Vill að ráðherra bregðist við

Árni Johnsen, þingmaður lagði fram spurningu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Árni beindi orðum sínum að atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrími J. Sigfússyni og spurði hvort hann væri með lagasetningu í smíðum, sem tryggði forkaupsrétt sjávarbyggða. Eins og áður hefur komið fram, hefur Vestmannaeyjabær lagt fram kæru vegna kaupa Síldarvinnslunnar á útgerð Bergs-Hugins. (meira…)
Loðnan kemur sífellt á óvart

Það lá vel á Jóni Axelssyni, skipstjóra á Álsey þegar Eyjafréttir slógu á þráðinn til hans í morgun. Þeir voru í blíðuveðri á leið til Þórshafnar með 1600 tonn af loðnu. Jón er ánægður með vertíðina, loðnan hafi verið stór og falleg og þó meiri kraftur hafi mátt vera í veiðunum síðustu daga er hann […]
Fullyrt að Kári fari til Bjerringbro

Danski vefurinn hbold.dk segist hafa heimildir fyrir því að línumaðurinn, Kári Kristján Kristjánsson, gangi til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro/Silkbeorg í sumar en hann hefur undanfarin þrjú ár leikið með þýska 1. deildarliðinu Wetzlar. (meira…)
�?urfa að hafa talsvert fyrir loðnunni

„Það er víða loðnu að finna, en það þarf talsvert að hafa fyrir henni,“ sagði útgerðarmaður sem rætt var við í gær. Flest skipin voru þá undan Suðausturlandi, en Heimaey VE 1 var að reyna fyrir sér mun vestar. (meira…)
ÍBV með aðra hönd á bronsið

ÍBV er komið með aðra hönd á bronsið, ef svo mætti að orði komast, eftir sigur á HK í Eyjum í kvöld. Lokatölur urðu 27:22 en staðan í hálfleik var 16:10. ÍBV hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og náði um tíma sjö marka forystu en HK kom öflugt til leiks í þeim síðari og […]
Jafntefli á Selfossi

ÍBV og Selfoss áttust við í þriðja sinn á rétt tæpri viku og í annað sinn á Selfossi. Selfyssingar höfðu betur í bikarnum í síðustu viku en Eyjamenn náðu fram hefndum á laugardaginn í Íslandsmótinu. Þriðja umferð 1. deildar hófst svo í kvöld með því að liðin tvö áttust við á Selfossi. Og jafnari gátu […]
�?ýðingarmikill leikur hjá stelpunum í kvöld

Í kvöld, klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti HK í afar þýðingamiklum leik í N1 deild kvenna. ÍBV er í þriðja sæti fyrir leikinn, með 23 stig en HK er í fjórða sæti með 21 stig. Bæði lið hafa leikið 16 leiki en Stjarnan, sem er í fimmta sæti með 20 stig, hefur leikið 17 […]
�?fært á fund um samgöngur

„Hér sitjum við heimamenn mættir á fund um samgöngur á sjó og bíðum eftir fólki úr Reykjavík. Við höfum ekki getað fundað því það er ófært með flugi,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í morgun. (meira…)
Nú er öldin önnur

Eldgosið á Heimaey árið 1973 breytti ýmsu. Það sem t.d. breyttist var innsiglingin til Eyja. Lengi vel var óttast að hraunið rynni út í innsiglinguna og lokaði henni. Sennilega hefur kælingin á hrauninu komið í veg fyrir það. Fyrir vikið er innsiglingin til Eyja orðin mjög góð. Hér áður fyrr var oft ansi tæpt siglt […]
Hvað er framundan í samgöngumálum okkar Eyjamanna?

Nú hefur ekki verið siglt í Landeyjahöfn síðan 24. nóvember 2012. Í dag er 14. febrúar 2013. Heyrst hefur að ákveðið sé að smíða nýja ferju, sem á að henta betur í Landeyjahöfn. Sú ferja á að vera 60 metra löng og fimmtán metra breið, og rista 2,8 metra. Áætlað er að hún taki 60 […]
Stöðvuðu í tvígang flutning fíkniefna til Eyja

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglu í vikunni sem leið, tvö fíkniefnamál komu upp auk þess sem lögreglan hafði í nógu að snúast vegna hinna ýmsu mála er tengjast aðstoð við borgarana. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um útköll á skemmtistaði bæjarins. (meira…)
Fór betur en á horfðist

Rétt fyrir klukkan tíu í morgun varð harður árekstur á horni Höfðavegar og Illugagötu þegar jepplingur og fólksbifreið skullu saman. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar hlaut höfuðhögg og var flutt á brott með sjúkrabifreið en meiðslin reyndust þó ekki alvarleg samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Fylgst verður þó með honum áfram því aldrei er of varlega farið þegar […]
KFS mætir Berserkjum í bikarnum

Þó enn séu um tíu vikur í að knattspyrnusumarið hefjist á Íslandi, er búið að draga í fyrstu umferð bikarkeppninnar, Borgunarbikarsins. Fyrsta umferð keppninnar fer fram 4. og 5. maí en Eyjaliðsins KFS bíður verðugt verkefni en liðið mætir Berserkjum á útivelli laugardaginn 4. maí. (meira…)
Afrakstur mótsins rennur til fjölskyldu Steingríms

Næstkomandi laugardag fer fram hið árlega Minningarmóti Ragnars Margeirssonar, fyrrum knattspyrnumanns úr Keflavík. Afrakstur mótsins rennur ávallt til góðra málefna en í ár mun afraksturinn renna til fjölskyldu Steingríms Jóhannessonar, sem lést langt um aldur fram á síðasta ári. Mótið fer fram í Reykjaneshöllinni en það er hópurinn vinir Ragga, hjá Keflavík sem standa fyrir […]
Loðnuskipin bíða átekta undan Ingólfshöfða

Loðnuskipin eru nú öll að hópast að Ingólfshöfða í von um að geta hafið veiðar í dag eftri brælu um helgina. Skipin þurftu meira og minna að halda sjó um helgina og fer nú að vanta loðnu í landvinnsluna. Loðnan heldur sig nú á grunnsævi og eu skipin mjög nálægt landi. (meira…)
Fundu marijúana í fórum 16 ára unglings í Eyjum

Tíu grömm af maríjúana fundust í fórum 16 unglings þegar hann kom til Vestmannaeyja með Herjólfi í gærkvöldi. Hann sagðist ekki eiga efnið sjálfur, heldur hafi verð að flytja það fyrir annan. Ekkert fannst í fórum félaga hans, sem er um tvítugt, en þeir hafa báði komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamisferlis. (meira…)
Barnshafandi í Eyjum fæði í Reykjavík

Alvarleg staða er komin upp í Vestmannaeyjum þar sem stefnir í lokun skurðstofa þar í sex vikur í sumar. Barnshafandi konur þurfa að koma sér til Reykjavíkur til að ala barn. (meira…)
�?akplötur losnuðu á Búhamri

Um klukkan hálf níu í morgun kallaði lögreglan í Vestmannaeyjum á aðstoð Björgunarfélagsins þar sem plötur voru að fjúka af húsi á Búhamri. Mikill vindur hefur verið í Eyjum í nótt og í morgun en í morgun fór meðalvindhraði í 34 metra á sekúndu á Stórhöfða og í 45 metra í mestu hviðunum. (meira…)
Jafntefli í sex marka leik hjá ÍBV

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék í dag fyrsta leik sinn í Lengju bikarnum þegar liðið mætti Grindavík í Reykjaneshöll. Grindvíkingar byrjuðu betur og komust tvívegis yfir en Eyjamenn jöfnuðu jafn harðan. Þegar fjórar mínútur voru eftir, skoraði Kjartan Guðjónsson og kom ÍBV í 2:3 en Grindvíkingar náðu að jafna metin áður en leikurinn var úti. […]
Nemanja skoraði sautján gegn Selfossi

Nemanja Malovic, hægri skytta karlaliðs ÍBV fór hreinlega hamförum í dag þegar Eyjamenn tóku á móti Selfossi í 1. deildinni. Nemanja skoraði 17 mörk af 26 mörkum ÍBV-liðsins, eða 65% marka íBV liðsins, sem er ansi hátt hlutfall. Lokatölur urðu 26:25 en leikurinn var í járnum allan tímann. (meira…)