Sorp frá Eyjum mögulega úr landi

„Það sem okkur finnst vera verst í þessu er að þurfa e.t.v. að flytja sorpið burt með Herjólfi,“ segir Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. Fyrsta nóvember næstkomandi mun sorpbrennslustöðin í Eyjum hætta starfsemi eftir um tuttugu ára rekstur. Með lokun stöðvarinnar þarf að flytja allt sorp, almennt og endurvinnanlegt, frá Eyjum og þykir […]
Kristbjörg VE dregin í land

Kristbjörg VE 7 var dregin til hafnar í Hafnarfirði um hádegisbilið í gær en það var togbáturinn Skinney SF 20 sem kom með Kristbjörgu að landi. Skipin voru á humarveiðum við Eldeyjarbanka og var góð veiði þegar gír Kristbjargar VE bilaði. Greiðlega gekk að draga bátinn til hafnar eftir því sem Þorgeir Baldursson, ljósmyndari og […]
Lögregla fær ekki upplýsingar

Lögreglan á Selfossi fær ekki upplýsingar um inn- og úthringingar að morgni frídags verslunarmanna í Herjólfsdal. Lögreglustjórinn á Selfossi óskaði eftir upplýsingunum vegna rannsóknar á nauðgun á þjóðhátíð en Hæstiréttur hafnaði óskinni eftir að Héraðsdómur Suðurlands hafði samþykkt hana. Þetta kemur fram á vef Rúv. (meira…)
Fjórði flokkur í úrslit

Fjórði flokkur karla hjá ÍBV er komið í úrslit Íslandsmótsins í fótbolta. Strákarnir tryggðu sér endanlega sætið í úrslitunum með góðum sigri á BÍ/Bolungarvík um síðustu helgi en leikurinn fór fram á Hásteinsvelli og urðu lokatölur hjá bæði A- og B-liðunum 3:0 fyrir ÍBV. (meira…)
Eivör Pálsdóttir með útgáfutónleika í Höllinni

Færeyska söngkonan, Eivör Pálsdóttir mun halda útgáfutónleika í Höllinni 2. september næstkomandi. Eivör mun þar koma fram með hljómsveit en tilefnið er útgáfa plötunnar Room en tónleikarnir verða í kjölfarið á útgáfutónleikum í Hörpu. Eivör gat ekki hugsað sér að sleppa því að fara frá Íslandi, án þess að koma til Eyja. (meira…)
Rafstrengur til Eyja sparaði olíu

Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir það hagkvæmt fyrir ríkið að leggja um milljarð króna í nýjan rafstreng til Eyja. Ávinningur sé fólgin í minni olíunotkun sjávarútvegsfyrirtækja bæjarins í kjölfarið. (meira…)
Rósa fann ástína á ný norðan heiða

Guðrún Rósa Friðjónsdóttir hefur fundið ástina á ný. Rósa, eins og hún er kölluð, var áður gift Jóhannesi Ágústi Stefánssyni eða Gústa, sem lést á síðasta ári eftir löng veikindi. Rósa og Óskar Aðalgeir Óskarsson eru nú trúlofuð og geisla af hamingju og birtist viðtal við Óskar í www.akureyrivikublad.is þar sem m.a. er komið inn […]
Vinnu- og umferðarslys

Vikan var með rólegasta móti og engin alvarleg mál tilkynnt til lögreglu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað um stympinga en engar kærur liggja fyrir enn sem komið er. Síðdegis þann 21. ágúst sl. var lögreglu tilkynnt um umferðaróhapp við afgreiðslu Herjólfs en þarna hafði langferðabíll ekið undir göngubrú Herjólfs með þeim […]
Eyjamenn gætu reynt að kaupa George Baldock

ÍBV gæti reynt að kaupa miðjumanninn George Baldock frá MK Dons í Englandi. Baldock hefur staðið sig mjög vel með Eyjamönnum í sumar en lánssamningur hans rennur út í lok vikunnar. Baldock mun því leika sinn síðasta leik með ÍBV gegn FH á fimmtudaginn nema félagið kaupi hann í sínar raðir. (meira…)
Hvíld Margrétar Láru lokið

Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, mun snúa aftur til Svíþjóðar í vikunni eftir að hafa tekið sér hvíld frá knattspyrnu í sumar vegna þrálátra lærmeiðsla. Margrét hefur samið á ný við Kristianstad út næsta keppnistímabil 2013. Margrét er öllum hnútum kunnug hjá sænska félaginu en þar fór hún á kostum í fyrra og var […]
Arnór bjargaði stigi

Arnór Eyvar Ólafsson reyndist sínu liði mikilvægur í afar erfiðum útileik í Garðabænum í kvöld. Bakvörðurinn Arnór átti mjög góða spretti upp hægri vænginn í síðari hálfleik og kórónaði góðan leik með því að skora jöfnunarmark ÍBV eftir góða sókn og fyrirgjöf frá hinum bakverðinum, Matt Garner. Arnór jafnaði þannig metin eftir að Stjarnan hafði […]
Evrópusæti í húfi?

ÍBV sækir í dag Stjörnuna heim í Garðabæinn en leikur liðanna hefst klukkan 18:00. Leikurinn er báðum liðum afar mikilvægur í baráttunni um sæti í Evrópukeppni á næsta ári en aðeins eitt stig skilur liðin að. ÍBV er í þriðja sæti með 26 stig en Stjarnan er í því fjórða með 25. Eyjamenn töpuðu í […]
Vel gekk að koma leiðslunni í sjóinn

Það var mikið um að vera við Vestmannaeyjahöfn á föstudagskvöld þegar 250 metra plastleiðsla var hífð í sjóinn. Átta vinnuvélar og tveir bátar voru notaðir til verksins. Leiðslan verður notuð til að framlengja fráveituröri. Frárennsli 250 metra frá landiLögnin var í framhaldi dregin að hafnargörðum þar sem hún verður geymd þar til henni verður komið […]
Gæti rofnað hvenær sem er

Annar tveggja sæstrengja sem flytja rafmagn til Vestmannaeyja er mjög illa farinn og getur bilað hvenær sem er. Þetta kemur fram í bréfi sem forstjóri HS Veitna sendi stjórn Landsnets til að krefjast úrbóta á raforkuflutningi til Vestmannaeyja. Í lok júní komu saman í Vestmannaeyjum fulltrúar HS Veitna, HS Orku, Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Ísfélags Vestmannaeyja. […]
Fyrsta pysjan komin í leitirnar

Fyrsta pysja ársins er komin í leitirnar en þær Arna Guðjónsdóttir og Sigrún Ella Ómarsdóttir sem fundu pysjuna klukkan 23:30 í næsta nágrenni við Friðarhöfnina. Lítið hefur verið um pysjur í Eyjum síðustu ár en vonir manna standa til þess að lundastofninn sé að ná sér á strik á ný. Pysjan sem fannst í gær […]
Mikið af lunda í Hana og við Smáeyjar

Mikið af lunda sást í og við Smáeyjar í gær. Starfsmaður Þekkingarsetursins heimsótti úteyjuna Hana í gær, 22. ágúst, og sagði mikið af lunda hafa setið upp í eyjunni eins og sjá má á myndinni. Vonir manna um að lundastofninn sé að ná sér virðast á rökum reistar. (meira…)
Gefur út barnabók 89 ára gamall

Á næstu dögum kemur út ný barnabók, Litla lundapysjan, en höfundur sögunnar er Hilmir Högnason frá Vatnsdal. Hilmir hefur áður gefið út bók, ljóðabókina „Vatnsdals Hilmir er og verður til“, sem kom út í desember 2005 en þetta er í fyrsta sinn sem hann gefur út barnabók. Gunnar Júlíusson teiknar myndirnar, sem gefa bókinni enn […]
Atli, Böðvar, �?órður og �?ssur

Sunnudaginn 26. ágúst kl. 14-16 verður haldið í Einarsstofu í Safnahúsi málþing um vesturferðir. Gestir málþingsins eru Atli Ásmundsson, aðalræðismaður Íslendinga í Winnipeg, Böðvar Guðmundsson, rithöfundur, Þórður Tómasson í Skógum og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Aðalræðurmaður er Böðvar Guðmundsson en hann er þekktastur fyrir sögur sínar um örlög fólks af fyrstu og annarri kynslóð Vestur-Íslendinga, sögur […]
Lokað fyrir bílaumferð í botni Friðarhafnar

Vegna framkvæmda við flutning og sjósetningu á holræsalögn, sem liggur nú á vestur bryggjukantinum í Friðarhöfn, verður vegurinn frá „Skýlinu“ og inn á Eiði lokaður seinnipart næstkomandi föstudags fram á laugardag. (meira…)
Lokahnykkurinn á framkvæmdum við Heilsugæsluna í Eyjum

Nú er unnið að lokafrágangi við heilsugæslustöðina í Eyjum, en framkvæmdir hafa staðið yfir meiripart þessa árs. Á meðan hefur aðstaða heilsugæslunnar verið á þriðju hæð sjúkrahússins. Halldór Halldórsson, ráðsmaður á sjúkrahússins fór með vídeóvélina sína um framkvæmdasvæðið og má sjá afraksturinn hér. Honum líst vel á þær breytingar og lagfæringar sem nú eru á […]