Bókin Guðni – Flói bernsku minnar
16. desember, 2022
Gamli bærinn á Brúnastöðum sem var sjötíu fermetrar. Hann lét Ágúst Þorvaldsson byggja árið 1932 en þar var búið til 1956. Mynd úr safni Ásdísar Ágústsdóttur frá Brúnastöðum.
Guðni og hundurinn Silfra

Þriðjudaginn 20. desember mætir Guðni Ágústsson út í Eyjar og kynnir bók sína, Guðni: Flói bernsku minnar á veitingastaðnum Einsa Kalda á milli 12.00 og 13.30. Boðið verður upp á dýrindis súpu og góða skemmtun.

Guðni Ágústsson ólst upp í Flóanum upp úr miðri síðustu öld í sextán systkina hópi – með annan fótinn í fornum tíma. Hér sest hann upp í bíl og býður lesandanum í ferð á vit æskustöðvanna í fortíð og nútíð.

Guðni segir sögur af fólki, jafnt kynlegum kvistum sem virðulegum stórmennum. Hann er einlægur í frásögnum sínum en glettnin er aldrei langt undan. Og merkja má söknuð eftir veröld sem var, þegar hugur var í mönnum og sveitirnar að styrkjast.

Einlægasti kafli bókarinnar er sagan af Ingveldi móður Guðna og uppeldinu á Brúnastöðum en þau Ágúst eignuðust sextán börn á 21 ári við aðstæður þar sem engin rafmagnstæki voru til staðar lengi vel, og stærð hússins aðeins sjötíu fermetrar. Teikning Sigmunds er frábær söguleg heimild þar sem krakkarnir kúra tvö í hverju rúmi.

Guðni segir móður sína hafa verið kallaða huldukonuna á Brúnastöðum en í litlum hópi vina hafi hún átt fallegasta brosið og skærasta hláturinn.

Ingveldur Ástgeirsdóttir á Brúnastöðum. Mynd úr safni Ásdísar Ágústsdóttur frá Brúnastöðum.

Hér er lýsing Guðna á móður sinni í bókinni:

Ég held að rétt sé að spyrja tveggja spurninga: Hver var Ingveldur Ástgeirsdóttir og hver voru afrek hennar í lífinu? Hún var ein af þessum kyrrlátu konum í sveit, húsmæðrum sem unnu sitt verk í hljóði og unnu á við þrjá, vöknuðu fyrstar og sofnuðu seinastar á kvöldin. Húsfreyjurnar sem notuðu hverja ferð til að taka til; hún var alltaf að, þótt mörgum þætti hún aldrei fara óðslega að neinu og ekki hækkaði hún róminn. Bjó hún yfir einhverju jafnaðargeði sem var yfirnáttúrulegt. Í hógværð sinni átti hún fallegasta brosið á hverri ljósmynd og var eins og stórstjarna. Nágrannar hennar og vinir vissu líka að hún átti skæran hlátur og var skemmtilegust allra á góðri stund, ekki síst í litlum hópi og meðal frændfólks og vina.

Þeir Guðni og Guðjón gerðu víðreist um Flóann. Þeir fóru meðal annars í gamla Villingaholtshreppinn. Þar rifjuðum þeir upp söguna af hinni fornu kempu, Höskuldi á Hofsstöðum í Hálsasveit, en hann bjó fyrstu árin í Flóanum, að bænum Saurbæ. Hér fylgir með skemmtilegur texti um samskipti þeirra Höskuldar og Björns Blöndal.

Björn Blöndal var löggæslumaður sem leitaði að víni. Hann var harðsnúinn í sínum störfum en áður hafði hann verið erindreki Alþýðuflokksins. Þeir sem höfðu sama starfa og Björn voru gjarnan kallaðir þefarar. Björn fór margar herferðir til Höskuldar í Saurbæ til að leita að vínföngum. Eitt sinn kom hann við hjá hreppstjóranum í Flögu, Magnúsi Árnasyni, sem þá sendi einn krakkann sinn hlaupandi eða ríðandi að Saurbæ til að vara Höskuld við. Þetta sagði mér Guðrún dóttir Magnúsar sem er látin fyrir nokkrum árum en hún varð hundrað ára gömul. Magnús gaf Birni og fylgdarliði kaffi og spjallaði við þá og gaf Höskuldi þannig ráðrúm til að bregðast við. Eftir kaffið í Flögu stýrði Björn ærlegri leit í Saurbæ og sneri öllu á hvolf en fann ekkert. Eftir leitina verður Höskuldi litið upp á mýri og sér að Björn hafði snúið við og er að koma til baka að Saurbæ. Hann ávarpar Höskuld og segist hafa séð nýtekna gröf í hlaðvarpanum og nú ætli hann að grafa hana upp. „Gerið þið það,“ segir Höskuld-ur og stóð yfir þeim meðan grafið var. Þeir koma fljótt niður á nýskotinn hund, þá segir Höskuldur þessa frægu setningu: ,,Þarna liggur hundurinn grafinn.“ Þeir héldu heldur sneyptir á braut, en hefðu þeir grafið dýpra hefðu þeir komið niður á bruggtæki bóndans.

Líkt og sjá má af þessu textabroti var líkt og nú ríkulegt mannlíf í Flóanum.

Bókin er í senn fróðleg og skemmtileg aflestrar, Eftir að sagnfræðingurinn Lýður Pálsson lauk við að lesa bókina, komst hann svo að orði: „Ég gat ekki lagt hana frá mér og las hana í einum rykk á fimm klukkustundum.“

Svona sá Sigmund Jóhannsson, sem lengi var skopmyndateiknari Morgunblaðsins, litla gamla bæinn á Brúnastöðum. Tvímennt var í öllum rúmum, börnin orðin tólf og foreldrarnir sváfu með yngstu börnin. Ekki má gleyma Snata sem svaf sínum væra blundi í anddyrinu. Mynd úr safni Guðna Ágústssonar frá Brúnastöðum.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 1 Tbl 2025
1. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst