur undafarnar vikur verið í slipp í Reykjavík, þar sem verið er að endurbæta skipið á ýmsa lund. M.a. er sett í það hliðarskrúfa. Þegar skipið kom fyrst til landsins var það í eigu Íslenska gámafélagsins er í vetur keypti Björgun skipið. Það hefur fengið nýtt nafn og […]

Góður handboltadagur hjá ÍBV

Karla- og kvennalið ÍBV í handbolta léku bæði í dag en strákarnir tóku á móti Fjölni á meðan stelpurnar sóttu Hauka heim. Strákarnir áttu ekki í vandræðum með Fjölni og unnu tuttugu marka sigur, 40:20 en staðan í hálfleik var 16:11. ÍBV er sem fyrr í efsta sæti 1. deildar, með tveggja stiga forystu á […]

Stefnt að því að bjóða út hönnun á nýrri ferju fyrir páska

Í gær var haldinn fundur hjá stýrihóp um samgöngumál Vestmannaeyja í húsakynnum Siglingastofnunnar í Kópavogi. Upphaflega átti fundurinn að fara fram í Eyjum í vikunni, en þar sem ekki var flogið til Eyja í gær var ákveðið að færa fundinn á fastalandið. „Þetta var mjög upplýsandi fundur fyrir mig. Við vorum ekki bara að ræða […]

40 ár frá strandi Gjafars VE 300

Í dag eru liðin 40 ár frá því að Gjafar VE 300 strandaði í innsiglingunni í Grindavík, – mánuði eftir að Heimaeyjargosið hófst. Í blaðinu Eyjafréttum sem kom út sl. miðvikudag, ræðir Ómar Garðarsson við vélstjóra skipsins þá Guðjón Rögnvaldsson og Theódór Ólafsson, þar sem þeir lýsa aðdraganda strandsins og því að ekki mátti miklu […]

Er tími Léttis að renna út

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni, var m.a. rætt um Létti, hinn margfræga bát, sem þjónað hefur Vestmannaeyjahöfn um tugi ára. Ljóst er að fara þarf í mjög kostnaðarsamar viðgerðir á bátnum eigi að nota hann áfram. Það sé hinsvegar ljóst að miðað við aldur hans sé hæpið að það borgi sig. Léttir er […]

Vilja breyttar áherslur í Landeyjahöfn

Á mánudaginn kom saman hópur áhugafólks um bættar samgöngur á Kaffi Kró. Fundarefnið var staða mála í Landeyjahöfn en lítið hefur þokast til betri vegar síðan höfnin var opnuð sumarið 2011. Krafa hópsins er að öll áhersla verði lögð á að laga höfnina, áður en nýtt skip verði smíðað. (meira…)

Ekkert varð úr komu James í gær

Ekkert varð úr komu enska markvarðarins David James til Vestmannaeyja í gær. Þegar á reyndi var ófært með flugi til Eyja og því æfði ÍBV liðið í gær án hans. James eyddi nóttinni í Reykjavík en reyna á að koma kappanum til Eyja í dag til að skoða aðstæður. ÍBV liðið heldur hins vegar til […]

Mikið flogið til Eyja um helgina

Mikil eftirspurn er eftir flugi til og frá Eyjum um helgina og hefur Flugfélagið Ernir bætt við aukaflugum föstudag, laugardag og sunnudag. Föstudaginn 22. Feb fer aukavél úr Reykjavík 14:30 og frá Eyjum 15:15, laugardaginn 23. feb fer vél úr Reykjavík um hádegið og frá Eyjum síðdegis. Aukavél sunnudagsins fer úr Reykjavík 17:30 og til […]

Samgöngufundur haldinn í Kópavogi

Samgöngufundur sá sem halda átti í Vestmannaeyjum um samgöngumál Eyjanna á þriðjudag, er um það bil að hefjast í húsakynnum Siglingastofnunar í Kópavogi. Fresta varð fundinum í Eyjum þar sem ekki var flugfært til Eyja. Elliði Vignisson, bæjarstjóri sagði í stuttu samtali við Eyjafréttir að af tveimur slæmum kostum, væri sá illskárri valinn, að halda […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.