Lundinn mættur til Eyja

Fyrstu lundar vorsins eru mættir til Eyja en um klukkan tvö í dag sáust fjórir lundar norðan við Valshilluhamar í Höfðavík. Þetta kemur fram á vef Náttúrustofu Suðurlands en þar segir jafnframt að undanfarin ár hafi lundin sest upp í hlíðar og björg Vestmannaeyja um 14. apríl. (meira…)
Enn tapa Eyjamenn í undirbúningsleikjum

Eyjamenn töpuðu fjórða leik sínum í 2. riðli Lengjubikarsins í dag þegar þeir töpuðu 1:2 fyrir 1. deildarliði KA. Gengi Eyjamanna í æfingaleikjum hefur verið frekar slakt, liðið vann þrjá leiki af sjö en allir þrír sigurleikirnir hafa verið gegn neðrideildarliðum. Þá vann ÍBV aðeins einn leik af þremur í Fótbolta.net mótinu og tapaði fyrir […]
Grótta knúði fram oddaleik við ÍBV

Grótta hafði eins marks sigur á ÍBV 20:19 í úrslitakeppni kvenna í handknattleik en leikið var á Seltjarnarnesi í dag. Staðan í hálfleik var 9:11 gestunum í vil en í þeim síðari reyndist Grótta sterkari. Liðin þurfa því að mætast öðru sinni í Vestmannaeyjum í úrslitaleik um það hvort liðið mætir Fram í undanúrslitum. (meira…)
Leikur tvö í dag

Úrslitakeppni N1 deildarinnar heldur áfram í dag, laugardag þegar ÍBV sækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið klukkan 14:00 í dag. ÍBV hafði betur í fyrri leik liðanna á fimmtudaginn, 26:19 og gæti með sigri í dag, tryggt sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins en tvo sigurleiki þarf til að komast áfram. (meira…)
Ný Heimaey VE 1 verður afhent á þriðjudaginn

Heimaey VE 1, nýtt og fullkomið fiskiskip Ísfélags Vestmannaeyja, verður formlega afhent á þriðjudaginn kemur, 17. apríl. Skipið var smíðað í ASMAR-skipasmíðastöðinni í Síle. Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, gerir ráð fyrir því að skipið leggi af stað í siglinguna heim til Íslands í næstu viku. Áætlað er að siglingin taki um þrjár vikur. (meira…)
Frosti ehf kaupir Smáey

Frosti ehf. á Grenivík hefur fest kaup á Smáey VE 144, 200 brúttólesta ísfisktogara frá Vestmannaeyjum. Smáey mun leysa frystitogarann Frosta ÞH 229 af sem seldur var til Kanada í febrúar sl. Kaupandi Frosta er Select Seafood Canada Ltd. Frosti hefur fengið nafnið Northern Alliance og heimahöfn þess er í Vancouver. (meira…)
Eimskipsmenn ánægðir með niðurstöðu útboðsins

„Við erum auðvitað fyrst og fremst ánægðir með að vera komnir að borðinu,“ sagði Gunnlaugur Grettisson, rekstararstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum en eins og áður hefur komið fram átti Eimskip lægsta tilboð í rekstur ferjunnar við endurnýjað útboð. Gunnlaugur segir samt sem áður ekki búið að semja við Eimskip um áframhaldandi rekstur og enn eru nokkrir […]
Eimskip með lægsta tilboðið

Nú fyrir stundu voru opnuð, í annað sinn, tilboð í rekstur Herjólfs en í lok marsmánaðar voru öll tilboð í rekstur skipsins dæmd ógild. Við opnun tilboðanna nú kom í ljós að Eimskip átti lægsta tilboðið eða tæpar 681 milljón króna. Þrjú fyrirtæki skiluðu inn tilboðum, Sæferðir, Samskip og Eimskip. Athygli vekur að tilboð Eimskips […]
Landeyjahöfn léttir lund

Brúnin léttist á Eyjamönnum um leið og Herjólfur siglir í Landeyjahöfn. Það kom berlega í ljós á laugardaginn fyrir páska. Þá hafði Herjólfur siglt til Þorlákshafnar frá 7. nóvember að frátöldum fimm dögum í desember. Sigling í Þorlákshöfn er að mati flestra engin óskastaða enda tekur hún minnst þrjá klukkutíma og í vondum veðrum getur […]
46 milljón króna munur á tilboðum í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar

Í gærdag voru opnuð tilboð hjá Siglingastofnun í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar sumarið 2012. Tvö tilboð bárust. Frá Björgun uppá kr. 38.050,- og frá Íslenska gámafélaginu uppá kr. 83.930,-. Verði niðurstaðan sú að lægra tilboðinu verði tekið, er dýpkunarskipið Skandia væntanlega á förum. (meira…)
Fékk reglugerð sem er ekki í gildi

ArtMedica, sem sérhæfir sig í tæknifrjóvgunum, sendi Guðbjörgu Erlu Ragnarsdóttur, sem missti eiginmann sinn úr krabbameini í mars, reglugerð sem er ekki lengur í gildi þegar hún spurði hvers vegna sæði manns hennar hefði verið eytt eftir að hann lést. (meira…)
�?ruggur sigur í fyrsta leik

Kvennalið ÍBV lagði Gróttu að velli í fyrstu umferð úrslitakeppni N1 deildarinnar í kvöld. Lokatölur urðu 26:19 en staðan í hálfleik var 13:6. Þórsteina Sigurbjörnsdóttir og Ivana Mladenovic voru markahæstar í liði ÍBV með sjö mörk hvor. Næsti leikur ÍBV og Gróttu fer fram á Seltjarnanesi og ef ÍBV vinnur, er liðið komið í undanúrslit […]
ÍBV tekur á móti Gróttu í kvöld

Kvennalið ÍBV tekur á móti Gróttu í kvöld í fyrstu umferð úrslitakeppni N1 deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 19:30 í Íþróttamiðstöðinni en Ester Óskarsdóttir, besti leikmaður ÍBV í vetur verður fjarri góðu gamni. Hún mun ekki spila meira með ÍBV í vetur þar sem hún er ólétt. Í hinni viðureign fyrstu umferðarinnar eigast svo við […]
Fyrirlestur um sjónauka

Á vegum Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja verður í kvöld, fimmtudag, fyrirlestur um sjónauka og stjörnukíka og hefst fundurinn kl. 19:30 í Safnahúsinu. Þar mun gestur frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness halda tölu um gerð og búnað og kenna notkun og meðferð þessara tækja sem ótrúlega margir eiga þrátt fyrir að þeir liggi oft ónotaðir á heimilinunum, svo nú er […]
Aðalfundi ÍBV frestað um klukkustund

Aðalfundur ÍBV-Íþróttafélags sem fyrirhugaður var klukkan 20:00 í kvöld frestast til klukkan 21:00 vegna leiks ÍBV og Gróttu sem hefst klukkan 19:30 í úrslitakeppni kvenna. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta á báða þessa viðburði. (meira…)
Svartur á leik

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir í kvöld klukkan 20:00 íslensku spennumyndina Svartur á leik sem slegið hefur öll aðsóknarmet í Reykjavík. Miðasala opnar 45 mínútum fyrir sýningu og miðaverð er 1500 kr. Ekki er tekið við miðapöntunum. (meira…)
Foreign Monkeys með nýtt lag

Rokksveitin Foreign Monkeys halda sína fyrstu tónleika í Vestmannaeyjum í langan tíma á morgun, föstudagskvöldið 13. apríl. Tónleikarnir fara fram á skemmtistaðnum Conero og opnar húsið klukkan 21:00. Tónleikarnir hefjast svo stundvíslegar klukkan 23:00. Foreign Monkeys mun flytja eitthvað af nýju efni sem sveitin hefur verið að vinna undanfarnar vikur en unnið er að nýrri […]
Bros á hverju andliti, þegar Landeyjahöfn virkar

Það er eins og bæjarbragurinn í Eyjum hafi orðið annar, eftir að Herjólfur fór að sigla í Landeyjahöfn að nýju. Og það þótt siglingar skipsins þangað miðist við flóðatöflu. – Nú heyrist fólk tala um að skreppa uppá land, bara sísona, og brosir út undir eyru. Fleira fólk leggur líka leið sína út í Eyjar. […]
28 tóku þátt í Vestmannaeyjameistaramóti FIFA

Um Páskahelgina var haldið fjórða Vestmannaeyjameistaramótið í tölvuleiknum FIFA í Playstation 3. Í þetta skiptið var mótið í boði Hallarlunds og Senu en mótið fór fram í Hallarlundi. 28 keppendur mættu til leiks og spiluðu tveir saman í liði. Að lokum var það liðið Eldurinn, sem þeir Björgvin Már Þorvaldsson og Valur Már Valmundsson skipa, […]
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar fimmtudag og föstudag, 12. og 13. apríl, þrjár ferðir.

Áætlun verður eftirfarandi: Brottför 12. og 13. apr. Frá Vestmannaeyjum 08:00 11:30 19:00* Frá Landeyjahöfn 10:00 13:00 20:30* *Ath breyttur brottfarartími frá reglulegri áætlun (meira…)