Ekkert í gangi segir Tryggvi

Markaskorarinn mikli, Tryggvi Guðmundsson hefur verið orðaður við nokkur lið í slúðurpakka Fótbolta.net og í kaffistofuspjallinu. Tryggvi var lykilmaður í liði ÍBV í sumar, sem og síðasta sumar en leikmaðurinn gerði á sínum tíma þriggja ára samning við ÍBV og er eitt ár eftir af þeim samningi. (meira…)

�?rökstuddar fullyrðingar í Morgunblaðinu

Mjög margt áhugafólk um bættar samgöngur hefur lagt lóð sín á vogarskálarnar í umræðum um Landeyjahöfn, enda um mikilvæga framkvæmd að ræða. Fjölbreytt álit hafa verið uppi um forsendur og byggingu hafnarinnar, einkum og sér í lagi undanfarið ár. Órökstuddar fullyrðingar um málefnið báru uppi forsíðu Morgunblaðsins í gær sem varði jafnframt heilsíðu til umfjöllunar […]

Hoffman hættir

Eyjarokksveitin Hoffman hefur ákveðið að hætta. Þetta tilkynntu liðsfélagar sveitarinnar á fésbókarsíðu sveitarinnar í morgun en sveitin átti að spila á Airwaves tónleikahátíðinni sem hefst í vikunni. Sveitin er hættir hins vegar strax og mun ekki spila á hátíðinni. Ólafur Kristján Guðmundsson, söngvari sveitarinnar segir að liðsmenn Hoffman skilji í góðu, þreyta hafi einfaldlega orðið […]

Skarst á hendi í saunaklefa

Frekar rólegt var hjá lögreglu í vikunni sem leið og engin alvarleg mál sem upp komu. Helgin fór ágætlega fram en þó þurfti að hafa afskipti af fólki vegna ölvunarástands þess. Þá fékk einn að gista fangageymslu lögreglu vegna ölvunar og eignaspjalla. (meira…)

Stefnt að byggingu allt að 140 herbergja hótels

Í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ kemur fram að bæjaryfirvöld og Sextíu plús ehf. hafi komist að samkomulagi um að stefnt verði að byggingu allt að 140 herbergja hótels í svonefndri Hásteinsgryfju. „Þetta er sannarlega ánægjulegt fyrir okkur Eyjamenn enda hér um eina stórtækustu uppbyggingu í ferðaþjónustu á landinu öllu og sennilega eina af stærstu byggingaframkvæmdum í […]

Heimir ráðinn landsliðsþjálfari

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um ráðningu nýs landsliðsþjálfara í knattspyrnu. Þar kemur fram að líklega verði sænski þjálfarinn Lars Lagerbäck ráðinn á næstu dögum. Morgunblaðið fullyrðir ennfremur að Heimir Hallgrímsson, fyrrum þjálfari ÍBV verði ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins. (meira…)

Landeyjahöfn á röngum stað

Landeyjahöfn er á röngum stað og hafnargarðar hennar eru rangt hannaðir. Þetta er mat Halldórs B. Nellett, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og skipherra til margra ára. Halldór sendi Siglingastofnun og fleiri hagsmunaaðilum ítarlega greinargerð fyrir tæpu ári, með ýmsum ábendingum og athugasemdum um Landeyjahöfn. Hann hefur ekki fengið nein viðbrögð frá Siglingastofnun við greinargerð sinni. (meira…)

Töpuðu með þrettán gegn Val

ÍBV tapaði í kvöld fyrir Val á útivelli í N1 deild kvenna. Lokatölur urðu 33:20 en staðan í hálfleik var 14:12. Slakur sóknarleikur í síðari hálfleik varð ÍBV að falli en fyrir vikið komust Valsstúlkur í hraðaupphlaup sem þær nýttu mjög vel. (meira…)

Ian Jeffs áfram hjá ÍBV

Miðjumaðurinn sterki Ian David Jeffs skrifaði fyrr í dag undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við ÍBV. Ian Jeffs var einn af lykilmönnum ÍBV í sumar en hann kom til ÍBV á sínum tíma frá enska félaginu Crewe. Síðan þá hefur hann spilað með Fylki, Val og Örebro, áður en hann sneri aftur í […]

Víðar rætt um áhorfendastúku við knattspyrnuvelli landsins

Það er víðar en í Eyjum sem rætt er um byggingu á áhorfendastúku við knattspyrnuvelli. Eftir góða frammistöðu knattspyrnuliðs Ísafjarðar eða BÍ á síðasta sumri, eru nú uppi háværar raddir um stúkubygginu þar. Hefur Ísafjarðarbær lýst vilja til að úthluta lóð til byggingar hennar við Torfunesvöll, en vill ekki eiga fjárhagslega aðkomu að henni, hvorki […]

Verður Ráðhús Vestmannaeyja friðlýst

Á fundi húsafriðunarnefndar ríkisins í haust var samþykkt að fela forstöðumanni nefndarinnar, Pétri H. Ármannssyni, að undirbúa friðun gamla sjúkrahússins í Eyjum sem nú er Ráðhús Vestmannaeyja. Segir í samþykktinni að stefnt skuli að því að færa útlit hússins til upprunalegs horfs. Það þýðir að viðbyggingin sem er vestan Ráðhússins verður fjarlægð. (meira…)

Kvikmyndaröð um íslenskan sjávarútveg:

Á morgun, sunnudag kl. 18.00 verður ný íslensk þáttaröð um íslenskan sjávarútveg, forsýnd í Félagsheimilinu. Þættirnir eru gerðir af Jóni Hermannssyni, kvikmyndagerðarmanni. Þættirnir eru fimm talsins og morgun verður fyrsti þátturinn forsýndur. Hann fjallar um tímaskeiðið frá 1940 til ársins 1960. Vestmannaeyjar koma mjög við sögu í þessum fyrsta þætti, m.a. Binni í Gröf og […]

Eimskips­höllin kostar um hálfan milljarð

Nú liggja fyrir kostnaðartölur vegna Eimskipshallarinnar, fjölnota íþróttahússins við Hástein, þ.e.a.s. uppsetningu og frágang hússins. Lokatölur sýna kostnað upp á 412.463.845 krónur þar af eru aukaverk sem samið var um á samningstímanum 33.229.048 krónur. (meira…)

Til í að reyna að finna lausn

Á sunnudaginn lauk afleysingum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, í siglingum til Landeyjahafnar, þegar Herjólfur kom úr slippferð til Danmerkur. Gleðin yfir heimkomu Herjólfs var þó galli blandin þegar gefið var út að þessa viku, að minnsta kosti, verði siglt milli Eyja og Þorlákshafnar, þar sem dýpi sé ekki nægilegt fyrir Herjólf í og við Landeyjahöfn. Vegna óhagstæðs […]

Herjólfur siglir áfram til �?orlákshafnar

Herjólfur mun sigla áfram til Þorlákshafnar í næstu viku, eða frá 10. til 14. október næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip. Ástæðan er að dýpi er ekki talið nægjanlegt fyrir skipið í Landeyjahöfn en ákvörðun með framhaldið verður tekin þegar nær dregur. (meira…)

Skorið niður í Eyjum

Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur nú verið lagt fram og þar má finna tölur um framlag til stofn­ana. Heilbrigðisstofnun Vest­mannaeyja fær samkvæmt frumvarpinu, 663,6 milljónir á næsta ári og jafngildir það um 24.6 milljón króna lækkun að raun­gildi frá fjárlögum þessa árs. Í skýringum segir að lækkunin komi annars vegar til af 9.4 milljón króna lækkun […]

Mikið flogið til Eyja

Flugfélagið Ernir sinnir áætlunarflugi til Vestmannaeyja tvisvar á dag. Mikil eftirspurn er eftir flugi og hefur félagið sett upp margar aukaferðir til og frá Eyjum sökum þessi. Flognar verða þrjár ferðir til Eyja í dag og eru nú þegar komnar upp aukaferðir í næstu viku. Flugfélagið Ernir vill því koma því á framfæri að ef […]

Verður að finna nýja og hentugri ferju

Eimskip tilkynnti í síðustu viku að vegna vísbendinga um að dýpi í ­hafnarmynninu hafi minnkað vegna óveðurs undanfarna daga og öldugangs við Landeyjahöfn, yrði siglt milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í þessari viku. Sam­kvæmt heimildum Eyjafrétta er talið að Baldur hafi tekið niðri á sunnu­daginn en það hefur þó ekki fengist staðfest. Heimildamaður Frétta taldi jafnframt […]

Upptökumannvirki til umræðu á fundi Sjálfstæðismanna

Gestir laugardagsfundar í Ásgarði laugardaginn 8. október verða Ólafur Þór Snorrason og Friðrik Björgvinsson frá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar. Á fundinum munu þeir Ólafur Þór og Friðrik ræða um málefni skipalyftunnar, upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.