Breytingar á áætlun Herjólfs
herjolf_bjarnarey
Herjólfur. Myndin er tekin þegar ferjan kom til landsins sumarið 2019. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már Sæmundsson

Herjólfur ohf. hefur sent út tilkynningu varðandi siglingar dagsins í dag. Þar segir að Herjólfur stefni til Landeyjahafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 14:30 og 17:00. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 15:45 og 20:45. Aðrar ferðir hafa verið felldar niður þ.e. 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15.

Sunnudagurinn 15. Desember

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 (áður 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45 (áður 20:45). Aðrar ferðir hafa verið felldar niður.

Hvað varðar siglingar á mánudaginn 16.desember verður gefin út tilkynning um kl 06:00 mánudagsmorgun.

Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.