Miskunnsami Samherjinn

Nýlega keypti Samherji útgerðarfyrirtækið Berg – Hugin í Vestmannaeyjum og sölsaði þar með undir sig um 5.000 tonn í aflaheimildum. Í kjölfarið spratt upp umræða um svonefnd krosseignatengsl Samherja og Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en saman- lögð aflaheimild fyrirtækjanna í síld og loðnu er mun meiri en lög heimila. Krosseignatengslin eru fyrir hendi. (meira…)
Unnur Brá gefur kost á sér í 2. sæti

Unnur Brá Konráðsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi vegna Alþingiskosninga 2013. „Ég hef átt afar gott samstarf við kjósendur í Suðurkjördæmi og vonast til að fá áframhaldandi umboð til að vinna að þeim verkefnum sem framundan eru. Málefni kjördæmisins eru mér hugleikin og brýn þörf […]
Draumurinn er að starfa á Herjólfi

Ingibjörg Bryngeirsdóttir starfar nú við afleysingar sem stýrimaður um borð í Herjólfi. Hún hefur reyndar starfað áður um borð, þá sem þerna og kokkur en þetta mun vera í fyrsta sinn sem kvenmaður starfar sem stýrimaður um borð í Herjólfi. (meira…)
Íslandsbanki og ÍBV halda áfram samstarfi

Íslandsbanki og ÍBV-íþróttafélag hafa átt farsælt samstarf um langt skeið sem hefur beinst að því að efla það viðamikla starf sem er innan félagsins. Á árinu rennur út gildandi samningur og nú liggur fyrir nýr samningur um áframhaldandi og enn meiri stuðning Íslandsbanka við öfluga starfsemi ÍBV-íþróttafélags. (meira…)
Vann sigur í pokaröðun

Margar sögur er til af þeim mikla lífskúnstner, Viðari Togga. Hann hefur í tugi ára unnið í fiskimjölsverksmiðjunni FES. Það var einu sinni að Bogi Sigurðsson, þáverandi verksmiðjustjóri boðaði starfsmenn í mjölinu á fund. Þá var mjölið sett í pappírpoka sem síðan voru settir á bretti. Á fundinum kvartaði Bogi yfir því að pokunum væri […]
Landeyjahöfn enn í sviðsljósinu

Fyrir margt löngu var skipuð nefnd (stjórnskipuð) um samgöngumál Vestmannaeyjinga, með Elliða Vignisson bæjarstjóra sem formann nefndarinnar. Lítið hefur heyrst af starfsemi nefndarinnar eða af starfsslitum. Nú er komið haust eftir frámuna sumarblíðu og ekki höfum við orðið vör við það að neinar framkvæmdir hafi átt sér stað við Landeyjahöfn til að tryggja áframhaldandi siglingar […]
Bjóða flug á Bakka þegar Herjólfur siglir í �?orlákshöfn

Flugfélagið Air-Arctic sem einnig kallast Eyjaflug hefur tekið til starfa og býður m.a. upp á flug frá Bakka til Vestmannaeyja. „Við erum tveir sem keyptum flugvélarnar TF-VEV, TF-VEY og TF-VEL,“ segja eigendurnir, Bergur Axelsson flugmaður og Einar Aðalsteinsson flugvirki. (meira…)
Hærra, framar, lengra; er það ekki eðlilegur metnaður?

„Margar ástæður. Sú fyrsta er mjög „beisik“ eins og menn segja: mig langar að reyna mig í Reykjavík. Hærra, framar, lengra; er það ekki eðlilegur metnaður?“ segir Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hann er spurður um ástæðurnar fyrir því að hann hefur ákveðið að fara fram í Reykjavík í kosningum til Alþingis næsta vor. (meira…)
Lundaballið á morgun, föstudag

Hið árlega Lundaball, eða árshátíð Bjargveiðimannafélags Vestmannaeyja, verður haldið í Höllinni á morgun, föstudag. Úteyjafélögin í Vestmannaeyjum skiptast á að halda ballið en í ár er komið að Bjarnareyingum að sjá um Lundaballið. Eins og alltaf er mikið lagt í skemmtiatriðin og hafa Bjarnareyingar undirbúið þau undanfarna mánuði. Þá lögðu þeir á sig ferðalag norður […]
Júlíus tekur við af �?mari

Júlíus G. Ingason hefur tekið við sem ritstjóri vikublaðsins Fréttir í Vestmannaeyjum. Ómar Garðarsson hefur ritstýrt blaðinu í um 20 ár, og starfað á blaðinu í um aldarfjórðung en sjálfur átti hann frumkvæðið að breytingunum. Ómar segir að Fréttir standi nú á ákveðnum tímamótum og rétt sé að nýr maður taki við ritstjórninni. Hann fer […]
Björgvin vill áfram leiða lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi

Björgvin G. Sigurðsson tilkynnti í dag að hann leitast eftir því að leiða lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi í Alþingiskosningunum á næsta ári. „Í síðustu tveimur alþingiskosningum hef leitt lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Framboði jafnaðarmanna í Suðurkjördæmi hefur farnast vel í þeim kosningum og var Samfylkingin eftir siðustu kosningar aftur stærsti flokkurinn í kjördæminu,“ segir Björgvin […]
Ískalt vald útgerðarmannsins

Páll Scheving, bæjarfulltrúi og oddviti Vestmannaeyjalistans skrifar grein í nýjasta tölublað Frétta. Páll fer þar yfir sjávarútvegsmál og kemur m.a. inn á útgerðarmanninn sem seldi kvóta og skip úr bæjarfélaginu. Páll segir m.a., að þessi útgerðarmaður, sem eitt sinn var formaður sóknarnefndar í Landakirkju, hafi gleymt eða jafnvel misst af kenningum kirkjunnar um samfélagið, kærleika […]
Glæsilegur útisigur hjá stelpunum

ÍBV lagði Stjörnuna að velli í kvöld 21:26 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 13:14 en leikurinn fór fram í Garðabæ. ÍBV byrjaði mjög vel í leiknum og komst m.a. í 7:2 en Stjarnan náði að jafna metin 9:9. Drífa Þorvaldsdóttir sá hins vegar til þess að ÍBV væri yfir í hálfleik […]
Siglingastofnun segir dýpi í Landeyjahöfn nægjanlegt

„Samkvæmt síðustu mælingu var dýpi í Landeyjahöfn nægjanlegt og ástandið nokkru betra en á sama tíma í fyrrahaust. Þó heldur meira jafnvægi virðist orðið frá því áhrif framburðar vegna eldgossins voru mest, þá má búast við auknum efnisburði við höfnina með haustlægðum. Verkefnið er þó enn aðeins hálfkarað á meðan nýja skipið, sem höfnin var […]
Arndís gefur kost á sér í 1. sæti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

„Ég vil sjá íslenskt samfélag blómstra utan Evrópusambandsins og reyndar er þolinmæði mín gagnvart yfirstandandi aðildarferli nú á þrotum,“ segir Arndís Soffía Sigurðardóttir, varaþingmaður VG í Suðurkjördæmi. Hún sækist eftir fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir næstu kosningar. (meira…)
Átakið fékk ótrúlegan stuðning

Vestmannaeyingar þekkja flestir söguna á bakvið tilurð Forvarnahóps ÍBV og þennan leiðinlega, ljóta, bleika fíl sem við báðum um hjálp við að moka út. Þurfum ekki að fara nánar út í það. Ætlunin núna aftur á móti var að þakka fyrir. Fyrirtækin og samtökin sem stóðu á bak við átakið: Vestmannaeyjabær, Ölgerðin, N1, Íslandsbanki, Kakadú, […]
Virkar öryggisventillinn?

Það heyrist oft hátt í Eyjamönnum. Það hátt að latteþambandi landkröbbum uppi á landi svelgist stundum á froðunni. Þannig hafa viðbrögð Vestmannaeyjabæjar vegna kaupa Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn ekki farið framhjá neinum en bæjaryfirvöld hafa ákveðið að láta reyna á forkaupsréttarákvæði 12. gr. laga um stjórn fiskveiða vegna sölunnar. (meira…)
KFR og BúAðföng gáfu stuttbuxur og vatnsbrúsa

Nú er skólastarf hafið á nýju skólaári og fullt af ungum íþróttaiðkendum að hefja sitt fyrsta skólaár. Það er vissulega stórt skref að byrja í skóla og því langaði Knattspyrnufélagi Rangæinga (KFR) og BúAðföngum að gefa börnunum stuttbuxur og vatnsbrúsa í tilefni af þessum merku tímamótum. Þau voru glöð í bragði krakkarnir sem tóku við […]
Sigurður og Kristinn í U-17

Þeir Sigurður Grétar Benónýsson og Kristinn Skæringur Sigurjónsson, undir knattspyrnumenn í ÍBV, hafa verið valdir í lokahóp íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 17 ára og yngri. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Eyjamenn eiga fulltrúa í þessu landsliði en liðið tekur þátt í undankeppni EM á Möltu dagana 29. september til 4. október. […]
Takmörkum framsal veiðiheimilda

Frá því að ég fór að taka virkan þátt í stjórnmálum fyrir um tveimur áratugum hefur verið harkalega tekist á um stjórnkerfi fiskveiða. Enda miklir hagsmunir undir og himinn og haf á milli sjónarmiða. Sumir telja núverandi kerfi gott með óheftu framsali og leigu heimilda. Þær byggðir sem standa sig safna heimildum. Aðrar verða undir. […]