Best að fara með þær út á Hamar
Olíublaut pysja sem fannst í höfninni. Ljósmynd/Sea Life Trust Beluga Whale Sancutary, Facebook

Töluvert hefur fundist af pysjum og hefur 151 pysja verið skráð inn á lundi.is.

„Pysjurnar í ár eru bæði fyrr á ferðinni og þyngri en flest undanfarin ár. En hvort tveggja er í raun eins og þetta á að vera í eðlilegu árferði hjá lundanum,“ segir í færslu á Facebook-síðu Pysjueftirlitsins.

Björgunarfólk er beðið um að skrá pysjurnar sem það finnur og að vigta þær ef það hefur tök.

Eiga ekki mikla möguleika

Sea Life Trust gaf frá sér áminningu á Facebook-síðu sinni í vikunni að sleppa pysjunum ekki við höfnina eða á Skansinum og fara frekar með þær út á Hamar.

Í höfninni geta pysjurnar lent í olíu og ef þær nást ekki þá eiga þær ekki mikla möguleika.

Margrét Lára sett í bað

„Þessi lundapysja fannst í höfninni fyrir 2 dögum og voru það vinir okkar á Ribsafari sem komu með hana til okkar. Hún var olíublaut og þurfti því að þvo henni vel og þurrka áður en hún fór svo í hlýjuna undir hitalampa,“ segir í færslu frá Sea Life Trust um pysjuna sem sjá má á meðfylgjandi myndum.

 

Gæti verið mynd af puffin
Pysjan fékk nafnið Margrét Lára Viðarsdóttir. Ljósmynd: Sea Life Trust Beluga Whale Sanctuary, Facebook
Myndlýsing ekki til staðar.
Þónokkrir fuglar hafa verið að finnast í höfninni. Ljósmynd: Sea Life Trust Beluga Whale Sanctuary, Facebook

Nýjustu fréttir

Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.