Ekkert siglt í dag, veltiuggar líklega nothæfir á morgun
Herjólfur siglir ekkert í dag, annan daginn í röð. Í tilkynningu segir að seinni ferð skipsins falli niður vegna ölduhæðar og veðurs. Tíminn er nýttur til viðgerða á stýribúnaði veltiugga Herjólfs og er breskur sérfræðingur kominn til Vestmannaeyja til að ljúka viðgerðinni. Vonir standa til að veltiuggarnir verði nothæfir á morgun, stefnt er að brottför frá Eyjum klukkan 8. Ef eitthvað breytist verður send út tilkynning klukkan 7 í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.