�?sátt við breytingar við tónlistarkennslu af hálfu hins opinbera

Á fundi bæjarráðs var fjallað um samning um tímabundna breytingu á verkskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Bæjarráð gagnrýnir harðlega samninginn og þá sérstaklega þann hluta sem snýr að efndum ríkisins. Samkvæmt bókun bæjarráðs þýðir samningurinn tæplega 2,8 milljón króna kostnaðarauka við tónlistarkennslu hjá Vestmannaeyjabæ. Bókun bæjarráðs má lesa hér að neðan. (meira…)

Fundu hnýsu í Skansfjöru

Sex ungir Eyjakrakkar, Bjarki, Andri, Svava, Maríanna, Hafdís og Heiða, sem voru við leik í Skansfjöru í góða veðrinum síðastliðinn föstudag, fundu dauða hnýsu í fjörunni. Krakkarnir létu vita á Fiskasafninu en á vef safnsins kemur fram að líklega verði beinagrindin sett upp á safninu. (meira…)

Vara Alþingi við því að samþykkja óbreytt frumvörp

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjöld en bæjarráð Vestmannaeyma tók frumvarpið fyrir á fundi sínum í dag. Bæjarráð Vestmannaeyja varar Alþingi sterklega við því að samþykkja óbreytt fyrirliggjandi frumvörp ríkisstjórnarinnar til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. (meira…)

Eimskip reiðubúið að ganga til samninga við Vegagerðina um rekstur Herjólfs

Eimskip er reiðubúið að ganga til samninga um áframhaldandi rekstur Herjólfs enda telur félagið sig hafa í tvígang lagt inn lægsta gilda tilboðið í verkið. Eimskip kærði frávísun fyrra tilboðs félagsins þar sem ástæða frávísunar var að mati félagsins ekki réttmæt og ekki í samræmi við þau lög sem um opinber útboð gilda. Eimskip hafði […]

Síðari ferðin einnig til �?orlákshafnar

Síðari ferð Herjólfs í dag verður farin til Þorlákshafnar en skipið fór þangað einnig í morgun. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 19:15. Þegar þetta er skrifað 2,9 metrar en ölduhæð hefur verið um og yfir þrjá metra síðustu klukkutímana, sem er of mikið til að hægt sé að sigla inn […]

Stærsta lundabyggð heims í Vestmannaeyjum

Í síðasta hefti tímaritsins Blika, sem kom út í janúar síðastliðinn, er grein eftir dr. Erp Snæ Hansen, Marínó Sigursteinsson og Arnþór Garðarsson um lundatal Vestmannaeyja. Í greininni kemur fram að í Vestmannaeyjum er að finna stærstu lundabyggð heims, 830.100 varppör. Þetta kemur fram á heimasíðu Náttúrustofu Suðurlands. (meira…)

Hjörtur fulltrúi FÍV í keppninni

Söngkeppni Framhaldsskólanna fer fram með nokkuð breyttu sniði í ár en verið hefur. Myndbönd með flutningi keppendanna eru birt á Mbl.is og geta áhorfendur kosið í símakosningu sitt uppáhalds lag. 32 lög eru í keppninni í ár en 12 komast áfram í úrslita sem verða í Ríkissjónvarpinu næstkomandi laugardag. Hjörtur Friðriksson er fulltrúi FÍV í […]

Heimaey afhent í dag

Heimaey VE 1 verður formlega afhent nýjum eigendum í dag, þriðjudag. Skipið hefur verið í smíðum í Chile, í skipasmíðastöðinni ASMAR en gert er ráð fyrir að siglingin heim taki um þrjár vikur. Skipið er afar glæsilegt og verður eitt fullkomnasta skip flotans á Íslandi en Heimaey er rúmlega 71 metrar að lengd og 14,40 […]

Siglt til �?orlákshafnar

Ölduhæð í Þorlákshöfn hefur ekki lækkað eins og vonir stóðu til um og aðstæður í Landeyjahöfn enn erfiðar. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að sigla Herjólfi til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:00 og frá Þorlákshöfn kl 12:15. (meira…)

Samningar við Eimskip stöðvaðir að kröfu Eimskips

Vegagerðin er reiðubúin að ganga til samninga við Eimskip Ísland ehf. um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs næstu tvö árin. Krafa Eimskips um stöðvun samningsferlis vegna höfnunar fyrra tilboðs félagsins kemur hins vegar í veg fyrir að hægt sé að ganga til samninga. Á meðan gengur klukkan, samningar um rekstur Herjólfs renna út 1. maí sem og […]

Brottför frestað í Landeyjahöfn

Stefnt á siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar í dag þriðjudagsins 17. apríl. Enn er þó töluvert brot við hafnargarða í Landeyjahöfn og því hefur verið ákveðið að fresta brottför Herjólfs frá Eyjum þar til aðstæður lagast. Ölduhæð hefur gengið mikið niður sl.klukkutíma. (meira…)

Teknir með kannabis á útsýnispalli á Nýjahrauni

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en engin alvarleg mál sem upp komu. Helgin fór ágætlega fram og lítið um útköll á skemmtistaði bæjarins. Í vikunni var lögð fram kæra vegna líkamsárásar sem átti sér stað aðfaranótt annars í páskum í Höllinni. Þarna hafði stúlka ráðist á aðra stúlku […]

Legg orðspor mitt og virðingu undir þessi orð

Svavar Vignisson segir í samtali við Vísi.is að hann standi við orð sín í viðtali bæði á Sport.is og í fréttum Ríkissjónvarpsins þar sem hann sagði að annar af tveimur dómurum í leik Gróttu og ÍBV á laugardaginn hafi angað af áfengislykt. „Viðkomandi dómari var ekki fullur og ég sagði það aldrei. Það var engu […]

Allt undir í kvöld

ÍBV og Grótta eigast við í Íþróttahöllinni í kvöld klukkan 19:30. Um er að ræða oddaleik í fyrstu umferð úrslitakeppni N1 deildar kvenna og kemst sigurliðið í undanúrslit Íslandsmótsins. Það er því mikið í húfi en leikmenn og forráðamenn ÍBV hafa óskað eftir stuðningi Eyjamanna í leiknum mikilvæga og má því reikna með góðri stemmningu […]

Grótta mætir til Eyja í kvöld

Í kvöld klukkan 19:30 tekur ÍBV á móti Gróttu í oddaleik fyrstu umferðar úrslitakeppni N1 deildarinnar. Eyjamenn voru afar ósáttir við dómgæsluna í öðrum leik liðanna á Seltjarnanesi á laugardaginn og sagði Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV að annar dómarinn hafi angað af áfengislykt. Nokkrir stuðningsmenn ÍBV hafa sent frá sér myndband til að sýna mikilvægi […]

Lífeyrissjóðir jafnvel til taks

Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að koma að fjármögnun á smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju með kaupum á skuldabréfum, að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssamtaka lífeyrissjóða. Í fréttaskýringu um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir, að lífeyrissjóðir hafi verið í viðræðum við innanríkisráðuneytið, fulltrúa í sérfræðingahópi og undirbúningsnefnd um smíði ferjunnar. (meira…)

Herjólfur til �?orlákshafnar í fyrri ferð

Herjólfur siglir fyrri ferð til Þorlákshafnar í dag, mánudaginn 16. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir að vegna ölduhæðar og óvissu um dýpi í Landeyjahöfn, fari skipið í það minnsta fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar. Ákvörðun með síðari ferðina verði tekin um hádegi. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 8:00 og […]

Svör óskast

Nú þegar Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi hefur fagnað framkomnum frumvörpum um stjórn fiskveiða og veiðigjöld, þá telja Eyverjar óhjákvæmilegt að Sólveig Adolfsdóttir stjórnarmaður í Kjördæmisráði Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi, Guðrún Erlingsdóttir formaður Samfylkingarinnar í Vestmannaeyjum og þingmenn Samfylkingarinnar í kjördæminu upplýsi Eyjamenn, sem og aðra, um afstöðu sína til frumvarpanna. (meira…)

Breyttur siglingatími Herjólfs í dag

Herjólfur siglir siglir þriðju ferð í dag, sunnudag klukkan 15:30 en ekki 20:30 eins og áætlað var. Brottför úr Landeyjahöfn verður 17:00 en ekki 21:30 eins og áður var áætlað. Með kvöldinu er spáð vaxandi vindi, sem mun ná hámarki á morgun þegar spáð er 20 metra suðvestan átt. (meira…)

Annar dómarinn angandi af áfengisfýlu

Eins og áður hefur komið fram tapaði ÍBV fyrir Gróttu með einu marki í dag, sem þýðir að liðin verða að mætast í oddaleik í Eyjum á mánudaginn. Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV var einstaklega harðorður í garð dómara leiksins í viðtalið á Sport.is og segir að annar þeirra hafi ekki verið í ástandi til að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.