Arnór Eyvar Ólafsson reyndist sínu liði mikilvægur í afar erfiðum útileik í Garðabænum í kvöld. Bakvörðurinn Arnór átti mjög góða spretti upp hægri vænginn í síðari hálfleik og kórónaði góðan leik með því að skora jöfnunarmark ÍBV eftir góða sókn og fyrirgjöf frá hinum bakverðinum, Matt Garner. Arnór jafnaði þannig metin eftir að Stjarnan hafði komist yfir í fyrri hálfleik en lokamínútur leiksins voru svo magnaðar þar sem bæði lið sóttu til sigurs en tókst ekki að skora.