Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær var tekin fyrir greinargerð vinnuhóps um göngustíga og gönguleiðir.
Í greinargerð er meðal annars lagt til-
– að fara í markvissa uppbyggingu á gönguleiðinni frá Herjólfsdal með Hamrinum að útsýnispalli í Stórhöfða.
-að fullgera gönguleið með Sæfellinu austur fyrir flugbraut að Helgafelli og Eldfelli.
-að ráðast í markvissa uppbyggingu á gönguleiðinni upp Dalfjallið, yfir Eggjar að útivistarsvæði við Spröngu.
Ráðið tók jákvætt undir tillögur starfshóps og fól starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna úr tillögunum og leggja fram við gerð fjárhagsáætlunar 2020.
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur…