Litlu mátti mun að alvarlegt slys yrði

Vikan var tíðindalítil hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Helst bar til tíðinda að litlu munaði að alvarlegt slys yrði þegar ökumaður í framúrakstri, ákvað að stýra bifreið sinni útaf veginum, til að forðast árekstur við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Samkvæmt vitnum mátti litlu mun að þarna hefði orðið alvarlegt slys, en betur fór en […]

Niðurskurður ríkisins varla undir rúmum milljarði

Elliði Vignisson, bæjarstjóri, ritaði þingmönnum Suðurkjördæmis bréf vegna niðurskurðar á fjárlögum ríkisins til verkefna í Vestmannaeyjum. Þar kemur m.a. fram að niðurskurður ríkisins til Vestmannaeyja sé í raun varla undir rúmum milljarði króna eða 33%. Elliði óskar eftir viðbrögðum þingmanna sem verða birt hér á Eyjafréttum ef einhver verða. Bréfið má lesa í heild sinni […]

Barnaborg gaf Kirkjugerði Brio kubba og borð

Á dögunum gaf verslunin Barnaborg leikskólanum Kirkjugerði Brio-kubba og Brio-borð sem hefur vakið gífurlega lukku hjá börnunum. Borðið er einkar aðgengilegt fyrir börn en á því eru lestarkubbar og lest sem gengur fyrir rafmagni, auk ýmissa fylgihluta. (meira…)

Karla- og kvennalið ÍBV lagði �?rótt í æfingaleik

Bæði karla og kvennalið Þróttar og ÍBV mættust í æfingaleikjum á gervigrasinu á Laugardal um helgina. ÍBV sigraði 5-4 í karlaflokki þar sem að Anton Bjarnason og Eyþór Helgi Birgisson skoruðu báðir tvívegis auk þess sem að Tryggvi Guðmundsson skoraði í sínum fyrsta leik með Eyjamönnum síðan hann kom aftur til félagsins frá FH. (meira…)

Kristófer með tvo vinninga eftir fjórar umferðir

Kristófer Gautason, ungur skákmaður úr Taflfélagi Vestmannaeyja teflir nú á Heimsmeistaramóti ungmenna í skák en mótið fer fram í Tyrklandi. Nú er fjórum umferðum lokið en Kristófer hefur unnið eina skák, gert tvö jafntefli og tapað einni skák. Í flokki Kristófers, 12 ára og yngri eru 149 keppendur frá 62 löndum. Kristófer er sem stendur […]

Starfsorka með opið hús í dag

Þegar sjúkdómar, slys eða önnur áföll henda getur farið svo að hæfni minnkar og fólk þarf að endur­skoða getu sína á ýmsum sviðum. Ýmislegt sem áður var auðvelt og jafnvel sjálfsagt getur nú verið óyfirstíganlegt. Til þess að ná sömu eða sambærilegri færni á ný er endurhæfing mikilvæg, en það ferli miðar að því að […]

Leggja áherslu á að fyrsta ferðin verði farin 1. júlí

Stýrihópur sem undirbýr nú þær breytingar sem verða með tilkomu Land-Eyjahafnar fundaði á dögunum. Í stýrihópnum eru Elliði Vignisson frá Vestmannaeyjabæ, Elvar Eyvindsson frá Rangárþingi eystra, Eydís Indriðadóttir frá Ásahreppi og Haukur Kristjánsson frá Rangárþingi eystra. Hópurinn leggur þunga áherslu á að staðið verði við þau fyrirheit að fyrsta ferð milli Vestmannaeyja og Land-Eyjahafnar verði […]

Eyjaliðin stóðu sig vel gegn Íslandsmeisturunum

Eyjaliðin ÍBV og KFS leika í sama riðli í Íslandsmótinu í Futsal, sem er aðeins öðruvísi útfærsla á innanhúsfótbolta en sú sem notuð var árum áður. Bæði liðin léku tvívegsi gegn Hvöt, sem var Íslandsmeistari í Futsal á síðasta ári og keppti m.a. á dögunum í Evrópukeppninni. ÍBV vann báða sína leiki örugglega á meðan […]

Eva Sveins varði Íslandsmeistaratitilinn

Eyjakonan Eva Sveinsdóttir gerði sér lítið fyrir og varði Íslandsmeistaratitil sinn í Íslandsmótinu í Icefitness sem fór fram í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ í gær. Þrjár konur tóku þátt í mótinu í ár en Eva varð fyrst Íslandsmeistari 2007, aftur í fyrra og varði titilinn aftur í ár. (meira…)

Rán um hábjartan dag

Eyjamenn gengu vægast sagt verulega vonsviknir af velli eftir viðureign sína gegn Selfossi. Eyjamenn virtust vera með pálmann í höndunum þegar skammt var til leiksloka en Selfyssingar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og unnu 23:25. Í stöðunni 23:24 sóttu Eyjamenn og Ingólfur Jóhannesson stökk inn úr horninu. Varnarmaður Selfyssinga keyrði hreinlega inn í Ingólf og […]

Aníta tryggði ÍBV sigurinn með marki á lokasekúndunum

Það var ekki margt sem benti til þess í fyrri hálfleik að ÍBV færi með sigurinn af hólmi þegar stelpurnar tóku á móti Fjölni/Aftureldingu í 2. deild Íslandsmótsins. Gestirnir voru mun sterkari í fyrri hálfleik og var engu líkara en að Eyjastúlkur hefðu engan áhuga fyrir leiknum. En stelpurnar mættu mun ákveðnari til leiks í […]

�?að er kannski óhætt að rugga bátnum, en við megum ekki hvolfa honum

Það gengur mikið á í sjávarútveginum þessa dagana, síld farin að berast á land sem er afar ánægjulegt, eins eru sum togskipin farin að beita sér í gullax með ágætum árangri og spara líka bolfiskkvótann, en það heitasta í dag eru sennilega þær breytingar sem núverandi sjávarútvegsráðherra hefur boðað. (meira…)

Handboltaveisla í íþróttamiðstöðinni í dag

Í dag verður sannkölluð handboltaveisla þegar kvenna- og karlalið ÍBV leika heimaleiki sína. Kl. 11.00 taka stelpurnar á móti sameiginlegu liði Aftureldingar og Fjölnis í 2. deild Íslandsmótsins. Stelpurnar mæta með sært stolt eftir tapleik um síðustu helgi gegn Víkingi. Karlaliðið er í sömu sporum eftir tap um síðustu helgi gegn Víkingum en þeir taka […]

Enn hægt að nálgast miða á Hláturinn lengir lífið

Gríðarleg eftirspurn hefur verið síðustu daga eftir miðum á uppistandið Hláturinn lengir lífið þar sem þau Þorsteinn Guðmunds, Helga Braga og Pétur Jóhann troða upp. Búið er að raða upp sætum fyrir um 700 manns í Höllinni og er uppselt á viðburðinn. Þó er enn möguleiki á að komast yfir miða því ósóttar pantanir verða […]

Tveir mikilvægir leikir í körfunni um helgina

Karlalið ÍBV í körfubolta leikur tvo mikilvæga leiki í 2. deildinni um helgina þegar Hekla kemur í heimsókn. Eyjamenn hafa verið á beinu brautinni eftir að nýr þjálfari tók við stjórn liðsins í síðasta mánuði og eru taplausir undir hans stjórn. Fyrri leikur liðanna verður í kvöld klukkan 19.00 en síðari leikurinn á morgun 16.00. […]

Einar K. Guðfinnsson á laugardagsfundi Sjálfstæðismanna

Á morgun, laugardag er fundur í Ásgarði kl:11:00 með Einar K. Guðfinnssyni fyrr. Sjávarútvegsráðherra. Það er ljóst að aðför vinstri stjórnar á lífæð Íslands er hafin. Sjávarútvegsmál skipta okkur Eyjamenn sem og aðra landsmenn miklu máli. Nú þegar er ljóst að með tillögum vinstri flokkanna um nýjar reglur um vigtun og skráningu sjávarafla muni koma […]

Kristófer Gautason á HM

Kristófer Gautason, ungur skákmaður úr Taflfélagi Vestmannaeyja, hóf keppni í gær á Heimsmeistaramóti ungmenna í skák, sem fram fer í Tyrklandi. Þrír íslenskir keppendur taka þátt í mótinu, auk Kristófers en allir koma þeir af landbyggðinni. Með krökkunum fer annar Eyjamaður, Helgi Ólafsson sem er jafnframt þjálfari krakkanna. (meira…)

Bertha, Sigurgeir og Sighvatur eru okkar fulltrúar í keppninni

Spurningakeppnin Útsvar sem er á dagskrá Ríkisútvarpsins nýtur mikilla vinsælda. Annað kvöld, laugar­dag, 14. nóvember er komið að því að Vestmannaeyingar keppi. Liðið sem keppir fyrir hönd Vestmannaeyja er skipað þeim Sighvati Jónssyni en hann keppti einnig fyrir hönd Vestmannaeyja í fyrra. Nýir keppendur eru Sigurgeir Jónsson og Bertha Johansen. Vestmannaeyingarnir keppa við Fljótsdalshérað en […]

Opið hús hjá Starfsorku á morgun

Starfsorka, starfsendurhæfing Vestmannaeyja, verður með opið hús að Miðstræti 11, á morgun föstudaginn 13. nóvember og einnig mánudaginn 16. nóvember. Bæjarbúar eru hvattir til þess að kíkja við í kaffi og forvitnast um þá þjónustu, sem þar fer fram. (meira…)

Svakalegt sjokk að heyra um dauða Enke

Knattspyrnuheimurinn varð fyrir miklu áfalli í vikunni þegar að Robert Enke, markvörður Hannover og þýska landsliðsins, framdi sjálfsmorð með því að ganga í veg fyrir lest. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Esbjerg, var hjá Hannover á sama tíma og Enke tímabilið 2006 og 2007. Gunnar Heiðar segir að það hafi verið mikið reiðarslag þegar hann frétti […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.