Er hægt að mynda sátt um leiðir?
�?að dyljast engum þau vonbrigði sem Landeyjahöfn hefur valdið og staðan á samgöngum við Eyjar er orðin að meini í bæjarlífinu. Staða, sem er að ganga hart að ferðaþjónustunni í Eyjum og fyrirtækjum sem byggja rekstur sinn á öruggum samgöngum eins og fólkið sem þolir ekki lengur óvissuna. Í vetur hefur keyrt um þverbak en nú eru að verða sex mánuðir frá því að Landeyjahöfn var lokað sem er lengri tími en svartsýnustu menn þorðu að spá og langt frá væntingum sem bornar eru til nýrrar ferju sem talið er að fari alla daga nema 4 í Landeyjahöfn á ári.
Við ætlum ekki nú frekar en áður að gerast sérfræðingar í málefnum Landeyjahafnar eða kostum eða göllum nýrrar ferju. Um það verður deilt og er deilt út í það óendanlega og á meðan mun ekkert gerast í málunum. �?sættið er olía á þann eld að ekkert verði gert fyrr en Eyjamenn gangi í takt í því hvernig lausnin líti út. Við lögðum til í síðustu viku að reynt yrði að finna sátt sem unnið yrði eftir til að Eyjamenn upplifi ekki aftur 6 mánaða lokun Landeyjahafnar. Sáttin gæti falist í eftirfarandi punktum.
1. Landeyjahöfn verði opnuð strax með öllum tiltækum ráðum. Nú er unnið að því.
2. Innanríkisráðherra láti nú þegar gera úttekt á Landeyjahöfn, forsendum fyrir byggingu og nýtingu hafnarinnar. Hvort líkur séu á að Landeyjahöfn standist þær væntingar sem til hafnarinnar voru gerðar.
3. Standist ekki þær forsendur sem gerðar voru, verði lagðar fram tillögur að lagfæringum á höfninni.
4. Skorið verði úr um það hvort höfnin verði heilsárshöfn i framtíðinni eða ekki og þá hvað megi vænta að höfnin verði opin lengi á hverju ári.
5. Niðurstaða þessara rannsókna liggi fyrir 1. ágúst 2015.
�?að liggur fyrir að hönnun og fjármögnun á nýrri ferju er á lokametrunum og verður niðurstaðan kynnt fljótlega. Við getum endalaust verið í skotgröfunum og kennt hver öðrum um, Vegagerðinni, þingmönnum eða öðrum kjörnum fulltrúum en munum ekki komast að niðurstöðu í því stríði sem hjálpar til við lausn málsins. Við verðum að gera vopnahlé, endurmeta stöðuna og finna þá bestu niðurstöðu fyrir samgöngur til Eyja sem völ er á. �?að er eina niðursta

Nýjustu fréttir

„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.