Lokahnykkurinn á framkvæmdum við Heilsugæsluna í Eyjum

Nú er unnið að lokafrágangi við heilsugæslustöðina í Eyjum, en framkvæmdir hafa staðið yfir meiripart þessa árs. Á meðan hefur aðstaða heilsugæslunnar verið á þriðju hæð sjúkrahússins. Halldór Halldórsson, ráðsmaður á sjúkrahússins fór með vídeóvélina sína um framkvæmdasvæðið og má sjá afraksturinn hér. Honum líst vel á þær breytingar og lagfæringar sem nú eru á […]
Af fingrum fram í Höllinni

Jón Ólafsson, tónlistarmaður, stýrði vinsælum þáttum á RÚV, Af fingrum fram. Eftir að sýningu þáttanna lauk, setti hann þættina upp í Salnum í Kópavogi og fékk til sín marga af fremstu tónlistarmönnum landsins, dró þá út úr skelinni og fékk þá til að segja ýmislegt sem hvergi hafði komið fram. (meira…)
Aukin afköst og fleira starfsfólk

Godthaab í Nöf hefur fjárfest í nýrri 24 stæða flæðilínu, útkastlínu og pökkunarkerfi. Á þriðjudeginum fyrir þjóðhátíð var húsnæðið algjörlega tæmt af öllum vélum og tækjum. Á miðvikudeginum var byrjað að leggja nýtt epoxýgólfefni og tók það þrjá daga. Það tók gólfið þrjá daga að þorna og þá var hægt að hefjast handa við að […]
Olíumengun í Vestmannaeyjahöfn

Nokkur olíumengun varð utarlega í Vestmannaeyjahöfn í dag þegar olía lak frá Álsey VE þegar verið var að dæla olíu á milli tanka um borð. Hafnarstarfsmenn fóru á vettvang um leið og ljóst var hvað hefði gerst en Andrés Þ. Sigurðsson hjá Vestmannaeyjahöfn sagði í samtali við Eyjafréttir að niðurbrotsefni hefði verið dreift yfir olíuna. […]
Frábært útsýni yfir Vestmannaeyjar

Á vefnum 360cities.net er hægt að sjá ansi magnaðar myndir frá Vestmannaeyjum. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða 360° myndir víðs vegar af Vestmannaeyjum, m.a. ofan af Heimkletti, við Stafkirkjuna, ofan af Dalfjalli, innan úr Landakirkju og við Hásteinsvöll. Þannig geta þeir sem hafa ekki þorað upp á Heimaklett, séð af […]
Rúta stórskemmdist við Herjólf

Rúta stórskemmdist í gær þegar henni var ekið upp undir landgöngubrú Herjólfs. Ofan á þaki rútunnar var kælibúnaður sem skemmdist mikið og þak rútunnar flettist af að hluta. Aðeins bílstjórinn var í rútunni þegar óhappið varð, en bílstjórinn meiddist ekki. Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs sagði í samtali við Eyjafréttir.is að svo virðist sem landgöngubrúin hafi […]
Stórsigur á Selfossi

Kvennalið ÍBV vann stórsigur í kvöld á Selfossvelli þegar stelpurnar lögðu heimastúlkur með sex mörkum gegn engu. Staðan í hálfleik var 0:2 fyrir ÍBV en í síðari hálfleik skoraði Vesna Smiljkovic þrennu, auk þess sem Sigríður Lára Garðarsdóttir bætti við einu marki. Mörkin í fyrri hálfleik skoruðu þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Shaneka Gordon. (meira…)
Titilvonir á ís eftir tap í kvöld

Titilvonir Eyjamanna hafa verið settar á ís og spurning hvort hægt verði að þýða þær áður en sumarið er úti. ÍBV tapaði í kvöld fyrir Keflavík á Hásteinsvelli en lokatölur urðu 0:1 fyrir Keflavík. Þetta er í annað sinn í sumar sem ÍBV tapar 1:0 fyrir Keflavík í sumar því leikur liðanna í Keflavík endaði […]
Eins og bærinn sé í dvala

Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og virðist sem bærinn sé lagstur í dvala eftir Þjóðhátíðina. Skemmtanahald helgarinnar var með rólegara móti og engin alvarleg mál sem upp komu. Tveir ökumenn voru kærðir vegna hraðaksturs og mældust þeir báðir á 68 km/klst. þar sem hámarkshraði er 50 km/klst., annar á Hamarsvegi […]
Töpuðu máli gegn Vinnslustöðinni

Eigendur minnihluta hlutafjár í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum töpuðu máli sem þau höfðuðu gegn Vinnslustöðinni til að fá ógilta ákvörðun hluthafafundar um sameiningu Vinnslustöðvarinnar við Ufsaberg-útgerð ehf. og hækkun hlutafjár. (meira…)
Kemst ÍBV upp í annað sætið?

Í dag klukkan 18:00 fá Eyjamenn Keflavíkinga í heimsókn í 16. umferð Pepsídeildar karla. Keflvíkingar unnu Eyjamenn í fyrri leik liðanna í Keflavík, 1:0 en sigur þeirra var að margra mati afar ósanngjarn þar sem ÍBV var betra liðið í leiknum. Það má búast við fjörugum leik, enda Hásteinsvöllurinn rennandi blautur og verður jafnvel enn […]
Hlynur annar í hálfmaraþoninu

Eyjapeyinn Hlynur Andrésson gerði sér lítið fyrir og varð annar í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Hlynur, sem hljóp í flokki 15-19 ára, var langfyrstur í þeim flokki en annar af öllum sem hlupu vegalengdina á tímanum 1:16:29, sem er glæsilegur árangur. Fleiri Eyjamenn tóku þátt í hlaupinu í karlaflokki, þannig varð Sigmar Þröstur Óskarsson […]
�?trúlega jákvæður og duglegur

Eins og áður hefur komið fram, mun Bjarný Þorvarðardóttir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun, laugardag en þar hleypur hún fyrir pabba sinn, Þorvarð Þorvaldsson, sem slasaðist alvarlega í vinnuslysi. Þorvarður er lamaður fyrir neðan háls en Bjarný hefur safnað áheitum fyrir Mænuskaðastofnun Íslands. Í vikublaðinu Fréttum er viðtal við Bjarný en þegar rætt var við […]
Vinnudagur bæjarbúa í Landakirkju

Eftir að hafa fylgst með hversu vel tókst til við Vigtartorgið okkar kviknaði sú hugmynd hjá okkur í sóknarnefnd Landakirkju að gefa bæjarbúum kost á að koma að því að fegra umhverfi Landakirkju, kirkjunnar okkar. (meira…)
Leiðslunni fleytt frá Friðarhöfn

Stór og mikil plastleiðsla liggur meðfram veginum inn á Eiði og hefur lengst undanfarnar vikur. Um er að ræða framlengingu á fráveituröri inn á Eiði og að ná 250 metra út í sjó og niður á 11 metra dýpi. Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sagði í samtali við Fréttir að leiðslan væri að […]
�?tlum að hafa gaman af þessu

Dagana 24. – 25. ágúst næstkomandi fer fram Heimsmeistaramót WBFF í líkamsrækt en mótið fer fram í Toronto í Kanada. Alls taka átta Íslendingar þátt í mótinu, þar af þrír Eyjamenn en það eru þau Smári Harðarson, Anna María Halldórsdóttir og Eva Sveinsdóttir. Eva er búsett á höfuðborgarsvæðinu en þau Smári og Anna María kíktu […]
Lægsta tilboð rúmum 211 milljónum krónum hærra en kostnaðaráætlun

Í lok júlí voru opnuð tilboð í vetrardýpkun í Landeyjahöfn en tilboðin voru opnuð í húsakynnum Siglingastofnunar. Þrjú fyrirtæki buðu í dýpkunina. Björgun ehf. bauð lægst, rúma 571 milljón og auk þess frávikstilboð upp á rúmar 295 milljónir. Næstlægsta tilboðið átti danska fyrirtækið Rohde Nielsen eða rétt rúmar 590 milljónir. Íslenska Gámafélagið bauð svo rúmar […]
Kennarar vilja fá níu en foreldrar fjóra

Fræðslu- og menningarráð ræddi skóladagatal leikskólans Kirkjugerðis fyrir skólaárið 2012 til 2013 á síðasta fundi sínum. Leikskólastjóri Kirkjugerðis lagði fram tillögu um samtals níu daga, ýmist heila eða hálfa, fyrir skipulags- og námskeiðsdaga og starfsmannafundi. Fyrirkomulag skipulags- og námskeiðsdaga auk starfsmannafunda hefur verið borið undir stjórn foreldrafélags Kirkjugerðis. (meira…)
22 m viðlegukantur og flotbryggja

Í fundargerð skipulagsnefndar Rangárþings eystra, kemur fram að Siglingastofnun hafi óskað eftir breytingum á gildandi deiluskipulagi Landeyjahafnar. Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir 22 metra löngum viðlegukanti við norðurenda hafnarinnar sem er ætlaður fyrir dýpkunarskip og auk þess verði hafnarsvæði við kantinn. (meira…)
�?flug áfallahjálp og sjúkra- þjónusta var í boði á þjóðhátíð

Í samantekt Frétta og af viðtölum við fólk sem kom að heilsugæslu og starfi áfallateymis á þjóðhátíð er ekki annað að sjá en að fagmennska hafi ráðið för. Verklag var það sama og undanfarin ár en alltaf er reynt að gera betur. Það má m.a. sjá á dreifibréfi sem dr. Hjalti Jónsson, sálfræðingur, sem stýrði […]