Bændaglíman í dag

Nú sér fyrir endann á golfsumrinu en síðasta mót sumarsins ár hvert hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja er Bændaglíman. Mótið fer fram í dag og hefst klukkan 17.00. Mótið fer þannig fram að skipt er í tvö lið, líkt og í Ryderkeppninni og mun tapliðið þjóna sigurliðinu til borðs í veislu í mótslok. Fyrirliðar sveitanna eru í […]

Uppskeruhátíð í Gónhól á Eyrarbakka

Nú eru bændur og búalið að uppskera á fullu það sem sáð var til sl. vor og því ætla bændur á Suðurlandi að kynna og selja afurðir sínar í Gallerí Gónhól á Eyrarbakka um helgina, 20. og 21. september. Jafnframt fer fram í Gónhólnum síðasta myndlistarkeppni sumarsins í listasmiðju barna sunnudaginn 21. september kl. 15:00. […]

Bjargið kom úr kletti í Klifinu

Blaðamaður Eyjafrétta skaust upp á Klif nú í morgun með Jóni Sighvatssyni, rafeindavirkja en enginn hefur farið jafn oft upp á fjallið og Jón. Eins og fram kom hér á vefnum fyrr í vikunni féll stærðarinnar bjarg úr Klifinu, líklega um 30 tonn að þyngd og endaði aðeins um meter frá vegslóða í Friðarhöfn. Nú […]

�?að er hollt að hlægja

Það er hollt að geta hlegið. Sumir hafa þann góða eiginleika að hlægja smitandi hlátri. Hvaða Eyjamaður þekkir t.d. ekki þegar Guðgeir Matthíasson hlær. – Þá hlægja allir í kringum hann, þótt ekkert fyndið sé í gangi, nema hláturinn hans. Hér er lítið myndband um ungan dreng, sem hefur þennan eiginleika. (meira…)

Uppskeru- og réttarhátíð 24. september

Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi boðar til uppskeru- og réttarsamkomu miðvikudagskvöldið 24. september nk. kl. 20:00 í einu af félagsheimilum sinna manna í Veitingahúsinu Hafinu bláa við Ölfusárósa. Þakkað verðu gott og gjöfult sumar til lands og sveita og fagnað upphafi vertíðar til sjávarins. Á borðum verður rammíslensk kjötsúpa og þjóðleg hausastappa úr þorskhausum. (meira…)

Hvergerðingar keppa í kvöld

Keppnislið frá Hveragerði keppir í kvöld föstudag 19. september kl. 20:15 í spurningaþættinum Útsvari í Ríkissjónvarpinu. Liðið keppir við fulltrúa Norðurþings. Lið Hveragerðis: Svava Hólmfríður Þórðardóttir, lyfjafræðingur, Sævar Þór Helgason, grunnskólakennari og Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur. (meira…)

Geðheilbrigðisþjónusta fyrir almenning

Í framhaldi af samningi um tilflutning verkefna var ákveðið að efla og bæta geðþjónustu við almenning á Suðurlandi. Þann 1. september sl. hófst þessi starfsemi og hefur Dröfn Kristmundsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til starfa við HSu. Hún mun starfa sem deildarstjóri hjúkrunar í fangelsinu á Litla Hrauni auk þess sem hún mun að hluta […]

Jarðgöng undir �?lfusá

Bæjarstjórn Árborgar vill láta kanna kostnað og hagkvæmni þess að gera jarðgöng undir Ölfusá í stað brúar sem á að reisa þar vegna flutnings Suðurlandsvegar. Suðurlandsvegurinn kemur til með að enda í þeirri mynd sem við þekkjum hann skammt austan við Biskipstungnabraut um tveimur kílómetrum frá Selfossi. Hann á að taka beygju í átt að […]

Kýldi mann og annan og sveiflaði trékylfu

Héraðsdómur Suðurlands dæmdir í dag karlmann í fimm mánaða fangelsi, þar af fjóra mánuði skilorðsbundna, fyrir ýmis brot, þar á meðal húsbrot, líkamsárás og vopnalagabrot. Ákæra á hendur manninum var í átta liðum. Var honum gefið að sök að hafa í fyrra ruðst inn í íbúð í heimildarleysi og unnið þar skemmdir á hurðum. Þá […]

50 þúsund grunnskólabörnum boðið upp á mjólk

Þann 24. september næstkomandi verður alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur í níunda sinn. Í tilefni dagsins býður Mjólkursamsalan öllum grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum og má reikna með að þar verði drukknir 12.000 lítrar af mjólk. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim en það er Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna sem hvetur til að […]

Hanna á skip sam­hliða við­ræðum við skipasmíðastöð

Það hefur verið athyglisvert að fylgj­ast með framgangi mála í kjölfar útboðs á smíði nýrrar ferju til siglinga milli Bakkafjöru og Vest­mannaeyja. Reyndar hefur þetta mál og öll meðferð þess verið ákaflega sérstök og reyndar allt að því undarleg á köflum. Sumt hefur orkað tvímælis og annað er örugglega á mörkum þess að standast eðlilega […]

�?ú á svarta sportbílnum!

Síðustu misseri hefur svartur sportbíll stundað hraðakstur á götum bæjarins Strembugatan virðist vera leiksvæði hans, hann er örugglega langt á öðru hundraðinu alla leið að flugvelli. Hann stundar þennan hraðakstur upp Strembugötu oft á dag. Í gærkvöldi var hann í kappakstri við rauðan sportbíl upp Strembugötu. Ég veit að kvartað hefur verið til lögreglunna og […]

Tel að umtalið geti orðið til góðs

Óhætt er að segja að bók Sigurgeirs Jóns­sonar, Viðurnefni í Vestmannaeyjum, sem út kom fyrr á þessu ári, hafi hlotið blendnar viðtökur. Ritað hefur verið um bókina í blöðum og á netinu. Þar hafa sumir þeir sem fjallað hafa um bókina ekki sparað stóru orðin. Gísli Pálsson mannfræðiprófessor skrifaði langa grein um bók Sigurgeirs í […]

Mezzoforte á leið til Vestmannaeyja

Hin goðsagnakennda hljómsveit Mezzoforte sækir Vestmannaeyjar heim í byrjun október. Tilefnið er að taka upp efni í nýju og glæsilegu stúdíói í Vestmannaeyjum – Island studios – ásamt því að blása til tónleika. Það er óhætt að segja að koma hljómsveitarinnar til Vestmannaeyja sé sannkallaður hvalreki á fjörur tónlistaráhugamanna. (meira…)

Há tíðni eineltis samkvæmt könnun

Einn af hverjum fjórum ríkisstarfsmönnum telur sig hafa orðið vitni að einelti á núverandi vinnustað á síðustu 12 mánuðum. Ekki er um breytileika að ræða í svörun eftir aldri, menntun eða starfsaldri. Rúmlega 10% ríkisstarfsmanna telja sig hafa orðið fyrir einelti í starfi á síðustu 12 mánuðum. Ekki mældist marktækur munur milli kynja. Þeir starfsmenn […]

Selfoss-ÍBV kl 16.00 á laugardag.

Athyggli skal vakin á breyttum leiktíma á stórleik Selfyssinga gegn Eyjamönnum. Leikurinn verður laugardaginn 20. september kl 16.00. Allir eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á Selfoss liðinu í þessum mikilvæga leik. Von er á mörgum Vestmannaeyjingum, enda munu þeir taka á móti bikarnum fyrir sigur í 1. deild strax eftir leik. […]

Löggæsla leggist nánast af

Varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi segir að löggæsla muni nánast leggjast af í Árnessýslu um áramótin verði sex lögreglumönnum sagt upp á svæðinu eins og til stendur að gera, þar sem ekki fæst nægilegt fjármagn til að halda mönnunum í vinnu. Mikið álag er á lögreglumönnum á Selfossi, t.d sinnti aðeins einn maður á lögreglubíl […]

Vestmannaeyjaskipin með um þriðjung makrílaflans

Vestmannaeyjaskipin hafa veitt rösklega þriðjung af heildar makríl­afla íslensku skipanna í sumar og haust. Alls nemur makrílafli allra íslensku skipanna liðlega eitt hundr­að þúsund tonnum og þar af eru Vestmannaeyjaskipin með rúmlega 35 þúsund tonn. Stærstur hluti aflans hefur farið í bræðslu og mjög gott verð hefur verið fyrir mjöl og lýsi. Því má segja […]

Konukvöld í Höllinni 29. nóvember

Konukvöld Hallarinnar verður haldið þann 29. nóvember og muna allt verða gert vitlaust það kvöld. Búið er að bóka engan annan en Pál Óskar til að halda uppi stuðinu og Beggi og Pacas úr Hæðinni verða veislustjórar. Dagskráin er enn í mótun og munu þær Margrét Hildur hárgreiðslumeistari og Hjördís Elsa sjá um að gera […]

Karlakór Selfoss að hefja vetrarstarfið

Karlakór Selfoss verður með opið húsi í Karlakórsheimilinu að Eyravegi 67 á morgun fimmtudag 18. september kl. 20:00 Vetrarstarf kórsins verður kynnt og heimasíða kórsins formlega tekin í notkun. Nýir og gamlir félagar eru hjartanlega velkomnir og nú er stæði fyrir söngmenn í allar raddir.Nú er kjörið tækifæri til að kynna sér hið öfluga starf […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.