Að verða uppselt á grínkvöld

Annað kvöld, föstudaginn 13. nóvember verður án efa hlegið dátt í Höllinni í Eyjum þegar grínlandsliðið mætir á staðinn. Pétur Jóhann Sigfússon, Þorsteinn Guðmundsson og Helga Bragadóttir munu þá stíga á svið og flytja allt sitt besta efni. Mikil stemmning er fyrir grínkvöldinu sem gengur undir nafninu Hláturinn lengir lífið. Og verður væntanlega hægt að […]
Stefnt að því að gera �?rettándahátíðina að veglegri bæjarhátíð

Þrettándagleðin verður haldin 8. janúar 2010 en þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags, sem heldur hátíðina. Þar segir að komin sé nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleðina um helgin og til að nýta þau sóknarfæri sem þar leynast, hefur Vestmannaeyjabær, ásamt ÍBV-íþróttafélagi stofnað grasrótarhreyfingum með hagsmunaaðilum með það fyrir augum að gera Þrettándahelgina […]
Hefur verulegar áhyggjur af þeim tekjumissi sem sjómenn og útgerðarmenn verða fyrir

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa verulegar áhyggjur af þeim tekjumissi sem sjómenn og útgerðarmenn verða fyrir vegna gæðarýrnunar afla ef nýjar reglur um vigtun og skráningu sjávarafla ná fram að ganga. Auk þess býr Vestmannaeyjahöfn ekki yfir þeim tækjabúnaði, né aðstöðu til að mæta breytingunum ef af verður. Elliði Vignisson, bæjarstjóri óskar eindregið eftir því að […]
Annað tölublað af Litlu Fréttum kom út í vikunni

Þeir eru frískir peyjarnir sem litu við á Fréttum flaggandi nýju blaði sem þeir kalla Litlu Fréttir. Er þetta annað tölublaðið og þar er að finna fréttir úr bæjalífinu og skemmtiefni. Þeir skrifa allt í blaðið, taka myndir og brjóta um. Senda það síðan í Eyrúnu þar sem Gísli Foster keyrir blaðið út, brýtur saman […]
Stefnt að útboði á mannvirkjum Landeyjahafnar

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu samgöngu- og sveitastjórnaráðherra, Kristjáns L. Möller, að haldið verði áfram undirbúningi vegna útboða á samgönguframkvæmdum. Meðal framkvæmdanna eru mannvirki í Landeyjahöfn, þjónustuhús og ekjubrú og dýpkun hafnarinnar. Þá á að breikka Suðurlandsveg, austan við Litlu Kaffistofuna í 2 2 veg, í stað 2 1 eins og nú er. Fréttatilkynningu þess efnis […]
Verður af 150 milljónum án fyrirvara

Heildarskerðing framlaga Vestmannaeyjabæjar úr Jöfnunarsjóði fara úr 525 milljónum 2008 niður í 295 milljónir 2009 og nú liggur fyrir að þau verða enn lægri árið 2010. Þetta kom fram í bæjarráði á þriðjudaginn þar sem lá fyrir bréf frá samgönguráðuneytinu frá 26. október sl. vegna áætlaðra tekjujöfnunarframlaga 2009. (meira…)
Skötusel úthlutað gegn gjaldi í ríkissjóð

Athyglisverðasta breytingin á lögum um stjórn á fiskveiða í frumvarpi sem lagt hefur verið fram lýtur að veiðistjórnun á skötusel og gjaldtöku fyrir úthlutun aflamarks sem renna á í ríkissjóð. Í skýringum með frumvarpinu, sem Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði fram á þriðjudag, segir að útbreiðsla skötusels hafi breyst verulega frá því að aflaheimildum […]
Fiskveiðifrumvarp auki miðstýringu

Frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða felur í sér aukna miðstýringu. Þetta er mat framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Samkvæmt frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær á að auka skötuselskvóta um 2000 tonn. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, gagnrýnir að ekki eigi að úthluta auknum skötuselskvóta til þeirra sem eiga […]
Fyrstu skrefin á fyrningarleið

Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna segist ekki sjá betur en ríkisstjórnin hyggist taka fyrstu skrefin til að fyrna aflaheimildir með þeim breytingum á fiskveiðilöggjöfinni sem boðaðar eru í frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær. (meira…)
Duglegir leikmenn

Handknattleiksráð ákvað að fara í mikið aðhald í rekstri til að ná niður skuldum ráðsins. Við höfðum upplifað frábæran tíma í handboltanum þar sem bæði karla og sérstaklega kvennaliðið náðu frábærum árangri. Þetta kemur niður á þeim sem leika fyrir ÍBV í dag. Enginn leikmaður ÍBV í handbolta fær greitt fyrir að leika fyrir félagið. […]
Áætlaður kostnaður við Land-Eyjahöfn er um 3.5 milljarðar króna

Guðrún Erlingsdóttir varaþingmaður Suðurkjördæmis, beindi fyrirspurn til samgönguráðherra, um framkvæmdir við Land-Eyjahöfn Hún spurði hvort ráðherrann hyggðist tryggja nægt fé til að ljúka framkvæmdum við Land-Eyjahöfn þannig að siglingar Herjólfs geti hafist þangað í júlí 2010. (meira…)
Eyjamenn óheppnir með bikardráttinn

Karlalið ÍBV í körfuknattleik var í pottinum þegar dregið var í 16 liða úrslitum Subwaybikarkeppninnar fyrir stundu. Ekki verður sagt að Eyjamenn hafi dottið í lukkupottinn því ÍBV spilar við úrvalsdeildarlið Breiðablik á útivelli. Leikirnir í 16 liða úrslitum fara fram 5. og 6. desember. (meira…)
Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra leggur til breytingar á stjórn fiskveiða

Í dag leggur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason fram á Alþingi nýtt frumvarp. Frumvarpið er samið í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, en með því eru lagðar til breytingar á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Eru þær helstar eftirfarandi: (meira…)
Sítrónur 151,7% dýrari í 11/11 en í Krónunni

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun víðsvegar á landinu í samstarfi við stéttarfélögin Drífanda, Ölduna, Einingu Iðju og AFL-Starfsgreinafélag. Könnunin var gerð 27. október en Krónan og 11/11 í Vestmannaeyjum eru í könnuninni. Mesti verðmunurinn milli verslananna er í sítrónum en kílóverð í 11/11 er 151,7% hærra en í Krónunni og 112,6% munar á kílóverði á Kínakáli. […]
Lúpínufræi sáð í Bakkafjöru

Landgræðslan hefur nú lokið við að sá lúpínufræi í um þrjátíu hektara svæði á Bakkafjöru. Sáð var þar sem melgresi hafði verið sáð áður í þeim tilgangi að bæta jarðveg og spara áburð með því að nýta eiginleika lúpínunnar til áburðarframleiðslu. Þetta kemur fram á heimasíðu Landgræðslunnar. Þar segir að góð reynsla sé af sáningu […]
Sjómenn og útgerðamenn í Eyjum mótmæla reglubreytingu harðlega

Hagsmunaaðilar í Vestmannaeyjum; Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsbændafélagið Heimaey, mótmæla harðlega fyrirhuguðum breytingum á reglugerð nr. 224/2006 um vigtun og skráningu á sjávarafla. (meira…)
Búist við nýjum síldarkvóta í dag

Búist er við að sjávarútvegsráðherra tilkynni síðar í dag um kvóta á íslensku sumargotssíldina. Hafrannsóknastofnunin mælti fyrir helgi með fjörutíu þúsund tonna kvóta, sem er mun meira en menn bjuggust við í ljósi alvarlegrar sýkingar, sem hrjáir síldarstofninn. Veiðar úr þessum síldarstofni hafa reynst mikil uppgrip og skilað milljarðatekjum í þjóðarbúið undanfarnar vertíðar en megnið […]
Eyjamenn komnir í 16 liða úrslit

Karlalið ÍBV í körfubolta er komið í 16 liða úrslit bikarkeppninnar eftir frækinn útisigur á Reyni Sandgerði í gær. Lokatölur urðu 66:69 ÍBV í vil en staðan í hállfeik var 34:36 fyrir Eyjamönnum. Í lið Eyjamanna vantaði nokkra sterka leikmenn og því er sigur Eyjamanna enn fræknari. 32ja liða úrslitin klárast á morgun og verður […]
Barnaborg kaupir Dótakistuna

Eigendur verslunarinnar Barnaborgar hafa nú fest kaup á Dótakistunni í Vestmannaeyjum en báðar verslanirnar seldu leikföng. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá eigendum verslananna tveggja. Í vikunni var sagt frá því að eigandi Oddsins, nýrrar verslunar við Faxastíg, hefði verið búinn að festa kaup á Dótakistunni en samningar gengu ekki eftir og því leitaði eigandi […]
Myndum Jóa Stígs varpað upp á Ísfélagið

Myndum frá Jóhanni Stígssyni verður varpað á vegg á húsnæði Ísfélagsins við Strandveg, á húsgafl gömlu saltfiskvinnslu hússins sem nú er notuð sem geymsla fyrir fiskimjöl, á Nótt safnanna. Myndirnar eru hátt í þúsund talsins og eru aðgengilegar á www.heimaslod.is, undir nafninu Myndir Jóa Stíg. (meira…)