Rekstur Flugfélags Vestmannaeyja að komast í eðlilegt horf

Á fundi sínum á þriðjudaginn þakkaði bæjarráð skjót viðbrögð heilbrigðisráðuneytisins við erindi Vestmannaeyjabæjar um mikilvægi þess að sjúkravél sé öllum stundum staðsett í Vestmannaeyjum. Erindið var sent ráðuneytinu þegar lofthæfisskírteini flugvéla Flugfélags Vestmannaeyja, sem annast sjúkraflug fyrir Vestmannaeyjar, runnu út. Þar með talin flugvélin sem FV notaði til sjúkraflugs. FV brást við og hefur leigt […]
Andri �?lafsson í Grindavík?

Samkvæmt áræðanlegum heimildum Eyjafrétta hefur úrvalsdeildarlið Grindavíkur gert Andra Ólafssyni, fyrirliða ÍBV�??í knattspyrnu, tilboð um að leika með liðinu næsta sumar. Tilboðið er samkvæmt sömu heimildum mjög gott, svo gott að hugsanlega getur ÍBV ekki jafnað tilboðið. Andri er samningslaus og hefur verið í viðræðum við ÍBV en vitað var af áhuga nokkurra, ef ekki […]
Illa unnin verðkönnun á vegum ASÍ

Verðkönnun á vegum ASÍ var gerð hjá hjólbarðaverkstæðum á landinu. Hún var fljótfærnislega og illa unnin, segir Magnús Bragason á bloggsíðu sinni. „Fyrir tveimur dögum kom til mín kona og bað mig að svara könnun og ég yrði að gera það eins og skot. Þar átti ég að svara til um það hvað kostaði að […]
Leggja áherslu á samgöngumál við Eyjar

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fór fram í lok síðustu viku en þingið var haldi á Höfn í Hornafirði. Á ársþinginu voru samþykktar fjölmargar ályktanir um hin ýmsu hagsmunamál landshlutans en tvær ályktanir voru samþykktar um samgöngumál við Vestmannaeyjar, annars vegar vegna Land-Eyjahafnar og hins vegar varðandi flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Ályktanirnar má lesa hér […]
Spiluðu djass fyrir grunnskólakrakka

Nemendur í Hamarsskóla fengu góða heimsókn í morgun þegar tónlistarmennirnir Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosason og Gunnlaugur Briem litu við. Þeir félagar léku nokkur létt djasslög og kynntu djassinn fyrir nemendum skólans. Ekki var að sjá hverjir skemmtu sér best, nemendur, kennarar eða tónlistarmennirnir sjálfir enda mikið hlegið á tónleikunum. (meira…)
Nýjar reglur um jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Kristján Möller, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, hefur gefið út reglur um úthlutun aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga á árinu 2009, en þar er um að ræða einn milljarð sem skiptist á milli sveitarfélaga. (meira…)
Eldsupptök ókunn en enn stígur reykur frá rústunum

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og þá sérstaklega í kringum brunann sem varð í Lifrasamlagi Vestmannaeyja að morgni 15. október sl. Þá þurfti lögreglan, að vanda, að aðstoða borgarana við hin ýmsu atvik sem upp komu. Að morgni 15. október sl. var lögreglu tilkynnt um að reykur kæmi frá húsi […]
Brian McBastard á Volcano á föstudaginn

Það stefnir í frábært grínkvöld á Volcano Café næstkomandi föstudag. Þá verða hláturtaugar Eyjamanna þandar til hins ýtrasta en þá mun Eyjamaðurinn Sveinn Waage mæta með Skotann kjarnyrta Brian McBastard í farateskinu. Sveinn var kosinn Fyndnasti maður Íslands 1998 en Léttasta lundin 1991, Eyjamaðurinn Sveinbjörn Guðmundson mun hita upp fyrir Svein, eða McBastard. (meira…)
�?ú getur sagt þessum rauðhærða hottintotta…..

Tryggvi Þór Herbertsson hefur klagað Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, til siðameistara Alþingis – fyrir óviðeigandi munnsöfnuð í þingsal.Segir hann ráðherra hafa kallað sig „dvergvaxna sóðagrameðlu með neikvæðan hárvöxt“ og krefst þess að hann verði ávítaður og verði sviptur eftirrétti í mötuneyti Alþingis í heilan mánuð. (meira…)
Fjölmennasta Landsmót æskulýðsfélaga �?jóðkirkjunnar

Um helgina fór fram í Vestmannaeyjum stærsta Landsmót æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar sem haldið hefur verið til þessa en um 430 þátttakendur af öllu landinu tóku þátt í mótinu. Landsmótið hefði án efa verið mun stærra ef ekki hefði komið til flensufaraldur en um 150 manns þurftu að hætta við vegna inflúensunnar. Landsmótið var allt hið glæsilegasta […]
Vilja að ríkisstjórn dragi umsókn um aðildaviðræður við ESB til baka

Stofnfundur Heimssýnar í Vestmannaeyjum var haldinn í Golfskálanum í gær, sunnudaginn 18. október. Björn Bjarnason flutti framsögu en fundur samþykkti ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að draga umsókn um aðildarviðræður við Evrópusambandið til baka. Hægt er að lesa ályktunina í heild sinni hér að neðan. (meira…)
ÍBV strákarnir léku á allls oddi

ÍBV strákarnir sigruðu ÍR með 7 marka mun 32-25 hér í Eyjum í dag. Leikurinn fór fram í nýja salnum, en ÍBV lék sína leiki í gamla salnum í fyrra. Það var eins gott því mikill fjöldi áhorfenda mætti og var stemmningin eins og hún var í gamla daga. (meira…)
Ákveðið að ráða mann

Fjölskyldu- og tómstundaráð fundaði á miðvikudag í síðustu viku þar sem Jón Pétursson, framkvæmdastjóri, fór yfir stöðu ferðaþjónustu Vestmannaeyjabæjar fyrir aldraða og fatlaða. Hann kynnti hugmyndir að framtíðarskipulagi og þætti sem hafa komið upp varðandi ferðaþjónustuna. Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkti tillögu framkvæmdastjóra um að leigja bíl og ráða starfsmann til að annast akstur fyrir fatlaða […]
�?g samhryggist vini mínum Jóa innilega yfir þessum hörmulegu endalokum Lifrarsamlagsins

Georg Eiður Arnarson, er einn duglegustu bloggurunum í Eyjum og fjallar oft um athyglisverð mál og talar tæpitungulaust þegar svo ber við. Í nýjasta bloggi sínu rekur hann stutt minningarbrot frá störfum sínum hjá Lifrarsamlagi Vestmannaeyja á árum áður. Þá skammar hann Fréttir eins og hann gerir stundum og segir að Frjálslyndir stefni á framboð […]
Eygló fundar með Eyjamönnum á morgun

Eygló Harðardóttir, alþingismaður verður gestur FramsóknarfélagsVestmannaeyja á opnum stjórnmálafundi á Kaffi Kró sunnudaginn 18.október kl. 12 á hádegi. Búast má við snörpum umræðum um niðurskurð á landsbyggðinni,Evrópusambandið, sjávarútveginn og fleira. (meira…)
Leikur ÍBV og ÍR í handboltanum frestast til morguns
Þar sem ekki gaf til flugs í morgun, verður ekkert af leik ÍBV og ÍR í handboltanum í dag. Leikurinn hefur verið settur á morgundaginn, sunnudaginn 18. október kl. 13.30. (meira…)
Fundur Heimssýnar um Evrópumál frestast til sunnudags

Í dag kl. 13.00 var fyrirhugaður fundur Heimssýnar, hreyfingar sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. En þar sem ekki hefur verið flugveður í morgun, komst frummælandinn, Björn Bjarnason ekki til Eyja í tæka tíð. Fundurinn hefur því verið settur á kl. 13.00 á morgun, sunnudag, og verður í Golfskálanum. (meira…)
Verða að fækka um tvö rúm

Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fækka dvalar- og hjúkrunarrýmum á Hraunbúðum. Undanfarið hefur verið biðlisti eftir plássum en nú er heimilinu gert að draga saman um tíu milljónir króna á ári. Magnús Jónasson, forstöðumaður Hraunbúða, sagði að fyrirskipun væri um að fækka um eitt rúm á hvorri deild þ.e. eitt dvalarrými og eitt hjúkrunarrými. (meira…)
Maggi Eiríks, Ingi Tómas og Heimsmetshafinn

Nótt safnanna í Eyjum er fyrirmyndin að Safnahelgi á Suðurlandi sem verður haldin 6. til 8. nóvember. Kristín Jóhannsdóttir reið á vaðið með Nótt safnanna í Vestmannaeyjum með því að efna til viðburða á söfnum bæjarins í nóvembermánuði. Hugmyndin nær nú til alls Suðurlands með safnahelgi á helstu stöðum í kjördæminu. (meira…)
Vona að áhorfendur séu til í slaginn með okkur

Síðasta laugardag lék ÍBV sinn fyrsta leik í 1. deildinni þegar Eyjapeyjar sóttu Aftureldingu heim í Mosfellsbæ. Mosfellingum var spáð sigri í deildinni í árlegri spá fyrirliða og þjálfara liðanna á meðan ÍBV var spáð 5. sæti. Það þurfti því ekki að koma sérstak-lega mikið á óvart að Aftureldinga hafði betur, 27:22. Svavar Vignisson, þjálfari […]