Enn í hnút - Sjávarútvegsráðherra ekki tilbúin að liðka til
Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness og samn­inga­nefnd­armaður sjó­manna, seg­ir við mbl.is að fund­ur­inn hjá rík­is­sátta­semj­ara í gær hafi verið gríðarlega erfiður. Hann hafi skilað þeirri niður­stöðu að drög að nýj­um kjara­samn­ingi hafi verið til­bú­in. Aðeins hafi staðið út af að fá vil­yrði frá sjáv­ar­út­vegs­ráðherra varðandi skatta­lega meðferð á dag­pen­ing­um en því hafi hann hafnað.
�??�?að er þyngra en tár­um taki að eft­ir rúm­lega tveggja mánaða verk­fall og eina af erfiðustu vinnu­deil­um Íslands­sög­unn­ar skuli sjáv­ar­út­vegs­ráðherra ekki hafa verið til­bú­inn að liðka fyr­ir þessu rétt­læt­is­máli fyr­ir ís­lenska sjó­menn. Ef ráðherr­ann hefði verið til­bú­inn til þess hefði verði hægt að leggja kjara­samn­ing­inn strax í dóm sjó­manna og ef sjó­menn samþykktu hann hefði flot­inn getað verið kom­inn til veiða inn­an nokk­urra daga!�?? skrif­ar Vil­hjálm­ur á Face­book-síðu sína.
�??�?g biðla, reynd­ar má segja að ég sendi neyðarkall til alþings­manna um að taka stöðu með ís­lensk­um sjó­mönn­um og koma þessu rétt­læt­is­máli í gegn þannig að sjó­menn sitji við sama borð og annað launa­fólk hvað frá­drátt á fæðis­kostnaði varðar þegar menn starfa víðsfjarri sínu heim­ili,�?? skrif­ar hann.
Af mbl.is.

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.