Teknir með kannabis á útsýnispalli á Nýjahrauni
Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en engin alvarleg mál sem upp komu. Helgin fór ágætlega fram og lítið um útköll á skemmtistaði bæjarins. Í vikunni var lögð fram kæra vegna líkamsárásar sem átti sér stað aðfaranótt annars í páskum í Höllinni. Þarna hafði stúlka ráðist á aðra stúlku þannig að hún fékk mar og klór á upphandleggi. Eitt fíknefnamál kom upp í vikunni sem leið en lögreglan hafði afskipti af bifreið sem lagt var á útsýnispalli á Nýjahrauni en í bifreiðinni voru þrjú ungmenni. Lítisháttar af kannabisefnum fundust við leit í bifreiðinni og viðurkenndi eitt ungmenni að eiga efnið og telst málið upplýst að mestu.

Nýjustu fréttir

Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.