Eva Dögg Ungfrú Suðurland

Eva Dögg Davíðsdóttir, 18 ára Eyjastúlka, var í kvöld valin Ungfrú Suðurland. Keppnin fór fram á Hótel Selfossi en 14 glæsilegar stúlkur tóku þátt í keppninni. Fimm þeirra fara áfram í keppnina um Ungfrú Suðurland en Eva Dögg er eina Eyjastúlkan í þeim hópi. Arney Lind Helgadóttir var valin bjartasta brosið og Þórhildur Ósk Stefánsdóttir […]
Eyjamenn komust ekki í umspilið

Karlalið ÍBV komst ekki í umspilskeppnina og þegar upp er staðið í lok tímabils, eru Eyjamenn með næst lélegasta lið landsins. ÍBV endaði í næst neðsta sæti Íslandsmótsins sem er verulega langt undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið. Liðið virtist ætla að standa undir þeim kröfum enda vann liðið fyrstu fimm […]
Leikmenn ÍBV vel tryggðir hjá VÍS

Undirritaður hefur verið samningur milli Knattspyrnudeildar ÍBV og VÍS þess efnis að VÍS mun sjá um að tryggja alla leikmenn meistaraflokks ÍBV og í leiðinni gerist VÍS styrktaraðili ÍBV. Markmið VÍS er að leggja sitt af mörkum til að styðja íBV til góðra verka í efstu deild með von um áframhaldandi baráttu á toppnum. (meira…)
Drífa í U-20 ára landsliðinu

Handknattleikskonan Drífa Þorvaldsdóttir, leikmaður ÍBV, hefur verið valin í 16 manna hóp íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Drífa hefur komið reglulega við sögu í leikjum ÍBV í vetur en íslenska liðið leikur í undankeppni HM í Tyrklandi í byrjun apríl. (meira…)
Segir ríkið fara á svig við eigin reglur

„Sveitarfélögin eiga ekki að kveinka sér undan hertum kröfum og eftirliti hvað fjáhagsleg málefni varðar. Það er hins vegar bæði ófaglegt og óeðlilegt af stjórnvöldum að setja sveitarfélögum reglur um hvaða skuldbindingar þau eiga að telja fram í reikningum sínum og hvernig þær skuli reiknaðar, en gera svo ekki sett upp sitt bókhald í samræmi […]
Hræðsluáróður Eimskips?

Í grein á netsíðu Eyjafrétta 21. mars sl. „Ófært fyrir öll skip í vetur“ er vitnað í graf sem Guðlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Eimskips, hefur tekið saman. Þar er að finna ýmislegt athyglisvert. Vissulega hefur það sem af er þessum vetri verið erfitt er varðar veður og sjólag undan suðurströnd landsins. Sífellt hefur gengið á með […]
Ekkert sem bannar magnsölu miða

Á þriðjudagsmorgun var opnað fyrir sölu á ferðum með Herjólfi í kringum þjóðhátíð. Fljótlega upp úr því höfðu óánægðir viðskiptavinir samband við ritstjórn Frétta og sögðu farir sínar ekki sléttar, þar sem strax var orðið uppselt í allar ferðir á fimmtudegi og föstudegi fyrir verslunarmannahelgina og einnig eftir helgina. Einn viðskiptavinur hafði hringt strax klukkan […]
Mikill fjöldi á stofnfundi kom á óvart

Á hlaupársdag, miðvikudaginn 29. febrúar, var haldinn stofnfundur fyrir stjörnufræði- eða skoðunarfélag hér í Vestmannaeyjum. Á fundinum kom fram mikill áhugi því 16 manns mættu og samþykktu að stofna félag um þetta áhugamál og blása til stofnaðalfundar um málið á jafndægrum, þriðjudaginn 20. mars í Safnahúsinu og voru þrír kosnir til að undirbúa fundinn, þeir […]
Er verið að breyta Kastljósi í áróðursmálaráðuneyti?

Er verið að breyta Kastljósi RÚV í einhvers konar áróðursmálaráðuneyti ? Þar voru í fyrradag eru tekin fyrir viðskipti Hugins ehf. við About fish, eins og áhorfendur sáu og heyrðu. Því var haldið fram að við hefðum hætt í viðskiptum við About fish vegna einhvers konar misferlis eða undirverðlagningar sem ætti rætur að rekja til […]
Afhendingu á viðurkenningu frestað

Vegna flugófærðar verður fyrirhuguðu hófi ÍBV íþróttafélags í tengslum við fyrirmyndarfélag ÍSÍ frestað um óákveðin tíma. ÍBV íþróttafélag biður velunnara sína afsökunar á þessu. (meira…)
Dauðadómur fyrir langflestar útgerðir í Vestmannaeyjum

„Ef við skoðum árin 2000 til 2009 út frá gögnum Hagstofu Íslands sem útreiknað veiðigjald byggir á, þá kemur fram að hagnaður útgerðar yfir allt tímabilið er rétt tæpir 50 milljarðar, þ.e. eins og þetta hefur verið síðastliðin ár í því kerfi sem við búum við. Ef við reiknum þetta út frá því sem frumvarpið […]
Kári á sínum stað í landsliðshópnum

Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum sem samanstendur af 20 leikmönnum. Leikmennirnir eru valdir til undirbúnings fyrir forkeppni Ólympíuleikanna en riðill Íslands fer fram í Króatíu. Þar leikur liðið gegn Chile, Japan og heimamönnum í Króatíu. (meira…)
Sala á flugi um verslunarmannahelgina hafin til Eyja

Flugfélagið Ernir hefur hafið sölu á flugi til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Nú þegar hefur myndast töluverð eftirspurn og hefur verið bætt við fjölda fluga bæði á föstudeginum 3. ágúst og mánudeginum 6. ágúst. Fyrirhugað er að bæta við enn fleiri flugum eftir því sem eftirspurn verður meiri og sér Flugfélagið Ernir fyrir að geta bætt […]
Banastuð frumsýnt á morgun

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir söngleikinn Banastuð á morgun, föstudaginn 30. mars. Söngleikurinn er byggður á bandarísku B-myndunum The Evil Dead I og II ásamt The Army of Darkness. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, sem m.a. leikstýrði uppsetningu LV á Mamma Mía, sem sló öll aðsóknarmet félagsins. Leikgerðin er í höndum leikstjóra en verkið hefur verið staðfært […]
Florentina varði 27 skot gegn Stjörnunni

Florentina Stanciu var heldur betur í banastuði gegn sínu gamla félagi úr Garðabænum, Stjörnunni þegar liðin mættust í næst síðustu umferð N1 deildar kvenna. Florentina varði hvorki fleiri né færri en 27 skot, þar af eitt víti en ÍBV hafði betur í leiknum 30:24. Eins og gefur að skilja, var það fyrst og fremst góður […]
Hvert á að stefna atvinnugrein sem við stólum mest á?

„Mér sýnist að frumvarpið um stjórn fiskveiða sé nokkuð í anda þess sem boðað hefur verið að undanförnu. Tveir pottar niðurnegldir til framtíðar. En eitt stingur í augu fremur en annað. Það er ef mikil aflaaukning verður. T.d. ef þorskaflinn fer yfir 202.000 tonn þá fær litla kerfið til sín 60% af aukningunni. Alveg forkastanlegt […]
�?etta er ósanngjarnt!

Stjórn Mýrarboltafélags Íslands mótmælir harðlega þeim forréttindum sem Eyjapeyjar hafa fengið umfram okkur Ísfirðinga í samskiptum við Vegagerðina og Herjólf. Eyjamenn hafa dottið niður á snilldarfléttu með því að kaupa upp alla miðana í Herjólf um verslunarmannahelgi og þrátt fyrir að við berum mikla virðingu fyrir hugmyndaauðgi, erum við sárir og svekktir yfir að fá […]
�?leyfileg þjóðhátíðargisting seld

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hefur ekki fengið umsókn frá þjóðhátíðarnefnd um leyfi fyrir gistingu í íþróttahúsi bæjarins sem byrjað er að selja í forsölu. Þjóðhátíðarnefnd hefur keypt níu af hverjum tíu miðum í Herjólf dagana fyrir og eftir hátíðina fyrir rúmar 11 milljónir króna. (meira…)
�?rslitaleikur um þriðja sætið í kvöld

Í kvöld klukkan 19:30 tekur kvennalið ÍBV á móti Stjörnunni í N1 deildinni. Leikurinn er nánast úrslitaleikur um þriðja sæti deildarinnar en staðan er þannig að ÍBV er í þriðja sætinu með 18 stig en Stjarnan er í því fjórða með 16 stig. Sigur hjá ÍBV gulltryggir þeim þriðja sætið. (meira…)
Jet Black Joe með tónleika í Höllinni

Rokksveitin íslenska Jet Black Joe munu halda risatónleika í Höllinni miðvikudaginn 4. apríl næstkomandi. Allir Eyjamenn, sem eitthvað hafa fylgst með tónlist undanfarna áratugi, kannast við Jet Black Joe en um sannkallaðan stórviðburð er að ræða. Með í för verður Sigga Guðna, sem söng lagið Freedom með strákunum en lagið er eitt vinsælasta rokklag Íslands […]