Eyjamenn áttu tvö atriði í úrslitum Músíktilrauna sem fram fóru í gær. Annars vegar var það stelpnabandið Þögn og hins vegar Elísabet Guðnadóttir (Eló).
Elísabet varð í öðru sæti keppninar og hlaut auk þess höfundaverðlaun FTT. Frábær árangur hjá þessari efnilegu tónlistarkonu sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.
Vampíra í fyrsta sæti
Músíktilraunirnar sanna enn og aftur hversu öflug og rík íslensk tónlistarsena er því að hvorki meira né minna en 43 tónlistaratriði tók þátt í tilraununum í ár. Farið er yfir keppnina á vefsíðu keppninnar.
Undankvöldin voru fjögur í Hörpu þar sem áhorfendur hlustuðu á 86 frumsamin lög, sem voru einstaklega fjölbreytt, sterk, skemmtileg og allskonar tónlistarstefnum og margskonar tilraunum. Að lokum höfðu tíu hljómsveitir unnið sér rétt til þátttöku á úrslitakvöldinu en það voru þær Chögma, Cloud Cinema, Eló, Flórurnar, Frýs, Slysh, Social Suicide, Tommi G, Vampíra og Þögn sem spiluðu fyrir fullu húsi og góðri stemmningu.
Fyrsta sæti Músíktilrauna 2024 hlaut hljómsveitin Vampíra, annað sætið hreppti Eló og þriðja sætið hlaut Chögma. Í almennri símakosningu tók hljómsveitin Frýs titilinn Hljómsveit fólksins. Glæsileg verðlaun voru veitt, hljóðverstímar, úttektir í hljóðfæra- og tónlistarverslunum, styrkir úr Minningarsjóði Péturs W. Kristjánssonar og frá FTT, spilamennska á tónlistarhátíðum og sigurvegararnir munu fljúga á vit ævintýranna með Icelandair.
Öll þau sem komust í úrslit hljóta frábæran fræðslupakka Hitakassans sem undirbýr ungt tónlistarfólk fyrir atvinnumennsku í tónlist, námskeiðið er haldið í samstarfi við Útón og Tónlistarborgina Reykjavík.
SIGURSVEITIR 2024
Eftirfarandi aðilar hlutu verðlaun á Músíktilraununum í ár og verður spennandi að fylgjast með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki í nánustu framtíð.
1.sæti. Vampíra
2.sæti. Eló
3.sæti. Chögma
Hljómsveit fólksins: Frýs
Einstaklingsverðlaun:
Söngur: Gísli Freyr Sigurðursson í Slysh
Bassi: Árni Hrafn Hrólfsson í Spiritual Reflections
Hljómborð: Ríkharður Ingi Steinarsson í Áttavillt
Gítar: Þórsteinn Léó Gunnarsson í Vampíra
Trommur: Jónatan Emil Sigþórsson í Chögma
Rafheili: Emil Ingo Lupnaav Atlason í Emidex
Höfundaverðlaun FTT: Elísabet Guðnadóttir í Eló
Íslenskir textar: Urður Óliversdóttir í Urður
https://eyjar.net/tvo-atridi-fra-eyjum-i-urslit-musiktilrauna/




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.