Bærinn og Eyjaskokk í samstarf
puffin_run_heimakl
Vestmannaeyjabær og Eyjaskokk hafa gert með sér samstarfssamning vegna The Puffin Run og Vestmannaeyjahlaupsins. Eyjar.net/TMS

Vestmannaeyjabær og Eyjaskokk hafa gert með sér samstarfssamning vegna The Puffin Run og Vestmannaeyjahlaupsins. Var samningurinn undirritaður þann 30. apríl sl. af Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra, Sigmari Þresti Óskarssyni og Magnúsi Bragasyni, fulltrúum Eyjaskokks.

The Puffin Run er utanvegahlaup í byrjun maí í fallegu umhverfi Vestmannaeyja og í ár fer það fram næstkomandi laugardag. 1400 þátttakendur eru skráðir sem er metþátttaka. Vestmannaeyjahlaupið fer síðan fram í september. Markmiðið með samningnum er að styðja við heilsueflandi samfélag, kynna það sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða og lengja ferðaþjónustutímabilið, segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.