Dagný Hauksdóttir ráðin rannsókna- og þróunarstjóri Bláma

Dagný Hauksdóttir hef­ur verið ráðin rannsókna- og þróunarstjóri Bláma, sam­starfs­verk­efn­is Lands­virkj­un­ar, Orku­bús Vest­fjarða og Vest­fjarðastofu. Hlutverk hennar er að vinna að ný­sköp­un og þróun tæki­færa í orku­skipt­um. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.

Dagný starfaði áður sem skipulags- og umhverfisfulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ þar sem hún hafði m.a. umsjón með skipulagsgerð og mótun umhverfisstefnu fyrir bæjarfélagið. Áður starfaði Dagný sem verkefnastjóri Jarðhitagarðs Orku Náttúrunnar, þar sem auðlindastraumar frá Hellisheiðarvirkjun eru nýttir til verðmætasköpunar eftir hugmyndafræði hringrásarhagkerfis.

„Nýsköpun á sviði orkunýtingar og orkuskipti í sjávartengdri starfsemi eru spennandi verkefni.  Vegna nálægðar við sjávartengda starfsemi og fiskimið eru Vestfirðir kjörinn vettvangur til að þróa, prófa og nýta lausnir á sviði grænnar orkunýtingar.

Til að tryggja samkeppnishæfni Vestfjarða í nýjum og sjálfbærum atvinnugreinum er lykilatriði að samhliða uppbyggingu þeirra sé hugað að orkuskiptum og umhverfismálum. Jafnframt að Vestfirðir sýni framsýni hvað varðar tækifæri sem nýir atvinnuvegir og orkuskipti munu hafa í för með sér til framtíðar,“ segir Dagný sem mun hefja störf hjá Bláma í júlí.

Dagný er með BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún lauk masters- og doktorsgráðu frá Danska Tækniháskólanum (DTU) í samstarfi við framsækin vöruþróunarfyrirtæki eins og Danfoss og Novo Nordisk.  Dagný stundar sem stendur nám í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands.

Nýjustu fréttir

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.