Bólusetningar við Covid í Vestmannaeyjum ganga samkvæmt áætlun og í þessari viku er áætlað að ljúka bólusetningum fyrir 80 ára og eldri. Það eru einstaklingar sem eiga lögheimili í Vestmannaeyjum og eru fæddir 1941 eða fyrr. Ef ekki hefur náðst í einstaklinga í þeim hópi , sem óska eftir bólusetningu eru þeir/aðstandandur beðnir um að hafa samband við heilsugæslu HSU í Vestmannaeyjum í síma 4322500.
Í næstu viku er síðan áætlað að bólusetja slökkviliðsmenn og annað heilbrigðisstarfsfólk í Vestmannaeyjum og síðan verður haldið áfram samkvæmt áætlun Landlæknisembættis og eftir því hvernig bóluefni berst.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.