Eyþór Daði með ÍBV út tímabilið
eythor-dadi_ibvsp
Eyþór Daði Kjartansson. Ljósmynd/ibvsport.is

Eyjamaðurinn Eyþór Daði Kjartansson verður áfram í herbúðum ÍBV eftir að hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild til loka árs. Eyþór sem er fjölhæfur 23 ára leikmaður hefur verið að leika vel í háskólaboltanum fyrir Coastal Carolina University.

Eyþór lék 5 leiki í Bestu deildinni í fyrra og skoraði í þeim leikjum eitt mark. Einnig skoraði hann eitt mark í fjórum leikjum fyrir KFS. Tímabilin tvö þar á undan lék hann 26 leiki og skoraði í þeim 3 mörk í sterkum KFS liðum sem enduðu í 6. sæti 3. deildarinnar.

Samtals á Eyþór að baki 26 leiki fyrir ÍBV og verða þeir eflaust fleiri í sumar en knattspyrnuráðið fagnar komu Eyþórs og mun hann hefja æfingar með liðinu í dag, segir í frétt á heimasíðu ÍBV.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.