2500 miðar seldir í gær

Á miðnætti rann út síðasta tækifærið til að kaupa sér miða á Þjóðhátíð á 13.900 krónur. Frá og með deginum í dag kostar 16.900 í Dalinn og hækkaði miðinn því um 3.000 krónur. Þjóðhátíðin hefst föstudaginn 3. ágúst og stendur fram á morgun mánudaginsins 6. ágúst en um miðjan dag í gær var haft eftir […]

Erfitt að þýða upplýsingar af netinu

Norska línuveiðiskipið sem var stöðvað við veiðar á lokuðu svæði í gær er haldið aftur til veiða vestur af Vestmannaeyjum. Skipstjórinn kvartar yfir upplýsingagjöf íslenskra yfirvalda um vernduð hafsvæði. Norska skipið Ny Argo er gert út frá Álasundi í Noregi. Lögregla og tollayfirvöld lögðu hald á skjöl um borð við komu skipsins til Vestmannaeyja á […]

Líkamsárás, innbrot, rúðubrot og ólöglegar veiðar

Lögreglan hafði í mörg horn að líta yfir páskahelgina og var þó nokkur erill í kringum skemmtistaði bæjarins. Nokkuð var um kvartanir vegna hávara í heimahúsum og þá þurfti lögreglan að hafa afskipti af fólki vegna ölvunarástands þess. (meira…)

Síðasti dagurinn til að tryggja sér hagstæðasta miðann í Dalinn

Í dag, þriðjudaginn 10. apríl er síðasta tækifærið til að tryggja sér miða á Þjóðhátíð í sumar á hagstæðasta verðinu, eða 13.900 krónur. Á morgun hækkar miðinn í 16.900 og því um að gera að hafa hraðar hendur. Hægt er að kaupa miða á vefsíðu hátíðarinnar, www.dalurinn.is en samkvæmt síðunni er boðið upp á vaxtalausar […]

Herjólfur siglir tvær ferðir í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur mun sigla tvær ferðir á morgun, miðvikudag til Landeyjahafnar. Fyrri ferðin verður farin frá Eyjum klukkan 8:00 og sú síðari klukkan 20:30. Farið verður frá Landeyjahöfn klukkan 9:30 og 21:30. Þeir farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar kl. 08:00 færast í 08:00 ferðina til Landeyjahafnar. Þeir farþegar sem áttu bókað í ferð […]

Gunnar Már meiddist úti á Spáni

Ekki er víst að Gunnar Már Guðmundsson, miðjumaður ÍBV geti leikið með liðinu í upphafi tímabils. Gunnar Már meiddist í æfingaferð á Spáni í vikunni þegar hluti af hnéskelinni brotnaði, samkvæmd www.fotbolti.net. Á síðunni er haft eftir Magnúsi Gylfasyni að Gunnar Már gæti hugsanlega náð byrjun tímabilsins samkvæmt björtustu vonum, annars fljótlega eftir að mótið […]

Missti stjórn á mótorhjóli

Ung kona slasaðist í mótorhjólaslysi í Vestmannaeyjum í kvöld. Faðir hennar ók hjólinu og virðist hann hafa misst stjórn á því þar sem hann var á leið suður Kirkjuveg við Vestmannabraut. Dóttir mannsins var farþegi á hjólinu og meiddist hún eitthvað við fallið. Hún var flutt á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum til rannsóknar en talið er […]

Norska skipið í Vestmannaeyjum

Norska skipið Ny Argo kom til Vestmannaeyja seint í gærkvöld. Áhöfn þyrlunnar TF-GNÁ stóð línuveiðiskipið að meintum ólögmætum veiðum í Skeiðarárdýpi í gærmorgun og var skipinu gert að sigla til hafnar í Vestmannaeyjum. Skýrslutaka mun fara fram í dag. (meira…)

Landeyjahöfn í dag

Herjólfur siglir í Landeyjahöfn í dag en enn er siglt samkvæmt flóðatöflu. Skipið fer þrjár ferðir, frá Eyjum klukkan 8:00, 18:00 og 20:30 en frá Landeyjahöfn klukkan 9:30, 19:00 og 21:30. Þeir farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar kl. 08:00 færast í 08:00 ferðina til Landeyjahafnar, þeir sem áttu bókað í ferð 11:45 […]

Svartur á leik í bíóinu í kvöld

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir í kvöld klukkan 20:00 íslensku spennumyndina Svartur á leik sem slegið hefur öll aðsóknarmet í Reykjavík. Miðasala opnar 45 mínútum fyrir sýningu og miðaverð er 1500 kr. Ekki er tekið við miðapöntunum. (meira…)

�?rjár ferðir í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur mun sigla þrjár ferðir í Landeyjahöfn á morgun, annan dag páska. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að aðstæður í Landeyjahöfn séu góðar, utan þess að enn er unnið við dýpkun í og við höfnina. Af þeim sökum er nauðsynlegt að sigla samkvæmt flóðatöflu. Herjólfur siglir frá Eyjum klukkan 8:00, 17:00 og 19:15 en […]

Vilji til að lyfta hátíð­inni á hærra plan

Eins og fram kom í síðasta tölu­blaði Frétta, keypti þjóðhátíðar­nefnd fjölda ferða Herjólfs bæði fyrir og eftir þjóðhátíð. Félagið endurselur svo ferðirnar á vefsíðu hátíðarinnar, www.dalurinn.is en þar er einnig boðið upp á gistingu. Þessi framkvæmd hefur verið mikið rædd á kaffistofum bæjarins og sitt sýnist hverjum. Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar svaraði nokkrum spurningum blaðsins […]

Siglir tvær ferðir í Landeyjahöfn síðdegis

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar seinni ferðir laugardag, tvær ferðir. Aðstæður þar eru góðar utan þess að dýpi en enn ekki komið í það ástand að hægt sé að sigla þangað á öllum tímum. Þess vegna er nauðsynlegt að notast við siglingar eftir sjávarföllum þ.e. sigla á og við háflóð. (meira…)

Fimm til sex milljarða skattur á Eyjar og 30 til 50 störf í hættu

„Ljóst er að boðaðar breytingar á stjórn fiskveiða munu kollvarpa rekst­ri greinarinnar því skerðingar á aflaheimildum og upptaka á stærst­um hluta afkomunnar mun valda fjölda gjaldþrota í greininni ásamt því að stórskaða byggðarlagið okkar,“ segir Hörður Orri Grettis­son, í stjórnunarteymi Ísfélagsins. (meira…)

Töpuðu fyrir Víking �?lafsvík í dag

Knattspyrnulið ÍBV er þessa dagana í æfingaferð á Oliva Nova á Spáni. Liðið lék í dag síðari æfingaleik sinn í ferðinni þegar strákarnir léku gegn Víking Ólafsvík. Það voru Víkingar sem höfðu betur 1:0 en samkvæmt heimildum Eyjafrétta.is vantaði átta leikmenn í byrjunarlið ÍBV í leiknum. (meira…)

Kolsvartur húmor í frábærri sýningu

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi söngleikinn Banastuð á föstudagskvöldið. Undirritaður hafði litið við á æfingu í vikunni fyrir frumsýningardaginn og var verulega spenntur að sjá söng­leikinn í heild sinni. Banastuð stendur undir öllum þeim væntingum sem gera má til sýningarinnar, skemmtilegur og svartur húmor, góð lög og í einu orði sagt frábær sýning. (meira…)

Vel tekið á því í æfingaferð

Hér hefur veðrið ekki leikið við okkur, frekar skýjað og töluverð rigning með þrumum og tilheyrandi hræðslu hjá sumum leikmönnum. Æfingar hafa hinsvegar gengið vel og fínn mórall í hópnum. Tvær æfingar voru í gær, fimmtudag og var vel tekið á. Enduðum æfinguna á skalltennis, tveir saman í liði og sigurvegarar urðu Brynjar og Þórarinn […]

Herjólfur siglir seinni ferðir dagsins til Landeyjahafnar í dag fimmtudag

Ákveðið hefur verið að sigla til Landeyjahafnar tvær ferðir. Aðstæður í Landeyjahöfn er góðar utan þess að dýpi er ekki komið í það ástand að hægt sé að sigla þangað á öllum tímum. Af þeim sökum er nauðsynlegt að sigla eftir sjávarföllum þ.e. sigla á og við háflóð (meira…)

Blítt og létt í Höllinni í kvöld

Blítt og létt hópurinn mun halda fjölskylduskemmtun í dag, fimmtudaginn 5. mars (Skírdag) í Höllinni. Þetta er jafnframt síðasta skemmtun hópsins fyrir Færeyjaferð á næstunni. Skemmtunin hefst klukkan 20:30 en húsið opnar klukkan 20:00. (meira…)

Er skelfingu lostinn eftir fund

Nýtt sjávarútvegsfrumvarp hefur vakið upp mikil viðbrögð hjá útgerðum og sveitarfélögum víða um land sem telja sjávarútveg í núverandi mynd dauðadæmdan. Fréttir leituðu eftir áliti Arnars Hjaltalíns, formanns Drífanda-, stéttarfélags, á frumvarpinu og þeim álitamálum sem fjallað hefur verið um og snúa að skiptaverði í beinum viðskiptum milli sjómanna og útgerðarmanna. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.