Enginn vertíðarbragur ennþá
jon_valgeirs_opf
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum í gær. Bergur var með fullfermi og Vestmannaey með tæplega 50 tonn.

Rætt er við skipstjóra beggja skipana á vef Síldarvinnslunnar um veiðina. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hefðu lent í fínasta fiskiríi. „Við fórum á Selvogsbankann, nánar tiltekið á Sannleiksstaði, og þar var væn þorskveiði á þriðjudag og í gærmorgun, en það var hins vegar rólegt í upphafi túrs. Mér finnst ekki kominn vertíðarbragur á þetta ennþá en fiskurinn sem fékkst er flottur; vertíðarþorskur, lifrarmikill og með hrognum. Það er heilmikill fiskur uppi í landsteinum og þar eru dragnótabátar og línubátar að gera það gott en fiskurinn er ekki genginn út frá landinu í mjög miklum mæli ennþá. Það var sæmilegasta veður í þessum túr, norðangjólukaldi allan tímann,“ segir Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þeir hafi verið á vitlausu róli í túrnum. „Við byrjuðum á Selvogsbankanum en þar var lítið að fá. Við færðum okkur þá yfir á Pétursey en þá brast á hörkufiskirí á Selvogabanka. Það var lítið fiskirí á Péturseynni þannig að við fórum til baka og fengum fínan afla á Selvogsbankanum í þá 17 klukkutíma sem við stoppuðum þar. Þar fékkst helst yfir sjö kílóa þorskur, hinn fallegasti fiskur,“ segir Egill Guðni.

Bergur mun halda til veiða á ný í dag og Vestmannaey í kvöld.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.