Dagdvalarrýmum fjölgar

Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir stöðu dagdvalar aldraðra á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær. Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði fyrir aldrað fólk sem býr í heimahúsum og er ætlað að rjúfa félagslega einangrun og viðhalda færni einstaklinga til að geta búið sem lengst í sjálfstæðri búsetu. Dagdvölin er opin frá kl. 9 -16 alla virka daga og er staðsett í vesturenda Hraunbúða. Vestmannaeyjabær hefur heimild frá ríkinu fyrir rekstur á 10 almennum dagdvalarrýmum. Þau rými eru meira en fullnýtt. Allt að 13 – 14 manns nýta sér dagdvölina á morgnana en eftir hádegi getur hópurinn orðið allt að 16 – 18. Á biðlista eru 8 manns og ljóst að þörfin á þjónustu dagdvalar mun aukast á næstu árum. Vestmannaeyjabær er því að veita mun fleiri úrræði en greitt er fyrir af hálfu ríkisins. Sótt hefur verið um heimild fyrir fleiri rýmum og nýlega fékkst leyfi fyrir 5 sérhæfðum dagdvalarrýmum. Þau eru þó háð ákveðnum skilyrðum s.s. varðandi aðstöðu og þjónustu. Framkvæmdastjóri fór yfir hugmyndir að breytingum m.a. á núverandi aðstöðu dagdvalar til að koma til móts við skilyrðin sem sett eru, sem og til að bæta almennt aðstöðu dagdvalar.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.