Verður að finna nýja og hentugri ferju
Eimskip tilkynnti í síðustu viku að vegna vísbendinga um að dýpi í ­hafnarmynninu hafi minnkað vegna óveðurs undanfarna daga og öldugangs við Landeyjahöfn, yrði siglt milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í þessari viku. Sam­kvæmt heimildum Eyjafrétta er talið að Baldur hafi tekið niðri á sunnu­daginn en það hefur þó ekki fengist staðfest. Heimildamaður Frétta taldi jafnframt ólíklegt að staðan í Landeyjahöfn myndi breytast mikið í vikunni þannig að siglt yrði áfram til Þorlákshafnar í næstu viku. Það bendir því allt til þess að veturinn verði lítið betri en sá síðasti hvað varðar siglingar í Landeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Íþróttamaður mánaðarins – Edda Dögg Sindradóttir
Grýla er komin með nóg af aðgerðarleysi Jólasveinanna
Áslaug Dís flutti aftur heim með fjölskylduna
ÍBV vann mikilvægan sigur á KA/Þór á Akureyri
Verslum í heimabyggð
Í þjónustu við útgerðir og Eyjamenn í 45 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.