Sex marka sigur á FH

ÍBV lagði FH að velli í N1-deild kvenna en liðin áttust við í Hafnarfirði í dag. Lokatölur urðu 20:26 fyrir ÍBV en staðan í hálfleik var 10:12. Drífa Þorvaldsdóttir fór á kostum í sókninni og skoraði 9 mörk í leiknum en ÍBV er sem fyrr í þriðja sæti, með 23 stig eftir sigurinn í dag. […]
Maðurinn á barnum

Maður sem greinilega leið ekki vel var staddur á bar. Hann sat við borð og starði á glasið sitt, þegar stór og mikill svoli, leðurjakkagæi, merktum alræmdum mótorhjólaklúbbi, kemur inn á barinn, gengur beint að manninum, grípur glasið hans og sýpur úr því í einum teig.„Og hvað ætlar þú að gera í þessu“ segir leðurjakkagæinn […]
Stjórnvöld verða að sætta sig við þá staðreynd að sjávarútvegur verður ekki rekinn frá hverri höfn hringinn í kringum landið.

Stjórn VM–Félags vélstjóra og málmtæknimanna mótmælir harðlega fyrirhuguðu frumvarpi um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Með fyrirhuguðum breytingum á að taka aflaheimildir frá undirstöðufyrirtækjum í sjávarútvegi. Það mun rýra afkomu þeirra og stöðuleika, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Sjávarauðlind okkar er takmörkuð og því eru takmörk fyrir því hvað hægt er að deila henni út á […]
Brottför síðdegis seinkað

Herjólfur lagði af stað frá Þorlákshöfn um hálf tvö en skipið tafðis í Þorlákshöfn, eins og það gerði í morgun í Eyjum. Í tilkynningu frá Herjólfi kemur fram að brottför í síðari ferð skipsins frá Eyjum hafi verið seinkað til 16:30 og eiga farþegar að mæta klukkan 16:00. (meira…)
ÍBV mætir Val í undanúrslitum

Í hádeginu var dregið í undanúrslit Símabikars kvenna en ÍBV tryggði sér sæti þar með góðum útisigri á FH á dögunum. Í pottinum voru auk ÍBV, Valur, Fram og Grótta en Valur, Fram og ÍBV eru í þremur efstu sætum Íslandsmótsins á meðan Grótta er í því sjöunda. ÍBV dróst á móti bikarmeisturum Vals en […]
Íslendingar fara flestir í Herjólfsdal en útlendingar að Eldfelli

Fyrir bæjarráði vikunni, lá markaðskönnun fyrir Vestmannaeyjar sem unnin var af Rannsókn- og ráðgjöf. Meðal þess sem helst kemur þar fram er: Áætlað er að Íslendingum sem heimsóttu Vestmannaeyjar hafi fjölgað um 77% frá 2004. Á sama tíma fjölgar erlendum ferðamönnum um 350%. Helsta ástæðan er talin tilkoma Landeyjahafnar. Áætlað er að hver erlendur ferðamaður […]
Brottför Herjólfs seinkað vegna bilunar

Vegna smávægilegrar bilunar og viðgerðar frestast brottför Herjólfs frá Vestmannaeyjum til kl. 9 í dag föstudag. Við biðjum farþega okkar afsökunar á þessari óviðráðanlegu töf. Í þessu ljósi er einnig ljóst að einhver seinkunn verður á brottför frá Þorlákshöfn en mögulega ekki eins langri, nánar um það síðar. (meira…)
Skýr munur

Enn styttist í kosningar. Því er ekki úr vegi að skoða hér nokkra átakaþætti sem ég held að þar verði tekist á um. Það vill nefnilega svo til að átakaþættirnir eru þessu sinni nokkuð ljósir milli þeirra flokka sem berjast munu um atkvæðin. Lítum á nokkur dæmi: (meira…)
Píratar kynna sig í kvöld

Fimmtudaginn 14. febrúar verður kynningarfundur á stjórnmálaflokknum Píratar á Volcano Café við Strandveg kl. 20:00. Það verður stutt kynning og svo opið spjall. Smári McCarthy og Jason Katz munu kynna starfsemi Pírata sem er nýtt afl í íslenskum stjórnmálum. Piratar er alþjóðleg hreyfing sem er starfrækt í 63 löndum og hafa 250 kjörna fulltrúa víða […]
Fasteignaverð á landsbyggðinni hækkar mest á Ísafirði og í Eyjum

Vestmannaeyjar og Ísafjörður skera sig nokkuð úr sé litið á þróun fasteignaverðs í stærri bæjum úti á landi. Efnahagsleg lægð síðustu ára virðist ekki hafa haft mikil áhrif á fasteignaverð þar sem hefur hækkað verulega frá árinu 2008. Þetta kemur fram í hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. (meira…)
Bikarleikurinn í beinni

Leikur Selfoss og ÍBV í 8-liða úrslitum Símabikars karla í handbolta verður í beinni veflýsingu á www.sunnlenska.is. Íþróttafréttamaðurinn knái, Vignir Egill, mun lýsa leiknum en lýsingin er í boði Sjóvár á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Leikurinn hefst kl. 19:30. (meira…)
Fjörugur öskudagur að baki

Öskudagurinn var litríkur og skemmtilegur í Eyjum eins og ávallt en miðbærinn hreinlega iðaði af trúðum, kúrekum og allskyns verum úr þessum heimi og öðrum. Krakkarnir sungu fyrir starfsmenn fyrirtækja og fengu góðgæti að launum eins og vera ber. Hér að neðan er hægt að nálgst fjölmargar myndir sem þeir Óskar Pétur Friðriksson og Arnar […]
Vinnslustöðin er í 11. sæti 358 fyrirtækja

Vinnslustöðin er í 11. sæti af 358 fyrirtækjum sem að mati Creditinfo verðskulda viðurkenninguna, Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2012. Koma þessi fyrirtæki af lista yfir rúmlega 32 þúsund fyrirtæki sem skráð eru í hlutafélagaskrá þannig að árangur Vinnslustöðvarinnar er mjög athyglisverður. Fyrirtækin eru í mjög mismunandi rekstri og eru sjávarútvegs- fyrirtæki nokkuð áberandi í hópi þeirra […]
Enginn frá Vestmannaeyjum á lista Samfylkingarinnar

Enginn íbúi í Vestmannaeyjum er á lista Samfylkingarinnar-Jafnaðarmannaflokks Íslands í Suðurkjördæmi. Listinn var birtur í dag en þar er að finna einn Eyjamann, Bergvin Oddsson sem er búsettur í Reykjavík. (meira…)
Bæjarstjórinn í Eyjum á Beinni línu

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, verður á Beinni línu á DV.is á eftir. Bæjarstjórinn hefur staðið í stöngu undanfarna daga eftir að Vinnslustöðin sendi áhöfn skipa sinna í fíkniefnapróf. Ellefu skipverjum var sagt upp stöfum í kjölfarið. (meira…)
Eyða 1,9 milljörðum í Eyjaferðum

Áætlað er að innlendir og erlendir ferðamenn hafi eytt 1.900 milljónum króna í Vestmannaeyjum á árinu 2012. Þetta kemur fram í markaðskönnun Rannsóknar og ráðgjafar ferðaþjónustunnar. Fram kemur að Íslendingum sem heimsóttu Vestmannaeyjar hafi fjölgað um 77 prósent og erlendum ferðamönnum um 350 prósent frá 2004, aðallega vegna Landeyjahafnar. (meira…)
Brýnt að allra leiða sé leitað í vörn fyrir samfélagið

Á fundi bæjarráðs í dag lá fyrir stefna Vestmannaeyjabæjar á hendur kaupenda og seljanda útgerðarinnar Bergs-Hugins, þar sem þess er krafist að ógiltur verði með með dómi samningur um kaup og sölu á Berg-Huginn á grundvelli 12. gr. laga nr. 116/2006. Bæjarráð áréttar mikilvægi þessa máls fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum enda um 10% af hagkerfi […]
Lokað fyrir heitt vatn vegna viðgerðar

Vegna bilunar í stofnæð hitaveitu í Vestmannaeyjum, verður lokað fyrir heitt vatn til íbúa norðan Kirkjuvegar frá klukkan 22:00 í kvöld. Unnið verður að viðgerð eftir það og verður lokað fyrir heita vatnið eitthvað fram eftir nóttu. (meira…)
Viljum við að einelti í litlum bæjarfélögum kosti fólk lífið?

„Mér finnst þetta komið gott og það þarf eitthvað að breytast. Ég er búin að fá nóg af kjaftasögum sem ganga í bænum og fólk er lagt í einelti vegna þessara sagna. Í flestum tilfellum eru þær ýktar og í vesta falli ekki sannar. Viljum við Vestmanneyingar að einhver hafi tekið líf sitt vegna eineltis […]
Elvis messa í Landakirkju á sunnudag

Sunnudaginn nk. 17. febrúar stendur Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K í Vestmannaeyjum fyrir Elvis messu í Landakirkju og hefst hún kl. 20:00. Fram að þessu hefur Æskulýðsfélagið staðið fyrir messum þar sem lög U2 og Johnny Cash hafa verið leikin við góðar undirtektir, en nú stendur til að flytja lög úr smiðju Elvis Presley. (meira…)