Sár eftir hnífsstungu minni en óttast var

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og var töluverður erill um helgina enda alvarlegt líkamsárásarmál til rannsóknar. Eitthvað var um stympingar í kringum skemmtistaði bæjarins en engar formlegar kæra liggur fyrir. (meira…)
ÍBV fékk Háttvísisverðlaun 2012

Um helgina fór fram ársþing KSÍ en við það tilefni voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir sumarið 2012. ÍBV fékk eina viðurkenningu en kvennlið félagsins fékk svokölluð Háttvísisverðlaunin í Pepsídeild kvenna. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ afhenti Guðnýju Óskarsdóttur í knattspyrnuráði kvenna bikar að því tilefni. (meira…)
Kap VE strandaði í höfninni

Kap VE 4, uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar, strandaði þegar skipið var að koma til löndunar fljótlega eftir hádegi. Skipið sat fast norðan við Herjólfsbryggjuna og sat þar fast í um hálftíma, þegar það losnaði af sjálfsdáðum. Gísli Garðarsson, skipstjóri segir að þarna sé sandhryggur sem myndist þegar Herjólfi er stýrt að bryggju og ekkert hafi verið gert […]
Búið að draga í riðla 4. deildar

Búið er að draga í riðla 4. deildar í fótboltanum en KFS mun leika í þessari nýju, og neðstu deild Íslandsmótsins. Deildarskiptingu Íslandsmótsins var breytt fyrir komandi tímabil á þann veg að nú eru tíu lið í 3. deild, sem áður var neðsta deildin og riðlaskipt. KFS leikur í A-riðli ásamt átta öðrum liðum en […]
Bollurnar runnu ljúflega niður

Í dag er Bolludagur og því eru bollur af öllum gerðum og stærðum á kaffiborðum Eyjamanna. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari fór hring um bæinn, í FES, Vinnslustöð og í Arnórsbakarí og allsstaðar var fólk að bragða sér á bollum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. (meira…)
Vinnslustöðin útilokar ekki endurráðningu þeirra sem reknir voru

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum ætlar ekki strax að fastráða í stöður þeirra ellefu sjómanna, sem fyrirtækið rak nýverilð, eftir að leyfar af fíkniefnum fundust í þvagsýnum þeirra. Eins og við greindum frá fyrir helgi, þá hefur sjómannafélagið Jötunn beitt sér fyrir því að fá ráðgjafa frá SÁÁ til Eyja nú í vikunni til að ræða við […]
Kári �??heitasta�?? söluvaran

Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson er heitasta söluvaran í danska handboltanum ef marka má frétt Ekstra Bladet um línumanninn sterka. Kári Kristján er á mála hjá Wetzlar í Þýskalandi en samningur hans við félagið rennur út í sumar og ljóst að hann mun yfirgefa félagið. (meira…)
Hin raunverulegu fórnarlömb fíkniefna

Mikil umræða hefur verið um ákvörðun Vinnslustöðvarinnar um að segja upp 11 sjómönnum sem reyndust hafa neytt fíkniefna samkvæmt rannsókn. Ég er sammála ákvörðun VSV og að mestu leiti bæjarstjórans okkar, en er þó mest sáttur við viðbrögð Sjómannasambandsins um að bjóða sjómönnunum aðstoð við að losna úr fjötrum fíkniefna. (meira…)
Líkamsárás í Vestmannaeyjum í nótt

Ein líkamsárás var í nótt úti á götu í Vestmannaeyjum. Tveimur mönnum sinnaðist úti á götu og brá þá annar þeirra hnífi og stakk hinn einu sinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum fór betur en á horfðist og var gert að sárum hins stungna. (meira…)
Hvað er framundan í samgöngumálum okkar Eyjannna?

Nú hefur Herjólfi ekki verið siglt í Landeyjahöfn síðan 24. nóvember 2012. Í dag er 10. febrúar 2013. Heyrst hefur að ákveðið sé að smíða nýja ferju, sem á að henta betur í Landeyjahöfn. Sú ferja á að vera 60 m löng og fimmtán metra breið, og rista 2,8 m. Áætlað er að hún taki […]
Guðni tryggði ÍBV sigur á lokasekúndunni

Rangæingurinn og línumaðurinn sterki, Guðni Ingvarsson, tryggði ÍBV sigur á Gróttu með ævintýralegu marki þegar leiktíminn var að renna út. ÍBV fékk aukakast í stöðunni 24:24 og leiktíminn var að renna út. Skipti þá engum togum að Guðni þrumaði boltanum í netið, beint úr aukakastinu og tryggði ÍBV sigurinn, 24:25. (meira…)
Stelpurnar ekki í vandræðum með Selfoss

ÍBV tók á móti Selfossi í N1 deild kvenna í dag í Eyjum. 13 stig skildu liðin að í deildinni þegar leikurinn hófst en ÍBV var í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn, með 19 stig en Selfoss í níunda sæti með 6. Það var því ekki búist við að leikurinn yrði jafn eða spennandi, eins […]
Sjálfstæðismenn samþykkja framboðslista sinn

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var samþykktur á fjölmennu kjördæmisþingi sjálfstæðismanna sem fór fram á Hótel Örk í Hveragerði í dag, að því er segir í tilkynningu. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fór fram laugardaginn 26. janúar s.l. og greiddu 3988 atkvæði í prófkjörinu. Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013: (meira…)
Einelti í samfélaginu

Á síðustu vikum hefur umræða um einelti í samfélaginu verið áberandi. Borgarstjórinn í Reykjavík taldi að árásir á borgarafundi væri hægt að túlka sem einelti og margir urðu ósammála hans orðum. Vafasamt er að skilgreina það sem borgarstjórinn upplifði sem einelti og vafasamt að hægt sé að nota það orð um pólitískar rökræður á íbúafundum. […]
Félagsmönnum býðst lægra forsöluverð á �?jóðhátíðina

Í bréfi sem nýr framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags, Dóra Björk Gunnarsdóttir hefur sent út, segir að eitt af hennar fyrstu verkum sé að fjölga félagsmönnum í félaginu, sem í dag eru 762. Þeir sem vilja gerast nýir félagar geta lagt félagsgjaldið kr. 2.500,- inná reikning 1167 26 144, kt. 680197 2029 og skráð jafnframt kennitölu sína […]
Eðlilegt að menn séu allsgáðir til sjós og við öll önnur störf

Lögreglan kom ekkert að þessu máli og var það fólk á vegum Vinnslustöðvarinnar sem tók fíkniefnaprófin á föstudaginn. Það er þó langt í frá í óþökk lögreglunnar sem lítur framtakið frekar jákvæðum augum. Lögreglan hefur þó aðstoðað við leit um borð í skipum Vinnslustöðvarinnar þegar þess hefur verið óskað. (meira…)
SÁÁ ráðgjafar til aðstoðar ellefumenningunum

Sjómannafélagið Jötunn hefur í samráði við stjórnendur Vinnslustöðvarinnar samið við SÁA um senda ráðgjafa til Eyja. Er þeim ætlað að ræða við sjómennina ellefu sem Vinnslustöðin sagði upp í vikunni. Á þeim fundust leifar af fíkniefnum eftir þvagprufur. Valmundur Valmundsson, formaður sjómannafélagsins Jötuns sagði í viðtali á Bylgjunni í morgun, umræddir sjómenn sem náðst hefði […]
Stefnir í 6 prósent fækkun farþega í innanlandsflugi vegna síaukinna álaga

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega gegndarlausum hækkunum gjalda á innanlandsflug. Frá fyrsta apríl á þessu ári hækka farþegagjöld á Reykjavíkurflugvelli um 40% og um þriðjungshækkun verður á lendingargjöldum. Þessi gjöld hækkuðu í apríl á síðasta ári yfir 70%. Strax í framhaldi af þessu hækkunum tók farþegum að fækka en þeim var farið að fjölga nokkuð eftir […]
Veistu hvað börnin þín eru að gera í tölvunni?

Tölvufíkn er vaxandi vandamál á Íslandi sem og heiminum öllum og sýna alþjóðlegar rannsóknir að 4,6 – 4,7% unglinga eru með einkenni tölvufíknar, 6-15% af almenningi og 13-18,4% háskólastúdenta. Umræða um hana er því þörf og ber að fagna. (meira…)
Skrýtin forgangsröðun að loka í Stórhöfða

Pálma Frey Óskarssyni, veðurathugunarmanni á Stórhöfða, var í síðustu viku sagt upp störfum. Pálmi Freyr er fjórði veðurathugunarmaðurinn í beinan karllegg sem sinnir starfinu. 1910 byrjaði Jónatan Jónsson, langafi Pálma Freys, sem vitavörður og síðar veðurathugunarmaður en hann starfaði til ársins 1935. Sonur hans, Sigurður, tók við 1935 og starfaði til 1965, þegar faðir Pálma […]